Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 34
íslands, Byggingafræðingafélag íslands, Verkefnastjórnunarfélag íslands, Skipulags-
fræðingafélag íslands, Magnús Baldursson, lögmaður og Miðverk, tölvu- og kerfis-
fræðiþjónusta. Auk þess þjónustar skrifstofa félaganna Stéttarfélag byggingarfræðinga
og Stéttarfélag tölvunarfræðinga.
Samstarf TFÍ, VFÍ og Stéttarfélag verkfræðinga
Rekstur sameiginlegrar skrifstofu VFÍ, TFÍ og SV hófst árið 2007. Ekki er hægt að segja
annað en að markmiðin hafi náðst og gott betur. Því má segja að félögin hafi verið vel
undirbúin fyrir þær sviptingar sem urðu í þjóðfélaginu haustið 2008. Mikið og öflugt
starf hefur verið unnið í húsinu til hagsbóta fyrir félagsmenn. Ótal fundir og námskeið
hafa verið haldin og margoft hefur salurinn í húsinu fyllst af áhugasömum félags-
mönnum. Samstarf félaganna hefur stóraukist og er það góðs viti fyrir framtíðina. Með
þessu samstarfi skapast óendanleg sóknarfæri inn í framtíðina. Nýir vefir eru enn í þróun
og gefa mikla möguleika á miðlun upplýsinga til félagsmanna.
Starfsemin skiptist nú í þrjú svið: Kjarasvið, útgáfu- og kynningarsvið og fag- og fjár-
málasvið. Ráðnir voru þrír sviðsstjórar. Þrúður G. Haraldsdóttir er sviðsstjóri kjaramála,
Sigrún S. Hafstein er sviðsstjóri útgáfu- og kynningarsviðs og Árni B. Björnsson er yfir
fag- og fjármálasviði og er hann jafnframt framkvæmdastjóri félaganna.
Samstarf við Nýsköpunarmiðstöð
I byrjun febrúarmánaðar 2009 var undirritaður
samstarfssamningur VFÍ, SV og TFÍ við Nýsköp-
unarmiðstöð íslands. Samningurinn varðar leit og
framboð á möguleikum til atvinnusköpunar fyrir
félagsmenn. Efni samningsins, sem gildir í tólf
mánuði, er eftirfarandi:
Nýsköpunarmiðstöð íslands skapar farvegi fyrir
nýsköpun ogfrumkvöðlavinnu:
• Með stuðningi við að móta viðskiptahugmyndir og útfærslu þeirra.
• Með handleiðslu og stuðningi er varðar stoðumhverfi og styrki.
• Með handleiðslu varðandi stofnun og rekstur fyrirtækja.
• Með leiðsögn um mótun á viðskiptasetri fyrir félagsmenn ofantalinna félaga og þátt-
töku félagsmanna í núverandi setrum Nýsköpunarmiðstöðvar íslands.
• Með því að halda sérstaka kynningarfundi fyrir félagsmenn VFÍ, TFÍ og SV.
• Með aðstoð og aðgangi að alþjóðlegum gagnagrunnum á sviði tækniyfirfærslu.
• Með þátttöku í viðskiptasendinefnd á alþjóðlega sýningu og ráðstefnu um viðskipta-
sérleyfi, en ráðstefnan sem er hin stærsta sinnar tegundar í heiminum, var haldin í
Washington DC í mars 2008.
• Með aðstoð og leiðsögn vegna doktorsnáms hjá rannsóknarstofnunum og háskólum.
VFÍ, TFÍ og SV leggja til:
• Hvatningu til félagsmanna að taka þátt í starfinu, með stofnun vinnuhópa, nýtingu á
tengslaneti og áhugaverðum fundum.
• Upplýsingar um félagsmenn (nafnalista).
• Kynningu samstarfsins á heimasíðu.
• Þátttöku á fræðslu- og vinnufundum.
• Húsnæði fyrir fræðslu- og vinnufundi.
Samningurinn felur ekki í sér kvaðir um bein fjárútlát samningsaðila.
Undirritun samnings.f.v.Bergþór Þormóðsson,
Sigríður Ingvarsdóttir, Jóhanna Harpa
Árnadóttir og Sveinn Vlkingur Árnason.
3 2
Árbók VFl/TFl 2009