Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 278
Reglugerðir
Til þess að glöggya sig enn frekar á þeim niðurstöðum sem hér hafa verið birtar er
nauðsynlegt að gera grein fyrir viðeigandi reglugerðarmörkum bæði hér á landi, sem og
í nágrannalöndunum. íslensk viðmið úr reglugerð um hávaða eru sett fram en auk þess
eru reglugerðarviðmið frá Danmörku sýnd til samanburðar.
í reglugerð um hávaða, nr. 724/2008 er að finna
mörk vegna umferðar ökutækja. Eftirfarandi tafla
sýnir mörk fyrir mismunandi tegundir húsnæðis,
sem jafngildishljóðstig vegið yfir sólarhringinn, sjá
töflu 2.
í Danmörku er notaður hávaðavísirinn Lcfcj), þar
sem den stendur fyrir day, evening, night. Með
þessu móti fær umferð að nóttu og kvöldi til aukið
vægi, en þá er að jafnaði minni umferð en á sama
tíma veldur hún meiri truflun samanborið við
umferð á daginn. Á þennan hátt er hávaði veginn
að deginum, kvöldi og nóttu til, þar sem refsigildi
5 dB leggst við gildið að kvöldi til en 10 dB að nóttu
til. Refsigildið fyrir kvöld, 5 dB, samsvarar að sér-
hver ferð að kvöldi til hefur sama vægi og 3,16
ferðir að degi til en 10 dB í refsingu samsvarar
10 bílferðum að deginum til. Tilgangurinn með refsiákvæðunum er að taka sérstaklega
tillit til næmis og truflunar af völdum hávaðans að kvöldi og nóttu til. Með þessum hætti
fæst betri mynd að hávaðaáraun og hljóðskynjun þar sem hávaði að kvöldi og nóttu til
hefur sérstaklega mikil áhrif á heilbrigði og líðan fólks. Tímabilin sem um ræðir eru
Dagur; 07-19, Kvöld; 19-22, Nótt; 22-07. Jafna 2 lýsir sambandi mælds dag-, kvöld- og
næturgildis og Lden:
, x
Tafla 2: Hávaðamörk vegna umferðar, jafngildishljóðstig yfir
sólarhring, LAeq24
Tegund húsnæðis Mörk vegna umferðar ökutækja
íbúðarhúsnæði á íbúðarsvæðum (ádu) LAeq24 Við húsvegg 55
íbúðarhúsnæði á verslunar-, þjónustu- og miðsvæðum 65
Dvalarrými á þjónustustofnunum þar sem sjúklingar eða vistmenn dvelja yfir lengri tlma 55*
Frístundabyggð 45
Leik- og grunnskólar 55*
•Hávaði utan við húsvegg má vera meiri ef tryggð er bein
aðfærsla útilofts um hljóðgildrur.
V------------------------------------------------------------------/
Á/™ = 101og
12.10^-+3-10Z'evm*,g+5 + 9.10^^^^
10________________10____________10
24
(2)
Leiðbeinandi hávaðamörk fyrir umferðarhávaða í Danmörku, Lden má sjá í töflu 3 hér að
neðan.
Samband Lden og LAeq 24 klst er breytilegt milli tilfella en þó má segja að þegar hávaði er
stöðugur yfir sólarhringinn þá gildi sambandið Lden~LAeq2i klst + 6,4 dB. Sambandið
verður flóknara þegar hljóðstig er mismunandi yfir sólarhringinn, [7]. Það sem flækir enn
frekar sambandið er að Lden og L„ eru skilgreind sem meðalárgildi við góð veðurskilyrði-
Auk þess má nefna að núverandi mælingastaðlar,
til dæmis fyrir umferðarhávaða, gera ráð fyrir
hægum meðvindi.
Við samanburð á þessum tveimur hávaðavísum sem
notaðir eru hérlendis og í Danmörku má sjá að rétt-
ari mynd fæst fyrir hávaðaáreiti í Danmörku þar
sem tekið er tillit til tíma sólarhringsins. Með því að
notast við jafngildishljóðstig LA eq eins og gert er á
íslandi, getur það gefið ranga mynd af raunverulegri
hávaðaáraun, t.d. þegar hljóðorkan er mikil og varir
í stuttan tíma líkt og hávaði frá snjóplógsbifreið.
Tafla 3: Leiðbeinandi hávaðamörk í Danmörku fyrir umferðar-
hávaða, [6].
Svæði Mörk vegna umferðar ökutækja (ádu) Lden Tómstundasvæði íopnu landi,
sumarhúsabyggð, tjaldsvæði. íbúðasvæði, dagheimili, leikskóla og kennsluhúsnæði, elliheimili, spítalar. Að auki græn svæði, svæði 53 dB
utandyra og garðar. 58 dB
Hótel, skrifstofubyggingar 63 dB
2 7 6
Árbók VFÍ/TFÍ 2009