Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 75
1.8.3 Lífeyrissjóður verkfræðinga
Ávöxtun og tryggingafræðileg staða
Árið 2008 var afar erfitt íslenskum fjárfestum. Fjármálakreppan sem átti upptök sín í
Bandaríkjunum árið 2007 reið yfir landið af miklum þunga og felldi þrjá stærstu við-
skiptabanka landsins í október. Bankarnir drógu mörg fyrirtæki með sér í fallinu. Hluta-
bréf í bönkunum urðu verðlaus á einni nóttu en sjóðurinn náði að selja hluta þeirra
fyrir fallið. Innlend hlutabréf sjóðsins lækkuðu um 4 milljarða króna á árinu 2008, víkj-
andi skuldabréf voru afskrifuð um 240 milljónir króna og um 6,3 milljarðar króna voru
færðir á afskriftareikning í varúðarskyni vegna innlendra skuldabréfa.
Verðlag hækkaði um 16,4% á árinu 2008 og þurftu verðbréf að bera hærri ávöxtun til að
ná jákvæðri raunávöxtun. Erlend skuldabréf skiluðu bestri ávöxtun eða 77% og vó
gengislækkun krónunnar þar langþyngst. Gengisvísitala krónunnar hækkaði um 80 /o á
árinu. Bankareikningar skiluðu 24% ávöxtun og sjóðfélagalán
21,2% eða 3,6% raunávöxtun. Sérsniðnar fjárfestingar skiluðu
17,8% ávöxtun og erlend hlutabréf 9,7%. Erlend hlutabréf lækk-
uðu að meðaltali í verði um 50% á erlendum mörkuðum en gengis-
lækkun krónunnar dró verulega úr neikvæðri ávöxtun erlendra
verðbréfa. Innlend hlutabréf lækkuðu um 87,1%, hlutabréfatengd
skuldabréf lækkuðu um 57,1% og önnur innlend skuldabréf um
46,6% og er þá búið að taka tillit til varúðarafskriftar.
Nafnávöxtun samtryggingardeildar var -20,3% á árinu 2008 og
hrein raunávöxtun var neikvæð um 31,4%. Meðaltal hreinnar
raunávöxtunar síðustu fimm ár er -2,6%. Hrein eign til greiðslu
lífeyris var 24.570 milljónir króna í árslok.
Tryggingafræðileg staða samtryggingardeildar var neikvæð um
16,8% í árslok 2008 en var neikvæð um 0,9% í árslok 2007. Breyt-
ingin á milli ára skýrist fyrst og fremst af neikvæðri raunávöxtun
ársins um 31,4%.
15%
10%
5%
0%
-5%
-10%
-15%
-20%
-25%
-30%
-35%
9.6%
B *°-7%
1 31.4%.,
2004 2005 200
. Hrein raunávöxtun
2007 2008
- 5 ára meðaltal
Hrein raunávöxtun
samtryggingardeildar.
Staða áfallinna skuldbindinga var neikvæð um 13.040 milljónir
króna eða -34,7% af áföllnum skuldbindingum. Tryggingafræði-
leg staða vegna væntra framtíðariðgjalda var hins vegar jákvæð
um 673 milljónir króna eða um 1,9% af framtíðarskuldbindingum.
Samanlagt var tryggingafræðileg staða sjóðsins neikvæð um 12.367
milljónir króna eða sem nemur -16,8% af heildarskuldbindingum.
Á aðalfundi 2009 var samþykkt tillaga frá stjórn um að skerða
áunnin réttindi um 10% og lækka réttindatöflur (framtíð) um 5%.
Við það batnar tryggingafræðileg staða sjóðsins úr -16,8% í -10,1%.
í aðgerðaráætlun stjórnar er lagt til að koma tryggingafræðilegri
stöðu niður undir -5% eftir þrjú ár og í jafnvægi eftir fimm ár.
2004 2005
2007 2008
Hrein eign til greiðslu lífeyris.
í milljónum króna.
Félagsmál Vfí/TFÍ | 73