Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 111
VEGAMÁL
Bifreiðaeign
Samkvæmt tölum frá Umferðarstofu voru nýskráðar fólksbifreiðir 9.028 á árinu 2008 á
móti 18.524 árið áður sem samsvarar 51,3% færri skráningum. Á sama tíma voru
nýskráðar 37 hópferðabifreiðir á móti 94 árið áður sem samsvarar um 60,6% fækkun.
Nýskráðar vöruog sendibifreiðir voru 1.521 á árinu 2008 en voru 3.999 árið áður og er það
61,9% fækkun skráninga á milli ára. Minnkun í nýskráningum mótorhjóla var rúmlega
56% en nýskráð voru 618 hjól á móti 1.414 árið á undan.
Nýskráningum fækkaði mjög mikið frá árinu 2007 og fjölgaði bifreiðum í landinu aðeins
um 1,2% frá árinu á undan og eru nú skráðar 243.514 bifreiðir í landinu. Þetta hafði þau
áhrif að fólksbifreiðaeign á hverja 1.000 íbúa minnkaði á milli ára úr 662 í 656, samkvæmt
tölum frá Umferðarstofu.
Bensíngjald
Bensínsalan 2008 nam 207,4 milljónum lítra sem er minnkun um 11,7 milljónir lítra frá
2007. Samkvæmt tölum frá Ríkisbókhaldi voru innheimtar tekjur af bensínsölunni, þ.e.
bensíngjaldið, 6.833,7 m.kr. árið 2008. Það er 586 m.kr. mirma en tekjuspá vegáætlunar og
fjárlaga gerði ráð fyrir.
Bensínbifreiðum hefur fjölgað um 19,6% sl. fimm ár en sala á bensíni hefur ekki aukist í
sama hlutfalli. Hún hefur aðeins aukist um 14,1% á þessu sama tímabili. Díselbifreiðum
hefur fjölgað hlutfallslega mun meira á þessum tíma eða um 84%. Bensíngjald í lok árs
2008 er 37,07 kr./l en það hækkaði 11. desember 2008 úr 32,95 kr./l.
í ársbyrjun 2008 kostaði lítrinn af 95 oktana bensíni 137,90 kr. frá dælu á bensínstöð með
fullri þjónustu. Síðan tóku við stöðugar hækkanir fram á mitt ár þegar verðið fór hæst í
182,40 kr./l, sem er ríflega 32% hækkun frá því sem það var um áramót. Síðan fór það
hægt lækkandi fram í október þegar nokkur skriður komst á lækkunina og endaði verðið
á lítranum í 146,40 kr./l um áramót. Verðhækkun milli áramóta mælist 6,2%. Meðalverð
ársins er hins vegar rúmlega 161 kr./l.
Þungaskattur
Á árinu voru innheimtar tekjur af þungaskatti alls 1.214 m.kr. í fjárlögum var gert ráð
fyrir 1.280 m.kr. þannig að um 66 m.kr. vantaði upp á að áætlunin stæðist. Skatturinn er
í formi kílómetragjalds og er aðeins lagður á bifreiðar sem eru yfir 10 tonn að leyfðum
heildarþunga. Kílómetragjald hækkaði líkt og bensíngjaldið þann 11. desember á bilinu
12,4-13,8%. Gjaldið fyrir bifreið á bilinu 10-11 tonn er nú 0,33 kr./km en var áður 0,29
kr./km og fer svo stighækkandi og er 14,50 kr./km í flokki bifreiða sem eru 31 tonn og
yfir en það var áður 12,89 kr./km.
Tæknianná
1 0 9