Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 251
VERKEFNISHÓPAR
Samanburður á vinnulag
hliðsjón af samsetningu
i og árangri með
og samskiptum
Helgi Þór Ingason er M.Sc. í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Islands, Ph.D. i framleiðsluferlum I stóriðju frá Norska
Tækniháskólanum í Þrándheimi og SCPM í verkefnastjórnun frá Stanford University. Hann hefur alþjóðlega vottun
(Certified Senior Project Manager) sem verkefnisstjóri. Helgi Þór er dósent við verkfræði- og náttúruvlsindasvið
Háskóla Islands. Hann er forstöðumaður MPM-náms, sem er fjögurra missera meistaranám í verkefnastjórnun. Einnig
er hann í forsvari fyrir námsbrautina Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun við Endurmenntunarstofnun Hl. Helgi Þór
hefur starfað sem verkefnisstjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Islenska járnblendifélagsins, gæðastjóri verkfræði-
stofunnar Linuhönnunar hf. (nú Eflu hf.) og hann er annar tveggja frumkvöðla og stjórnarformaður Als, álvinnslu hf.
sem rekur endurvinnslu á álgjalli og þjónustar áliðnaðinn á Islandi.
Tryggvi Sigurbjarnarson útskrifaðist með Dipl.-lng.-gráðu I raforkuverkfræði frá tækniháskólanum i Dresden 1961.
Siðar sérhæfði hann sig i verkefnastjórnun undir handleiðslu Mortens Fangel. Hann vann i raforkugeiranum frá
1961-1975, sfðast sem yfirmaður línudeildar Landsvirkjunar. Hann var meðeigandi,yfirverkfræðingur og síðar
framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Rafteikningar hf. 1975-1989, en sjálfstæður ráðgjafi! verkefnastjórnun og
stefnumótun 1989-2008. Hann stofnaði árið 1978 verkfræðistofuna Línuhönnun hf. ásamt fleirum og var stjórnar-
formaður hennar til 1992.Tryggvi kenndi verkefnastjórnun við verkfræðideild H( 1989-2002 og hélt námskeið um þau
efni hjá Endurmenntun H( 1989-2007. Hann var einn af stofnendum Verkefnastjórnunarfélags (slands 1984 og for-
maðurþess 1987-1989.
Útdráttur
Arangur I verkefni er háður fjöldamörgum atriðum, bæði tæknilegum atriðum, atriðum varðandi markmið og stefnu og
ekki síst atriðum er varða fólkið sem vinnur að verkefninu og myndar verkefnishóp þess. Margar rannsóknir eru til á sam-
spili verkefnishóþa og hvað ræður gæfu eða gjörvuleika slíkra hópa. I þessari grein er sjónum beint að ýmsum þáttum i
samsetningu verkefnishóþa, kynjahlutfalli, faglegum bakgrunni, skapgerðareiginleikum hópmeðlima og fyrirkomulagi við
samskipti og upplýsingamiðlun. Raktar eru þekktar rannsóknir á þessu sviði og gerð er grein fyrir úttekt á 23 verkefnis-
Hópum sem stundað hafa meistaranám i verkefnastjórnun við Háskóla íslands á árabilinu 2006-2009. Skilagögn
verkefnishóþanna eru rýnd og nokkrar lykilbreytur eru teknar saman og samhengi þeirra.Fram koma vísbendingar um að
Riarkþjálfun hafi góð áhrif á hópstarfið og leiði til bætts árangurs. Einnig benda niðurstöður til þess að hærri aldur og meiri
teynsla hópmeðlima leiði til betrí árangurs ( áætlanagerðinni. Loks kemur fram vísbending um að konur séu líklegri en
karlar til að leggja sig fram um að læra af fenginni reynslu I verkefninu.
Abstract
Pfoject success depends on a number of factors; i.e. technical factors, factors concerning aims and policy and not the least
fectors regarding the people working on the project; the project team. A lot of research has been carried out on the inter-
action within a work group and the forces that decide their success.The aim of the following paper is to focus on different
aspects concerning the composition of work groups, the ratio of men to women, professional background, the character-
istics of the group members and the means of communication and information distribution. General research in the field
is covered - and a research on the work of 23 project groups from a master program in project management at the
úniversity of lceland during the years from 2006 - 2009. Data on the groups have been studied and some conclusions have
úeen drawn.There are signs that coaching has a good influence on group work - leading to better results. It is also con-
cluded that higher age and thus more experience within the group is likely to improve the results in the project work.
Pinally it seems that women are more likely than men to put in an effort to learn from the experience achieved from exe-
cuting projects.
Lykilorð: Verkefnastjórnun, verkefnishópar, einsleitni, samskipti, Tuckman líkan, Belbin-próf.
Ritrýndar vísindagreinar
2 4 9