Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 277
50 km/klst og 60 km/klst - 100 m
Mælt hljóðstig og tíðnieiginleikar blaðanna fjögurra í 100 m fjarlægð frá hljóðupptökum
eru með svipuðum hætti og fyrir 50 m mælingafjarlægð, sjá myndir 4 og 5. Á tíðni hærri
en 125 Hz er hljóðstig frá harðmálmsblaði hæst. Á hárri tíðni verður munurinn milli
hljóðstigs frá harðmálmsblaði og hinna blaðanna sambærilegur samanborið við þegar
mælt var í 50 m. Munurinn verður mestur við 1000 Hz eða allt að -14-16 dB. Hljóðstig
frá blöðum 2 og 3 og snjóplógsbifreið mælist áþekkt.
Þegar hraðinn er aukinn úr
50 km/klst í 60 km/klst má
sjá sambærilega hljóðút-
breiðslu, mynd 5 til hægri.
Enn á ný má sjá að á mið- og
háum tíðnum er hljóðstig frá
harðmálmsblaði hæst. Hljóð-
stig fyrir blað 2, GMG GK5, á
tíðnibilinu 250-8000 Hz mæl-
ist lægst og allt að 3 dB lægra
en mælt hljóðstig frá bifreið.
Sem fyrr er vert að nefna að
þessar mælingar fóru ekki
fram sama dag og því verður
ákveðinn óvissuþáttur til,
þar sem ekki um nákvæm-
lega sömu skilyrði var að
ræða. Frávikið er þó innan
skekkjumarka við hljóðstigs-
rnælingar sem þessar eða
innan við ± 2 dB.
Mynd 5: Hljóðstig fyrir mismunandi blöð við 50 km/klst og 60 km/klst - 100 m mælingafjarlægð,
meðaltal átta umferða.
Samantekt hljóðmælinga
Til þess að meta mun á mældu hljóðstigi blaðanna er hér A-vigtað hljóðstig skoðað nánar,
sjá töflur 1 og 2. A-vigtun er gjarnan notuð fyrir umhverfis- og iðnaðarhávaða. A-vigtun
hljóðstigs líkir eftir næmi eyrans.
A-vigtað hljóðstig er reiknað samkvæmt jöfnu að neðan:
Á,=101og(Xi10W+í:')) (M
þar sem L, er hljóðstig og K, er A-viktun, stuðull.
Tafla 1. A-Vigtað hljóðstig, samanburðartafla fyrir sérhvern mælihluta, hámarks og lágmarksgildi auðkennd.
L_Aeq Blað 1 Blaö 2 Blaö 3 Blað 4 Snjómokstursbifreiö
Fjarlægð (m]\Hraði [km/klst] 50 60 50 60 50 60 50 60 50 60
50 67,8 71,0 61,4 60,8 62,1 62,7 81,8 82,8 58,0 60,9
100 62,2 66,4 56,9 54,6 57,1 57.2 77,6 78,4 55,4 56,1
í töflunni má greina sambærilegt mynstur og sjá má á myndunum að framan, þ.e. með
auknum hraða verður hljóðstig hærra eða að jafnaði um 0,1-4,2 dB fyrir blöð 1, 3, 4 og
snjóplógsbifreið. Munurinn er á hinn veginn fyrir blað 2 en þar mælist hljóðstig allt að
2,2 dB lægra fyrir meiri hraða. Þegar gildin eru skoðuð nánar með tilliti til mælingafjar-
lægðar kemur í ljós að hljóðstigsmunur milli 50 og 100 m fjarlægðar frá vegi, verður
2,6-5,6 dB fyrir blöðin fjögur og snjóplógsbifreið. A-vigtað hljóðstig er hæst í öllum til-
fellum fyrir blað 4.
Tækni-og vísindagreinar |275