Vísir - 24.12.1940, Page 1
*
30. ár.
JÓLABLAÐ
Reykjavík, þriðjudaginn 24. desember
1940.
I
MARÍA MEY MEÐ JESÚBARNIÐ
Jól, 1940 — — Stríðið geysar enn í Evrópu, Asíu og Afríku, en kristnar þjóðir um heim allan halda hátíðlegan fæðingardag Frelsar-
ans — friðarkonungsins. Á mynd þeirri, sem hér birtist að ofan og er af málverki eftir Sandro Botticelli, er María mey með Jesú-
barnið. Myndin er táknrænt meistaraverk og harmsaga er boðu ð í henni. Engillinn til vinstri handar heldur á kornöxum og vín-
þrúgum — sem tákna brauðið og vínið, sem neytt var við kvöldmáltíðina síðustu, rétt fyrir krossfestingu Iírists. Jesú-barnið blessar
þessi örlagaþrungnu tákn með uppréttri hendi. — Botticelli var frá Florens, en málverk þetta gerði hann árið 1468. Það er kallað
„Chigi — Madonna“ til heiðurs verndara Botticellis, Chigi greifa. Frummyndin er í Gardner-safninu í Boston.
•••