Vísir - 24.12.1941, Qupperneq 9

Vísir - 24.12.1941, Qupperneq 9
JÓLABLAÐ VÍSIS 9 nngshöll úr steini í Bergen, höll, sem fullnægði kröfum tímans, samboðna virðingu konungsvaldsins, svo að eigi þyrfti að halda til í skipanaustum er stórvéizlur skyldi lialda og taka á móti er- lendum þjóðhöfðingjum og öðrum tignum gestum. Hann kallar til sín færustu smiði i hinni unggotnesku hyggingarlist, og þeir hafa ekki fengið að „liggja á lötu hliðinni", því 14 árum síðar, 1261 er kóngshöllin fullgerð. Þá stóð til önnur meiri háttar veizla, sem sé 'brúðkaup Magnúsar Hákonarsonar og Ingibjargar dóttur Danakonungs. Var Magnús um leið krýndur, því nú skyldi hann stjórna ríkinu með föður sínum. Sextán hundruð gestir sátu veizluna, 11. september 1261, og er það talin hin mesta veizla sem þá hafði verið haldin i Noregi og lengi síðan. Mátti liver velja það er hann vildi drekka og skorti vín eigi frekar en annan drykk, að því er Sturla segir. 1 steinhöll- inni sátu kóngarnir, erkibiskup og biskupar, Knútur jarl, lendir menn, hirðmenn og annað stórmenni. í timburhöllinni sátu drottn- ingar, ásamt fylgdarliði sínu, en kaupmenn, erlendir menn og borg- arar Björgynjar sátu í jólahöllinni. Þetta var vigsla Hákonarliallarinnar, en síðar er getið um marg- ar veizlur og stórar, sem þar voru haldnar, ekki sizl brúðkaup, því Hákon konungur átti útgengilegar dætur. Var ein þeirra Cecilia, er átti Harald Suðureyjakonung. En samvist þeirra varð stutt, því skip það, er fhitti þau lieimleiðis, týndist með allri áhöfn og þótti það liinn mesti mannskaði. Önnur dóttir hans var Kristín, sem giftist Filippusi konungi á Spáni. Segir Sturla ýtarlega frá ferð hennar þangað suður, yfir sjó og land, með fjölmörgu fylgdarliði, undir forustu séra Ferants og Þórlaugs bósa. Kemur sú frásögn Sturlu mikið við sögu liallarinnar, eins og síðar verður vikið að. Um langt skeið mátti segja að Hákonarhöll væri nokkurslconar miðdepill rikisins norska, við hátiðleg tækifæri. En tíminn stendur aldrei kyr og allt er breytingum undirorpið. Smátt og' smátt færðist þyngdarpunktur rikisins austur á við og Osló varð aðal borgin. Og að siðuslu komst Noregur undir vald Danalconunga. Kóngsgarðurinn í Bergen stóð eftir auður og forfall- inn og Hákonarhöllin niddist niður. Um 1600 fellur þakið og annar gaflinn hrynur, en nokkuru síðar er liinn gaflinn rifinn. Höllin var gerð að nokkurskonar vígi og fallbyssum komið þar fyrir. Hundrað árum síðar er hún þó aftur komin undir þak. Þá er hún notuð til korngeymslu, sem „pakkhús", — á okkar máli sagt —, og neðri hæðin sem dýblissa. Saga hennar er þá með öllu gleymd og enginn lifandi maður veit að hin forna frægð, sem nú var fallin i gleymsku og dá, þar eins og hér, liefði fyrrum átt heima innan þessara köldu gráu alsvörtu veggja. Er harla undarlegt að hugsa lil ])ess að konungshöll, slærsta hús fjölmennrar höfuðborgar, skuli geta „týnst“ og gleymst i nálega þrjár aldir. ----o----- Eflir 181 1 tekur Noregur að rumska að nýju og Norðmenn fara að hugsa um fyrri frægð og sögu þjóðarinnar eftir lestur konunga- sagna Snorra og Sturju. Árið 1839 finnst svo hin lýnda Hákonar- tiöll aftur. Þá