Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 259
Framsetning á upplýsingum úr skilamati sem ekki eru tölrænar
Hér á eftir er textaumfjöllun um þá hópa sem eru í útjöðrum myndanna á undan varð-
andi einsleitni og samsetningu. Upplýsingarnar eru unnar beint upp úr skilagögnum,
einkum skilamati. Til glöggvunar eru hóparnir auðkenndir með bókstöfum.
• Hópur A sýndi mikla breytingu milli áætlaðrar og raunverulegrar aðfanganotkunar
pr. þátttakanda eða úr 62 tímum í 110 tíma. Aðfanganotkun var minnst hjá þessum
hópi. Námsmat milli verkefnisáætlunar og afurðar breyttist ekki að ráði og var í
meðallagi. Meðalaldur var 37,5 ár. Öll Belbin-hlutverkin níu voru skipuð í hópnum.
Langsterkasta hlutverkið var CF en þau veikustu voru SP og ME. Allir koma úr
tveimur af átta bakgrunnsflokkum og þeir hafa því hliðstæðan faglegan bakgrunn.
Spönn fyrir kyn er 2 og í hópnum voru tveir karlar og fjórar konur. Verkdeiling fór
fram á vinnufundum og þar var verkliðum dreift jafnóðum á einstaklinga eða pör.
Hópurinn hélt vikulega tveggja klukkustunda vinnufundi. Samvinnan gekk vel en þó
kom upp álag og þreyta á seinni stigum. Unnið var í samstarfi við verkkaupa sem var
óskipulagður og stóð ekki undir væntingum. Notað var verkefniskerfi á vef fyrir öll
vinnuskjöl. Galli var að það gat ekki haldið utan um samskipti og var tölvupóstur
notaður til þess.
• Hópur B sýndi mesta breytingu milli áætlaðrar og raunverulegrar aðfanganotkunar
pr. þátttakanda eða úr 107 í 161 tíma. Hann sýndi mesta framför í námsmati milli
verkefnisáætlunar og afurðar. Meðalaldur voru 40,2 ár. Öll Belbin-hlutverk nema PL
voru skipuð. Sterkasta hlutverkið var IMP. Einsleitni aldurs var 1. Einsleitni bak-
grunns var 5 og allir þátttakendur komu því úr þremur af átta bakgrunnsflokkum.
Kynjaskipting var jöfn. Einn verkefnisstjóri stýrði verkefninu en hópstjórar fylgdu
eftir tilteknum verkliðum. Hlutverk verkefnisstjóra var að mynda kjölfestu við
verkkaupa. Allir hópmeðlimir voru virkir í vinnu við flesta verkþætti. Haldnir voru
vikulegir fundir og oftar ef þörf var á. Samvinna gekk vel og reglulegir fundir og opin
samskipti leiddu til þess að allir voru upplýstir. Hópurinn notaði verkefniskerfi á vef
sem nýttist ekki sem skyldi, var ekki notendavænt og nota þurfti hefðbundinn tölvu-
póst til samskipta innan hóps og utan.
• Hópur C notaði mestar afurðir eða 240 tíma pr. þátttakanda. Hann áætlaði þó að nota
191 tíma. Meðalaldur var 36,2 ár. Einsleitni aldurs var 1, einsleitni bakgrunns var 3 og
þátttakendur komu úr fimm af átta bakgrunnsflokkum. Kynjaskipting var jöfn. Verk-
efnisstjórar voru þrír yfir æviskeiðið og allir voru virkir í öllum verkþáttum. Gerð var
mjög ítarleg áætlun fyrir fundi, í stýrihópi, verkefnishópi og með hagsmunaaðilum.
Lögð var megináhersla á samvinnu, ágreiningsefni voru leyst jafnóðum og þess gætt
að slíta fundi aldrei öðruvísi en þannig að allir færu sáttir af honum. Settar voru
siðareglur þar sem m.a. var talað um kurteisi, opin viðhorf, stundvísi, virka hlustun,
hafa gaman og gæta trúnaðar. Notað var verkefniskerfi á vef til að geyma öll skjöl sem
tengdust verkefninu en tölvupóstur var notaður til samskipta.
• Hópur D notaði 238 tíma pr. þátttakanda. Þar var meðalaldur 42,4 ár. Einsleitni aldurs
var 1, einsleitni bakgrunns var 5 og komu því þátttakendur úr þremur af átta bak-
grunnsflokkum. Kynjaskipting var tveir karlar og þrjár konur. Hlutverk verkefnis-
stjóra færðist á milli, haldnir voru vikulegir verkefnisfundir á föstum fundatíma.
Samvinna og samskipti gengu yfirleitt vel en brestir komu þó í samstarfið. Settar voru
siðareglur. Notað var verkefniskerfi á vef sem nýttist til að geyma skjöl en ekki var
hægt að nota það til samskipta. Til þeirra var venjulegur tölvupóstur notaður, bæði
innan hóps og við hagsmunaðaðila. Hópurinn var ekki sáttur við verkefniskerfið og
nefndi m.a. erfitt aðgengi, vandamál við uppsetningu og afleiðingin var sú að tölvu-
póstur var algengasta samskiptaformið..
• Hópur E notaði lítil aðföng pr. þátttakanda eða 116 tíma, mjög nálægt því sem áætlað
var. Hópurinn fékk mjög gott námsmat, bæði fyrir áætlun og afurð. Meðalaldur í
hópnum var 35,2 ár. Einsleitni aldurs var 1, einsleitni bakgrunns 4 og spönn fyrir kyn
Ritrýndar vísindagreinar i 2 5 7