Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 110
Salvador) 2006 og 2007, og fyrsta námskeiðið fyrir Asíulönd var haldið í Kína 2008.
Námskeiðin eru hluti af framlagi íslands til Þúsaldarmarkmiða Sþ.
Fastir starfsmenn skólans voru þrír frá upphafi en sá fjórði bættist við 2007. Námsráð sér
um faglega skipulagningu námsins og er einn námsstjóri ábyrgur fyrir hverri braut. í
námsráði eru sex jarðhitasérfræðingar Islenskra orkurannsókna (ISOR), tveir prófessorar
við Háskóla Islands og einn jarðhitasérfræðingur frá Hitaveitu Suðurnesja. Námsráðið er
burðarás starfseminnar. Kennarar og leiðbeinendur hafa í gegnum árin einkum
komið frá Orkustofnun (50—60%) og Háskóla íslands (20—30%), en einnig frá öðrum
rannsóknarstofnunum, orkufyrirtækjum og verkfræðistofum. Eftir skipulagsbreytingar á
Orkustofnun 2003 hefur mestur hluti kennslunnar (55%) verið hjá ÍSOR og Háskóla
Islands (25%). Skólinn greiðir árlega fyrir kennslu um 50 sérfræðinga. Skólinn hefur átt
þvi lam að fagna að geta nánast alltaf boðið upp á „landsliðið" í jarðhitafræðum. Skólinn
hefur notið mikils stuðnings og velvildar orkufyrirtækja og ber sérstaklega að nefna
Hitaveitu Suðurnesja, Jarðboranir, Landsvirkjun, Norðurorku og Orkuveitu Reykjavíkur.
Styrkur skólans felst í vönduðu vali á nemendum, hæfni kennaranna og gæðum þess
starfsumhverfis sem námið fer fram í.
Jarðhitaskólinn hélt afmælisráðstefnu í Reykjavík 26.-27. ágúst 2008. Meðal þátttakenda
voru 33 fyrrum nemendur frá 23 löndum. Meðal þeirra voru fulltrúar 22 af 29 eldri
árgöngum skólans. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráðherra, flutti ræðu
við opnun ráðstefnunnar, svo og Janos Bogardi, aðstoðarrektor Háskóla Sþ, Cornel Antal,
rektor Oradeaháskóla í Rúmeníu og nemandi 1995, sem talaði fyrir hönd fyrrum nem-
enda, og Zheng Keyuan, sendiherra Kína á íslandi. Ingvar Birgir Friðleifsson, forstöðu-
maður Jarðhitaskólans frá stofnun, flutti erindi um starfsemi skólans. Fyrrum nemendur
frá 18 þróunarlöndum fluttu erindi um rannsóknir sínar, jarðhitanotkun í heimalönd-
unum, og framlag Jarðhitaskólans til miðlunar jarðhitaþekkingar undanfarin 30 ár. Alls
voru flutt 42 erindi (sem öll er að finna á vefsíðu www.unugtp.is). Á ráðstefnunni og í
veislum henni tengdum var frábær stemning þar sem fyrrum nemendur og kennarar gátu
borið saman bækur sínar um rannsóknir, persónulega hagi og samstarf um ókomin ár.
1 0 8
Arbók VFl/TFl 2009