Vísir - 24.12.1941, Side 56
56
JÓLABLAÐ VÍSIS
ef að Sankti-Pétur vildi ekki nú
viðurkenna að dómur hennar
um mannkrílin væri á rökum
byggður, — þá var liann meiri
þverhaus en nokkurt tröll hafði
nokkuru sinni verið. —
Sankti-Pétur nam staðar hjá
púltinu undir stafnglugganum
og tautaði svo lágt að tröllkon-
an aðeins heyrði.
— Elcki vantaði að þeir mess-
uðu og syngju----------nei, ó-
nei, — það vantaði ekki. —
Eða þá annirnar og ysinn; und-
irhúninginn, auglýsingarnar og
gjafirnar.-------En hvað voru
þeir margir, sem sáu jólin fyrir
jólunum!-------
Skyndilega greip hann liönd-
um fyrir eyru sér og svipur hans
varð æðislegur af skelfingu. —
Sprengjurnar! — æpti hann. —
Spreng j urnar, neyðarópin,
kvalaveinin, dauðastunurnar,
— — — morðfýsnin og
grimmdin! — Og hann stappaði
niður fótunum af ofsa.
Hann tók að æða um gólfið.
— Þessir menn,— þessir vesælu,
vanþakklátu aumingjar, — taut-
aði hann. Tröllkonan gat ekki
varist brosi. — Og þó,--------
hafði hún samt ekki á stundum
í þessari för, fundið til einhverr-
ar óskiljanlegrar samúðar-
kenndar með Jiessum vansælu
aumingjum, sem virtust eiga þá
ósk eina og æðsta, að tortíma
hverir öðrum, —- kvelja hver
annan, — eyðileggja sjálfa sig
á sem fljótvirkastan og hrylli-
legastan hátt? — Jú, þrátt fyrir
allt voru þeir samúðarverðir.
Það var engu líkara en Sankti-
Pétur læsi hugsanir hennar. —
Já, það er einkennilegt að
manni skuli þó ekkiv þrátt fyrir
allt, vera annað auðið, en að
elska þá, — sagði hann, um leið
og hann nam slaðar við púltið
á ný, opnaði það og tók upp úr
l>ví stóru kálfskinnsbundnu bók-
ina með látúnsspenslunum.
Hann lokaði siðan púllinu,
tók kálfskinnu undir Iiönd sér,
lagfærði á sér trefilinn og lét á
sig vetllingana.
— Þú hinkrar við hérna i
kotinu dálítinn tima, kona góð,
— sagði hann við tröllkonuna.
— Eg ætla að skreppa liérna
austur yfir og hitta húsbænd-
ur mína að máli. Það er ekki
óvíst að mér takist að sannfæra
þá um, að hún kálfskinna mín
þurfi athugana við. — Þú gerir
svo vel og gefur gætur að heim-
alningnum á meðan. —
Þar með var hann farinn.
Tröllkonan heyrði að liann
kallaði á seppa litla.-------
^----------------------
GLEÐILEG JÓL!
Daníel Ólafsson & Co. h.f.
..............
KAFFISOPINN
INDÆLL
ER