Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 338
Undirbúningur
Ákveðið var að nýta kaupsamninga frá og með árinu 2004. Það var alltaf ljóst að nýta
þyrfti meira en eitt ár og þá þótti skynsamlegt að taka ekki bara árin 2006-2007 þegar
verð voru í hámarki.
Einn mikilvægur þáttur í endurmatinu var að koma á nýrri flokkun íbúðareigna.
Flokkunin byggðist á íslenskum staðli IST120:2007 með útvíkkunum:
IST120:2007 Útvíkkun
1100 Sérbýlishús, bein aðkoma að íbúð frá lóð
1111 Einbýlishús
1115 Einbýlishús á jörðum eða atvinnulóðum
1121 Raðhús, Þrjú eða fleiri hús tengd saman
1125 Parhús,tvö hús tengd saman
1126 Tvíbýlishús,tvær íbúðir í sama húsi (uppi/niðri) með sitt hvort fastanúmerið
1200 Fjölbýlishús, þrjár eða fleiri íbúðir í sama húsi
1300 Sérhæft íbúðarhúsnæði
1314 Þjónustuíbúðir,íbúðir ætlaðar öldruðum með sambyggðri þjónustu
Upplýsingar um flatarmál rýma voru jafnframt túlkaðar á nýjan hátt. Á íslandi hefur um
langt árabil farið fram ítarleg skráning á rýmum í íbúðarhúsum. Þessi rými voru nú
flokkuð í þeim tilgangi að ná fram mismunandi verðmætamati á þeim. Rými sem nýtt er
til íbúðar ætti að vera verðmætara en önnur. Þannig er nú til íbúðarflatarmál fyrir hverja
íbúð, auk heildarflatarmáls eignarinnar, sem hefur verið birt um árabil.
Rými í íbúðarhúsum var flokkað á eftirfarandi hátt:
1. Lokað íbúðarrými á hæð
2. Lokað íbúðarrými í kjallara
3. Lokað íbúðarrými í risi
4. Lokað bílskúrsrými
5. Bílastæðarými
6. Svalarrými
7. Lokað geymslurými utan íbúðar (í kjallara eða risi), skúrar og annað hrátt/ódýrt rými sem fellur ekki undir 1 -3
Til viðbótar við upplýsingar um kaupsamninga voru eftirfarandi upplýsingar teknar úr
fasteignaskránni:
• Staðsetning eignar (sveitarfélag, byggð, hnit)
• Flokkun eignar sem byggðist á IST120 staðlinum
• Flatarmál lóðar og eignarhlutur í lóð
• Flatarmál eignar. sundurgreint samkvæmt hinni nýju flokkun rýma, íbúðarflatarmál, bílskúrsflatarmál o.s.frv.
• Fjöldi herbergja (stofur, eldhús, geymslur, þvottahús)
• Ummál eignar
• Fjöldi hæða í húsi, svo og fjöldi hæða eignarinnar og hvaða hæð telst aðalhæð. Dæmi: íbúð á 4. hæð (aðalhæð)
og 5. hæð í 10 hæða blokk
• Byggingarár
• Byggingarefni útveggja
• Upplýsingar um fjölda bílastæða í bílhýsum sem tilheyra eigninni
• Upplýsingar um fjölda hreinlætistækja (baðker, sturta, salerni)
• Upplýsingar um hvort lyfta sé í húsi
• Upplýsingar um hve margar íbúðir eru í húsi
Matssvæði
Það var ljóst frá upphafi að þróa varð aðskilin líkön fyrir sérbýli og fjölbýli. Nægir að
nefna að gangverð reyndist óháð stærð lóðar fyrir eignir í fjölbýli en ekki í sérbýli. Eitt
matslíkan er gert fyrir hvert matssvæði. Stærð matssvæðis ræðst af tveimur hlutum;
annars vegar fjölda kaupsaminga, þeir þurfa að vera margir, hins vegar því að fasteigna-
markaðurinn þarf að vera einsleitur innan svæðisins, t.d. er gert ráð fyrir því að
verðþróunin sé sú sama innan svæðis. Gert er upp á milli einstakra verðsvæða innan
3 3 6
Arbók VFl/TFl 2009