Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 233
Álagslíkan - Lóðrétt álag frá litlum hópi gangandi vegfarenda
Hér er sýnt sem dæmi álagslíkan fyrir minni hóp gangandi vegfaraenda sem nota má
fyrir álagstilfelli C. Önnur álagslíkön má finna í heimildum [Línuhönnun, 2007;
Línuhönnun, 2008]. Álagslíkanið er skilgreint með lóðréttum krafti F(t), sem færist yfir
viðkomandi brú með hraðanum ry
F(t)=jNGf[ a, sin(2^/pí)+a2sin (4n fpt-nH^+a^sm (ók fpt-nl2))
v„=0,25 //86 [m/s]
Hér er N fjöldi vegfarenda, G„ er þyngd vegfarenda, ax, a2 og a3 eru álagsstuðlar og/p er
göngutíðni. Álagslíkanið er ínaldssöm nálgum á meðalálagi frá hópi af N vegfarendum
sem ferðast yfir brú í einum hóp á sama hraða við sömu göngutíðni. Þar sem líkanið gerir
ráð fyrir að allir í hópnum gangi við sömu göngutíðni er líkanið íhaldssamara fyrir stóra
hópa, þ.e. ef N > 5-10 manns. Ekki er tekið tillit til þess að hópurinn gangi viljandi í takt.
Inntaksstærðir í álagslíkanið sem
mælt er með að nota fyrir álagstil-
felli C eru skilgreindar í töflu 8.
Stærð hópsins getur þó verið
breytileg, háð staðsetningu brúar-
innar og notkun hennar og því má
nota önnur gildi fyrir N í hverju
tilviki.
Tafla 4. Inntaksstærðir fyrir álagstilfeUi C N
Göngu- Þyngd tíðni (Gp) (fp) Stærð hóps (N) Álagsstuðull Álagsstuðull, («-|) (a2) Álagsstuðull, («3)
780 N f.if V 5 0.41 (fp-0.95)<0,56 0,069+0,0102fp 0,033+0,0192fp J
Meðalgöngutíðnina m skal almennt velja sem óhagstæðustu meðalgöngutíðni í hvert
skipti, t.d. samkvæmt eftirfarandi jöfnu:
1,80 Hz þegar /, <l,80Hz
/0 þegar l,80Hz</ <2,00Hz
2,00 Hz þegar /0 >2,00Hz
Þar sem/0 er lægsta eigintíðni lóðrétts sveifluforms eða eigintíðni þess sveifluforms sem
talið er ráðandi.
Þegar svörunin er reiknuð skal taka tillit til allra sveifluforma sem kunna að örvast við
álagið. Fyrir göngubrýr með vel aðskildum sveifluformum, má nota einfaldaða aðferð til
að reikna út svörun brúarinnar og er lýst hér á eftir.
Einföld aðferð byggð á sveifluformum
Almennt
Þessa einföldu aðferð má nota til að reikna svörun göngubrúa við álagi frá stökum veg-
faranda, sem og litlum hóp af vegfarendum (bæði gangandi og hlaupandi), þ.e. fyrir
álagstilfelli A,B,C og D. Aðferðinni sem lýst er hér á við þegar sveifluform brúarinnar eru
vel aðskilin. í greinargerð til Vegagerðarinnar [Línuhönnun, 2008] má meðal annars finna
dæmi um notkun þessarar aðferðar.
Álaginu er lýst með Fourier röð á eftirfarandi hátt:
F(t)= y[N^Gp [a, sin (ln /, í)+ a2 sin (4tt /, t-tt / 2 )+ a3 sin (ón /1- n / 2 )] (7)
Álagið samanstendur því af þremur hreinsveiflubylgjum (sínusbylgjum) við tíðnirnar/,,
2/, og 3/p, kallaðar tíðnir álagsins (einnig ritað sem 2,3). Fyrir hverja álagstíðni eða
Ritrýndar vísindagreinar i 2 3 1