um sumarið var listmálarinn I. C. Dahl staddur i Bergen og gekk um göturnar og skoðaði húsin og borgina, ásamt kennara sinum Lyder-Sagen. Honum varð starsýnt á gamla pakkhúsræfil- HíikonarhöII a'ð innan. Á Þýzkubryggju í Bergén. inn og þurfti ekki lengi á það að liorfa, til að fullvissa sig um, að veggir þess voru byggðir í ung-gotneskum stíl og um, að hér væri um merkilega byggingu að ræða, sem þekkt hefði belri daga fyrr- um. Af þeim gögnum sem fyrir lágu í liinum gömlu veggjum og af rökum er gamlar sögur geymdu, sem íslendingar liöfðu —- góðu heilli — skráselt, dró hann fram þá fullyrðingu, að hér væri hin gamla höll er Hákon konungur lét reisa á árunum frá 1247—61, á mestu veldistímum norska ríkisins. Um þessa uppgötvun sina skrifuðu þeir Dahl og Lyder Sagen í timaritið Urð og tveim árum síðar kemur Dahl fram með tillögu um viðgerð á hinni gömlu konungshöll i Bergen. Vakti sú tillaga ekki milda eftirtekt lil að byrja með, en smátt og smátt óx lienni fylgi meðal skörunga þjóðarinnar. Öndvegisskáld Norðmanna, Wergeland, lagði henni lið sill og ennfremur Henrik Ibsen. En lil framkvæmda þurfti mikið fé, þvi höllin var illa með farin. Hér þurfti að rífa viðbætur síðari tíma og færa höllina í sína fornu mynd, en það var kleift, því gotneska byggingarlistin hvilir á grund- velli strangra stærðfræðilegra reglna. Verkið var þó ekki hafið fyrr en 1880, undir umsjón þriggja byggingameistara. 1895 var viðgerð- inni lokið og liafði liún kostað 250 þúsund krónúr. Nú stóð þar höll Hákonar gamla á ný, í slað pakkhússins, fögur og einföld að sjá hið ytra, stærsta hús Noregs, þegar frá er talin dómkirkjan i Þrándheimi. En livernig var liún að sjá þegar inn var kpmið? Það urðu mörgum vonbrigði. Inni var bert og kuldalegt, eins og salurinn væri auður og tómur. Veggirnir hvitkalkaðir, en gluggaumgerðirnar úr blágráum tálgusteini. „Svona liefir höllin verið“, sögðu menn er þeir sáu hana að utan. En „svona hefir hún ekki verið“, hugsuðu margir þegar þeir komu inn. Nú vita menn, að hallarkvnni voru áður búin allskonar skrauti. „Húsið var allt tjaldað með steindum klæðum og góðum kulltum með silki og pellum gullskolnum“, segir Sturla Þórðarson, um hús það sem Ilákon konungur gekk i að aflokinni krýningu sinni. Og ekld mun þurfa að draga i efa að hann muni hafa lálið skreyta hölt sina fagurlega cr hann vildi sýna innlendum og erlendum mönn- um Ijóma og vcldi konungdæmis sins. Allir voru sammála um að svona ber og köld mætti liöll Ilá- konar ekki slanda. En hvernig átti úr að bada? Ivom þá fram uppástunga um að leita til málarans Gerhard Munlhes og fá hann til að klæða liöllina að innan og lála hann ein- an öllu ráða. Iíann var þá orðinn víðkimnur listamaður, sem hafði valið sér niörö viðfanssefni úr fornum sögnuni norsku þjóðarinnar og Jeyst svo ur þeim að af bar. Einkum þóttj mjög lil þeirra skráutmálverka koma sem hann hafði gert og byggt á grundvelli norskra þjóðsagna. Gerhard Munthe mættu margir kannast við hér á landi vegna allra þeirra mynda sem hann hefir teiknað í útgáfu Norðmanna og kpnungasögum Snorra Sturhispnar. 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.