Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 287
Áreitisflokkar og markagildi fyrir steypusamsetningu
I kafla 4 í EN206-1 eru skilgreindir 6 meginflokkar áreitis á steypu og er hverjum þeirra
skipt í undirflokka, alls 18 að tölu. I viðauka F með staðlinum eru tillögur að marka-
gildum fyrir samsetningu steypu fyrir hvern undirflokk miðað við að notað sé Portland-
sement (CEM I). Áreitisflokkarnir eru:
1. Engin hætta á tæringu eða öðrum skemmdum (1 undirflokkur: XO)
2. Tæring vegna kolsýringar (4 undirflokkar: XCl, XC2, XC3, XC4)
3. Tæring af völdum klóríða annarra en úr sjó (3 undirflokkar: XDl, XD2, XD3)
4. Tæring vegna klóríða úr sjó (3 undirflokkar: XSl, XS2, XS3)
5. Frostþíðuárun með eða án afísingarefna (4 undirflokkar: XFl, XF2, XF3, XF4)
6. Efnaárun (3 undirflokkar: XAl, XA2, XA3)
Fjölmörg CEN-ríki hafa fundið þörf á að einfalda þetta áreitisflokkakerfi. Einfaldasta
flokkunin sem kemur fyrir er: innandyra; utandyra, áreitið og mjög (efna-) áreitið.
Fjölmörg CEN-ríki hafa grúppað tvo eða fleiri skylda eða óskylda áreitisundirflokka
saman en þó ekki alltaf á sama hátt. Ástæðurnar sem gefnar eru fyrir grúppuninni eru
breytilegar en eru m.a.:
• Einföldun á kerfinu til að mæta staðbundnum þörfum;
• Einn áreitisflokkur fyrirfinnst ekki án annars í staðbundna umhverfinu;
• Ekki er auðvelt fyrir hönnuð að skilgreina eitt áreiti umfram annað;
• Mismunandi undirflokkar áreitis leiða til sömu tæknilýsingar fyrir steypu.
CEN-aðildarríkin hafa mörg hver sett í þjóðarákvæði svipuð eða sömu markagildi fyrir
steypusamsetningu og eru í EN206-1 viðauka F varðandi vatnssementstölu, sements-
innihald og þrýstistyrksflokka. Hér á landi þurfum við enn um sinn að fara eftir
ákvæðum Byggingarreglugerðarinnar, þar eru þó ekki ákvæði um steypustyrk en ákvæði
eru um sementsinnihald, vatnssementstölu og loftinnihald steypu þar sem hætta er á
niðurbroti vegna frosts og þíðu, sbr. grein 131 í Byggingarreglugerðinni:
• 131.7 / útisteypu, sem verðurfyrir veðrunaráhrifum en er að mestu laus við saltáhrif skal
sementsmagn vera a.m.k. 300 kg í hverjum rúmmetra af steinsteypu. Vátnssementstala
(v/s) skal vera minni en 0,55. Blendiloft skal vera a.m.k. 5% mælt réttfyrir niðurlögn. Ef
steypu er dælt á byggingarstað skal mæla loftinnihald eftir dælingu. Að öðrum kosti skal
loftinnihald vera 2% hærra.
• 131.8 í útisteypu, sem verður fyrir miklum veðrunaráhrifum og verulegum saltáhrifum,
skal sementsmagn vera a.m.k. 350 kg í hverjum rúmmetra af steinsteypu. Vatnssements-
tala (v/s) skal vera minni en 0,45. Blendiloft skal vera a.m.k. 5% mælt réttfyrir niðurlögn.
Ef steypu er dælt á byggingarstað skal mæla loftinnihald eftir dælingu. Að öðnun kosti
skal loftinnihald vera 2% hærra.
Almenn og víðtæk sátt ríkir hjá CEN-ríkjunum um þá meginreglu að flokka steypu eftir
áreiti eða niðurbrotsöflum sem áætlað er að hún verði fyrir. Samt sem áður virðist þörf
vera á að endurskoða áreitisflokkunina í þeim tilgangi að athuga hvort möguleiki sé á
einföldun. Bent er á nauðsyn þess að breytingar á áreitisflokkun og endingarhönnun ætti
að samræma hönnunarstöðlum, m.a. varðandi steypuhulu á bendistáli, sprungubend-
ingu o.fl. Tafla 1 sýnir hvernig Norðmenn hafa grúppað áreitisflokka saman og búið til
svokallaða endingarflokka steypu.
Tækni-og visindagreinar
2 8 5