Vísir - 24.12.1941, Blaðsíða 63
•TÓLABLAÐ VlSIS
63
mikið. 2080, svarar hann. „Og
hvað eru tíu við það“? „2090“,
svarar kunningi. „Og hættu enn
einu sinni tíu við og hvað
færðu þá?“ — „3000“, segir
kunningi, en þar í liggur villan,
því tíu við 2090 eru 2100 en
ekki 3000. Þetta er ósköp ein-
falt dæmi, en þó er auðvelt að
villa fólk með þessum spurn-
ingum.
Þrautir
Slökktu ljósið.
Það er kveikt á kerti og kert-
ið látið á horð einhversstaðar
i miðju herberginu. Nú er bund-
ið fyrir augu einhvers þeirra,
sem viðstaddir eru, eftir að
Iiann hefir verið leiddur að
kertaljósinu, sem liann á að
slökkva. En áður en liann blæs
á ljósið, á hann að ganga —
auðvitað með bundið fyrir
augun — þrjú skref aftur á
bak, snúa sér þrjá hringi með
miklum hraða, ganga siðan
þrjú skref áfram og blása þaðan
á Ijósið.
Sjáið þið til Iivort honum
tekst það.
Að reisa við flösku.
Þessi þraut •útheimtir ekki
önnur áhöld en eina tóma
flösku — flösku, sem lögð-er á
slétt gólf. Verkefnið og vandinn
er að reisa hana upp af gólf-
inu með öðrum fæti', eins og
sýnt er á myndinni.
Vélarþraut.
Hér er þraul, sem vélfræð-
ingarnir i fjölskyldunni og vafa-
laust margir fleiri hafa gaman
af að spreyta sig á: Hvaða lóð
fara upp og hvaða lóð fara nið-
ur, þegar maðurinn togar í
handið?
Svör í næsta Sunnudagsblaði.
Að finna til með, skeiðum.
Þessi samkvæmisleikur vek-
ur allajafna fögnuð meðal þátt-
takenda. Þeir sitja í hring eða
1 i
hálfliring á gólfinu, en bundið
er fyrir augun á einum og
honum fengnar tvær trésleifar
í hendur. Með þessum sleifum
á hann að þreifa fyrir sér, unz
hann þekkir einhvern. Sá, sem
þekkist, tekur þá við af honum,
og svo koll af kolli. Þess skal
getið, að þátttakendur mega
skipta um sæti.
Eldspýtnaþraut.
Á myndinni sjáið þið sex fer-
hvrninga. Þeir eru búnir til úr
17 eldspýtum. En hvern.ig farið
þið að því, að láta þrjá ferhyrn-
ingana vera eftir með því að
taka burlu 5 eldspýtur?
Svai' i næsta Sunnudagshlaði.
Véiðarfæri-Ú tgerðarvörur
Vélaliéttin^ar — Verkfæri
Málningarvörur - Tjörur - Bátaverk - Bik
*
Fatnaður fyrir sjómenn og verkamenn
VERZLUN O. ELLINGSEN H.F.
(Elzta og stærsta sérverzlun landsins). — Símnefni »Ellingsen, Reykjavík«