Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 319
Kerfi til stjórnunar áreiðanleika
Til þess að efla kerfisöryggið enn frekar má hugsa sér að koma á kerfi til stjómunar
áreiðanleika, þ.e. til þess að setja, fylgjast með og framfylgja öryggiskröfum og -stöðlum
[4]. í samkeppnisumhverfi þarf ferli fyrir yfirstjórnun áreiðanleika að hafa lögformlegt
gildi, þ.e. ekki má leika nokkur vafi á því hverjar kröfurnar em og hver framfylgir þeim.
Hlutverk og ábyrgð einstakra aðila þarf að velja gaumgæfilega, skilgreina skýrt, samhæfa
og framfylgja af festu. í raun má líta á þetta sem samning milli aðila eða þrepa í raforku-
kerfinu, þ.e. flutningsfyrirtækis, vinnsluaðila og annarra notenda kerfisins. Kerfi til
stjórnunar áreiðanleika þarf að ná yfir ýmsa þætti, til dæmis áreiðanleikakröfur til
rekstraraðila flutningskerfisins, áreiðanleikakröfur til vinnsluaðila og áreiðanleikakröfur
til annarra notenda flutningskerfisins. Auk þessa þarf að taka fram undanþágur ef ein-
hverjar eru, þ.e. hvort einlwerjir aðilar séu undanþegnir áreiðanleikakröfum, hvers
vegna og í hverju undanþágurnar eru fólgnar.
I sinni einföldustu mynd má lýsa áreiðanleikastjórnunarkerfinu eins og sýnt er á
mynd 2. Umsýsluaðili kerfisins kallar eftir gögnum frá öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Þar getur verið um að ræða upplýsingar um áreiðanleika og aðra þætti sem nefndir eru
hér að ofan. Gögn þessi eru síðan metin út frá gildandi kröfum og reglum. Sé ekkert
athugavert telst matinu lokið, en komi upp eitthvað sem ekki samræmist reglunum, þarf
að grípa til viðbragða og jafnvel beita refsingum til þess að kalla fram þær úrbætur sem
nauðsynlegar eru. I þessum hluta ferlisins má hugsa sér að hlutaðeigandi gefist kostur á
að áfrýja úrskurði umsýsluaðilans.
r n
gagna gögnum gögn reglum? Lokið
Viðbrögð,
refsiferli,
úrbætur
Mynd 2. Einfölduð mynd af kerfi til stjórnunar áreiðanleika.
Kerfi í líkingu við þetta hafa smám saman verið að ryðja sér til rúms á síðari árum. Meðal
annars hefur slíku kerfi verið komið upp af Western Electricity Coordinating Council
(WECC) í Bandaríkjunum. Þátttakendur þar eru meirihluti þeirra fjórtán fylkja sem
teljast til vesturhluta Bandaríkjanna, ásamt Bresku Kólumbíu og Alberta í Kanada og
Kaliforníuskaga í Mexíkó. Aðstæður í vesturhluta Bandaríkjanna eru að sjálfsögðu aðrar
en hér á landi; skipulag raforkumála frábrugðið skipulaginu hér og mun fleiri aðilar á
markaði, svo fátt eitt sé nefnt. Hins vegar er hlutverk þeirra sem eru á markaðinum
nákvæmlega það sama og hér, þ.e. að framleiða raforku, flytja hana, dreifa og nota
þannig að til hagsbóta sé fyrir alla, í laga- og regluumhverfi sem almenn sátt ríkir um.
Tækni-og vísindagreinar i317