Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 29
Siðanefnd VFÍ
Siðanefnd hélt ekki fund á starfsárinu. Engin mál lágu fyrir til úrskurðar. Siðanefnd er
skipuð fimm fyrrverandi formönnum VFÍ. Siðanefnd starfsársins var skipuð eftirtöldum
mönnum: Guðmundur G. Þórarinsson formaðu r, Vífill Oddsson, Karl Ómar Jónsson,
Pétur Stefánsson og Hákon Ólafsson.
Guðmundur G. Þórarinsson formaður.
Gerðardómur VFÍ
Fyrir nokkrum árum skipaði stjórn VFÍ nefnd til að yfirfara reglur gerðardóms VFÍ og
gera tillögur um á hvern hátt megi kynna hann betur. í nefndina voru skipuð: Kolbeinn
Kolbeinsson formaður, Viðar Ólafsson, Óskar Valdimarsson, Hjörtur Torfason hrl. og
Kristrún Heimisdóttir (fulltrúi SI). Nefndin vann ötullega að endurskoðun reglna
gerðardómsins í ljósi þess að hann hefur lítið sem ekkert verið nýttur á undanförnum
árum. Misjafnar skoðanir hafa verið uppi um hvaða breytingar beri að gera á reglum
dómsins og hefur nefndin ekki lokið störfum. Almennt virðist þróunin sú í hinum
vestræna heimi að auka vægi gerðardóma og sáttamiðlana. Skipunartími formanna
gerðardóms VFÍ rann út í september 2008. Samkvæmt reglum dómsins á Hæstiréttur að
skipa dómsformennina. Hæstiréttur er hættur að skipa í gerðardóma nerna kveðið sé svo
um í lögum og var samþykkt á aðalfundi VFÍ 2009 tillaga um að breyta skipan dómsins.
Löggildingarnefnd VFÍ
Löggildingarnefnd VFÍ skipa Hallgrímur Sigurðsson, Rúnar G. Sigmarsson formaður og
Tómas R. Hansson. Nefndin hélt fjóra fundi á starfsárinu og voru teknar fyrir átta
umsóknir um löggildingu. Flestar umsóknir fengu jákvæða afgreiðslu hjá nefndinni, þ.e.
að nefndin mælti með að umsækjandi fengi löggildingu á þeim sviðum sem umsókn náði
til. Hjá nokkrum umsækjandum var hluta umsóknar hafnað þar sem umsækjandi hafði
ekki tilskilda reynslu eða menntun á tilteknu sérsviði.
Rúnar G. Sigmarsson formaður.
Kvennanefnd VFÍ
Starfsárið 2008-2009 var kvennanefnd VFÍ skipuð sömu aðilum og árið áður, þ.e.
Guðrúnu Hallgrímsdóttur, Jóhönnu Hörpu Árnadóttur, Kolbrúnu Reinholdsdóttur,
Sveinbjörgu Sveinsdóttur og Örnu S. Guðmundsdóttur. Nefndin var á sínum tíma
stofnuð til að hvetja konur til þátttöku í félagsstarfi VFÍ og til að mynda tengslanet
kvenna í stétt verkfræðinga. Starfið hefur verið opið öllum verkfræðingum og tækni-
fræðingum, óháð félagsaðild. Með þeim hætti er vonast til að ná til sem flestra tækni-
menntaðra kvenna í landinu. Samkvæmt félagatali eru nú 1289 félagsmenn í VFÍ, þar af
eru 153 konur eða um 12%. Á starfsárinu sátu þrjár konur í stjórn VFÍ, þær Jóhanna Harpa
Árnadóttir formaður, Ásdís Elva Guðmundsdóttir og Hrund Ólöf Andradóttir. í stjórnum
nefnda og deilda félagsins sátu, auk stjórnar Kvennanefndar, samtals sjö konur. í stjórn
Stéttarfélagsins voru fjórar konur og í stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga var ein kona.
Ekki var farið í fyrirtækjaheimsókn á árinu heldur boðið upp á fyrirlesturinn „ímynd
verkfræðinga" í lok apríl 2008 á morgunverðarfundi KVFÍ. Erindið flutti Goddur,
Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Islands,
og fjölmenntu verkfræðingar af báðum kynjum.
Hluti stjórnar KVFÍ tók þátt í ráðstefnunni „Tengslanet IV - Völd til kvenna" 29.-30. maí
2008 sem haldin var á Bifröst í Borgarfirði. Fjöldi kvenna úr mörgum fagstéttum mætti
þar til leiks. Var dagskráin til fyrirmyndar og góð tengsl mynduðust.
2 7
Félagsmál Vfí/TFÍ