Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 170
Nýtt stjórnskipulag Háskóla íslands fól einnig í sér nýjar hefðir við brautskráninear. Nú
er brautskráningu þannig háttað að sviðsforsetar lesa upp nöfn kandídata, deildar-
forsetar afhenda prófskírteinin og rektor Háskóla íslands tekur í hönd nemenda og óskar
þeim til hammgju. Einkennislitur verkfræði- og náttúruvísindasviðs er ryðrauður, eins og
sja ma a kraga forsetaskikkjanna á mynd hér að framan. Litir allra sviða Háskóíans eru
ur natturu Islands og er sá ryðrauði litur steindarinnar götít, sem er járnhydroxíð og sést
til dæmis gloggt í líparítinu í Landmannalaugum. í febrúar 2009 brautskráðust 39 nem-
endur frá sviðinu (36% konur). Þar af voru 23 í verkfræði (30% konur) í júní braut-
skraðust 226 nemendur (42% konur), og voru þar af 59 í verkfræði (27% konur).
Afburðanemendur
Afb.u rðanemend ur <)kkar hafa fengið tækifæri til að verða skiptinemar í öflugum
haskolum erlendis í vetur. Kristín Soffía Jónsdóttir (umhverfis- og byggingarverkfræði),
Robert Andn Kristjánsson (vélaverkfræði) og Einar Búi Magnússon (eðlisfræði) tóku þátt
í lausnaleitarverkefnavinnu í sumar hér á íslandi með nemendum frá Harvey Mudd
College í Kalforníu. Verkefnið er að finna leið til að nýta orku jarðhitakerfa betur en gert
er nu a timum. Þremenningarnir fóru síðan til Kaliforníu og stunda þar nám fram að
jolum auk þess að halda áfram með verkefnið. Harvey Mudd College er einn af bestu
grunnnámsháskólum (college) Bandaríkjanna.
Einnig voru Egill Tómasson (nemi í rafmagns- og
tölvuverkfræði), Jan Philipp Baltasar Mueller (nemi
í elisfræði) og Katla Kristjánsdóttir (nemi í lífefna-
fræði) valin til að fara til náms og rannsókna í
sumar til hins virta California Technological
Institute (CalTech). Berglind Ósk Bergsdóttir
(nemi í tölvunarfræði) og Gunnar Hólmsteinn
Guðmundsson (nemi í iðnaðarverkfræði og
framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins CLARA)
voru valin til þess að taka þátt í alþjóðaráðstefnu
1500 ungmenna frá öllum löndum heims
(http://www.oneyoungworld.com/) með þekkt-
um leiðtogum á borð við Kofi Annan, Desmond
Tutu og Carole Stone til að taka þátt í að móta
alþjóðaauð af alheimsleiðtogum og hugmyndum
um breytingar fyrir framtíðina.
Nemendur sem fóru til Harvey Mudd College haustið 2009. Frá
vinstri: Haukur Ingi Jónasson, lektor í iðnaðarverkfræði, vélaverk-
fræði og tölvunarfræði, Róbert Andri Kristjánsson, Einar Búi Magnús-
son, Kristín Soffía Jónsdóttir og Kristín Vala Ragnarsdóttir sviðsforseti.
Ráðstefnur
Verkfræði- og náttúruvísindasvið hefur staðið fyrir fjölda ráðstefna á árinu. Þar má nefna
alþjoðlega ráðstefnu um áhrif jarðskjálfta (ISSEE 2009) sem var haldin á Háskólatorgi
Haskola Islands föstudaginn 29. maí 2009. A þeim degi var eitt ár liðið frá jarðskjálftanum
mikia í Olfusi. Raðstefnan var með megináherslu á upptakaferli jarðskjálfta, nærsviðs-
ahrif þeirra, jarðskjálftaáhrif og dvínun þeirra, jarðskjálftasvörun og skemmdir á bygg-
mgum og lagna-/veitukerfum, sem og efnahagsleg og félagsleg áhrif jarðskjálfta. Umsjón
með raðstefnurmi höfðu verkfræðingarnir Benedikt Halldórsson og Ragnar Sigbjörnsson,
Rannsoknarmiðstöð Háskóla Islands í jarðskjálftaverkfræði sem hefur aðsetur á Selfossi.
A vegum SCANDEM-samtakanna var haldin ráðstefna í Háskólabíói 8.-10. júní en hún
er arlegur viðburður á Norðurlöndum og er á vegum norrænu smásjársamtakanna. Þetta
var í fyrsta skipti í 60 ára sögu félagsins sem hún var haldin hér á landi.
Dagana 13.-16. júní var haldinn á Háskólatorgi Háskóla íslands aðalfundur NORDTEK-
samtakanna en NORDTEK eru samtök 23 tækniháskóla á Norðurlöndum. Samhliða
tundinum var haldin ráðstefna er fjallaði um verkfræðinga án landamæra eða þverfag-
1 6 8
Árbók VFÍ/TFÍ 2009