Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 69
Skrifstofan á fyrstu hæðina
Á árinu voru umfangsmiklar endurbætur gerðar á Verkfræðingahúsi. Fyrsta hæðin var
tekin í gegn og þar er nú aðsetur skrifstofunnar. Þá var gluggi í stigahúsi endurnýjaður.
Skýrslutæknifélagið flutti aðsetur sitt í Verkfræðingahús og leigir að hluta húsnæðið þar
sem skrifstofa félaganna var áður. Á starfsárinu höfðu eftirtalin félög og fyrirtæki aðsetur
í Verkfræðingahúsi: Verkfræðingafélag íslands, Stéttarfélag verkfræðinga, Tækni-
fræðingafélag íslands, Lífeyrissjóður verkfræðinga, Félag ráðgjafarverkfræðinga, Arki-
tektafélag íslands, Félag sjálfstætt starfandi arkitekta, Félag húsgagna- og innanhúss-
arkitekta, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Skýrslutæknifélag íslands, Iðnfræðingafélag
íslands, Byggingafræðingafélag íslands, Verkefnastjórnunarfélag íslands, Skipulags-
fræðingafélag íslands, Magnús Baldursson, lögmaður og Miðverk, tölvu- og kerfis-
fræðiþjónusta. Auk þess þjónustar skrifstofa félaganna Stéttarfélag byggingarfræðinga
og Stéttarfélag tölvunarfræðinga.
Samningamál, kjarakannanir og lögfræðiþjónusta
Viðsemjendum Stéttarfélags verkfræðinga fer fjölgandi með breytingum á rekstrarformi
fyrirtækja og gerð samninga er því fyrirferðarmeiri í starfi félagsins en oft áður. Ovissan
um þróun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í febrúar 2009 jók einnig á vinnu
við samningsgerð og voru skammtímasamningar gerðir við flesta viðsemjendur. Sá við-
snúningur sem varð á vinnumarkaði í hruninu í október snarbreytti síðan samningsstöðu
félagsins og félagsmanna. Sókn í bætt kjör snerist í vörn og keppist SV nú um að slá
skjaldborg um félagsmenn sem hafa orðið fyrir atvinnuskerðingu eða atvinnumissi.
Almennur vinnumarkaður
Verkfræðingar í SV eru nú vel á 14. Irundrað og starfa langflestir á almennum vinnu-
markaði eða um 1100. Kjarasamningur SV við verkfræðistofurnar innan Félags ráðgjafar-
verkfræðinga (FRV) er ráðandi um kjör langflestra á almenna markaðnum.
SV ásamt KTFÍ samdi við FRV um framlengingu á gildandi kjarasamningi í desember
2007 og launahækkun 1. janúar 2008 og var síðan samið aftur í júní 2008 með gildistíma
til 30. apríl 2009.
Aðrir kjarasamningar á almenna vinnumarkaðnum hafa verið gerðir við ohf.-fyrirtækin
sem hefur fjölgað undanfarin ár. Þessi opinberu hlutafélög falla undir lagarammann sem
gildir á almenna markaðnum þó að þau séu í eigu opinberra aðila. Mörg þeirra eru nú
innan vébanda Samtaka atvinnulífsins og á SA því aðild að gerð kjarasamninganna. Hið
sama á við um Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem er sameignarfélag. Ohf.-fyrirtækin eru
RARIK, MATÍS, RUV, Flugstoðir og mörg fleiri. Þegar hafa verið gerðir kjarasamningar
við OR og RARIK og gilda þeir samningar til ársloka 2010.
Opinber vinnumarkaður
Kjarasamningar við ríkið voru lausir vorið 2008 og lá þá fyrir að forsendur samninga á
almennum vinnumarkaði voru löngu brostnar. Verkfræðingar og tækmfræðingar stóðu
saman að samningagerð við ríkið ásamt lyfjafræðingum og mynduðu með BHM-stéttar-
félögum hóp háskólamenntaðra starfsmanna. Ein meginkrafan var að samið yrði til
skamms tíma þar sem óljóst væri hvernig málum lyktaði á almenna markaðnum og
náðist samningur um lágmarkshækkun og gildistíma til marsloka 2009.
Samningar voru lausir við Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög í vetrarbyrjun 2008.
Viðræður stóðu ekki lengi yfir, svo skömmu eftir hrun fjármálamarkaðarins. Fylgt var
6 7
Féfagsmáí V f I / T F í