Þjóðmál - 01.06.2010, Page 118

Þjóðmál - 01.06.2010, Page 118
116 Þjóðmál SUmAR 2010 Íslandsveiðar Frakka voru stór kapítuli í okkar þjóðarsögu algerlega órannsakaður . Vigdís dóttir hans, franskmenntuð, hafði fundið fyrir þessari vöntun líka og haft áhuga á málinu . Faðir hennar hvetur hana nú til að taka sér hvíld frá kennslu og fara út til Frakklands og glugga þar í franskar skýrslur, dagbækur og dagbækur skipa . Þar voru náttúrulega mestar heimildirnar að sækja í skýrslur sjóliðsforingjanna á eftirlits ­ skipunum . Þeir færðu skilmerkilega skýrslur um ganginn í skútumennskunni á Íslands mið um . Þarna grúfði blessaður forsetinn okkar sig yfir rykföllnum skjölum inni á rykfölln um söfnum með borgarlífið iðandi utan við gluggann . Ég sá hana fyrir mér unga og fallega konuna í blóma lífsins í þessu grúski og annar lega umhverfi . Nú hefur forsetinn líklega séð að ég var að hugsa, því erfiðleikarnir við það koma alltaf fram á andlitinu á mér, það herpist allt við áreynsl una . Forsetinn hefur getið sér til um spurningu mína . Hann sagði án þess ég spyrði, að hann hefði verið orðinn þreyttur eftir erfið kennslustörf í tíu ár, og þurft að hvíla sig frá þeim . Svo þegar faðir Vig­ dísar hvatti hana og sagðist myndi styrkja hana til þessa verkefnis, tók hún því fegin, því að einnig henni lék forvitni á þessum Íslandsveiðum Frakka, þjóðar, sem hún hafði sótt menntun sína til og hafði svo miklar mætur á, og vildi auka sam­ band sinnar þjóðar við . Hún vissi að Íslands veið­ arnar höfðu verið þó nokkuð mikilvægur þáttur í efnahagslífi Frakka, auk þess sem fyrr segir, að þennan þátt átti algerlega eftir að rannsaka í ís­ lenzku þjóðarsögunni . Þarna sat framtíðarforsetinn við þessa iðju vet­ ur inn 1970–1971 og var alltaf að rekast á sitt hvað forvitnilegt og fróðlegt í frönskum gögnum . Forsetinn á í sínum fórum mikinn búnka af minniskompum og minnislöppum, en þar er allt ritað á frönsku . Ég kann ekki annað mál en bolvísku og talaði hana við forsetann, og hann var þar heima, því að hann kann einnig það mál eins og svo mörg önnur, enda er vísa séra Þorvaldar, afa forsetans, ort á því máli fornu; amma mín hét Valgerður, og hana nefndi afi ævinlega Valgerdi . Og svo er það hart við ef voði steðjar að . Ég færði vandann á hendur forsetanum sjálfum og spurði: – Hvað ber manni að segja þegar forseti þjóðarinnar segir „sæll og blessaður“? – Nú, sæl og blessuð! (Það geta fleiri verið snarráðir en sjómenn .) Svo brosti forsetinn og brosið byrjaði í aug­ unum eins og það bros gerir jafnan sem kemur innan frá, og breiddist út um andlitið og þaðan í gegnum brjóstkassann á mér beint inn í hjartað, þar sem það hreiðraði um sig . Ef ég hefði verið snjókarl hefði ég bráðnað í poll við fætur forsetans . Ég fann forsetaveikina læsast um mig . Þú vildir tala við mig um franskar skútur, sagði forsetinn . Nú kom sér aftur vel að forsetinn sá ekki hvað ég hugsaði . Ekki að það væri neitt ljótt, en líklega ekki fremur passandi en hið fyrra . Það var nefnilega rétt komið fram á varir mínar: „Nei, það vil ég alls ekki lengur,“ en ég náði því og jánkaði forsetanum . Skútur voru það sem ég þurfti að ræða um við hann . Og forsetinn bauð mér inn á skrifstofu sína og setti mig þar niður í stól og settist gegnt mér hinumegin í skrifstofunni . Við kölluðumst á og ég var öruggur með allar mínar hugsanir og hefðu þær þó vel mátt koma í ljós, því að ég hugsaði allt gott um forsetann og því meira sem lengra leið á samtalið . Fróðleikur hans var mikill um franskar skútur og franskt skútulíf, og hann blandaði frásögn sína skemmtilegheitum . Ég væri ekki hissa á því, þótt forsetinn sækti það til hans afa síns, séra Þorvaldar í Sauðlauksdal, sem orti þessa vísu upp á vestfirsku þegar hann fékk orðu: Fálkatyrdill fenginn er, feikna virding telst mér það, en svarið yrdi ördugt mér, ef þú spyrdir fyrir hvað . Það hljóta að hafa leynst drjúg skemmtileg heit undir hempu þessa karls . Finnbogi Rútur Þorvaldsson var alinn upp í Sauðlauksdal og þekkti til Fransmanna . sem leituðu mikið inn á Patreksfjörð eins og alla Vestfirði og Finnboga hefur verið ljóst að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.