Vísir - 24.12.1942, Qupperneq 10
10
JÓLABLAÖ vísís
iftlwiiv.ltfl
að kenna drengnum að kalla sig frænda þegar í stað, er nokkur
tiltök voru til þess að koma þeim litla til að segja nokkurt orð.
----o----
Að ýmsu ieyti var þetta eitthvert liið versta sumar, sem „dunið
hafði yfir“, sögðu margir menn. — Þó var veðrið sæmilega gott,
meðalsumar — hvað það snerti. — En það var kreppa. ísland var
komið svo nálægt umheiminum, að hver kotungur talaði nú um
kreppu, „fall“ krónunnar, gjaldeyrisskort o. s. frv. eins og þetta
væri fyrirbrigði, sem hann hefði þekkt frá hlautu harnsheini,
eitthvert ógurlegt, óviðráðanlegt böl. En menn athuguðu það fæst-
ir, að frá ómunatíð hafa kreppur hvergi á byggðu bóli verið tið-
ari en á íslandi. Svo tíðar liafa j>ær verið, að heilir mannsaldrai'
liafa liðið án þess að skipti skúrum, — það hefir verið ein sam-
anhangandi kreppa óstjórnar, einokunar og kúgunar. —-
En nú vor.u menn hér allt í einu orðnir svo menntaðir, að þeir
fundu lil j>ess, að þeir höfðu haft góða stjórn um stund — en að
léleg stjórn hafði svo tekið við völdum — og fært landslýðnum
kreppu, meðal annars.
Það sem athvgli manna beindist aðallega að, var ekki það,
hvernig ástandið vrði lagað, heldur hitt, hverjum þetta væri að
kenna. Fátæklingarnir, sem höfðu rumskast, og j>óttust með réttu
lika vera ménn, sögðu, að jætta væru afleiðingar kúgunar og
auðsöfnunar fárra manna. Efnuðu menniniir sögðu að það væri
heimtufrekju verkalýðsins að kenna, að framleiðslan gæti ekki
þrifizt. — Fjármálamenn og stjórnmálamenn skrifuðu og ræddu
um kreppuna, vitnuðu í erlenda spekinga og komu með sínar til-
lögur. Sá samvizkusamasti af þeim játaði hreinskilnislega frammi
fyrir alj>jóð, að hann botnaði álíka mikið í kreppuástandinu og i
vindinum — sem blési úr þessari áttinni í morgun en hinni í
kvöld. Með þessum einföldu orðum hafði j>essi góði maður borið
sannleikanum vitni, ekki einungis fyrir sína hönd heldur allra
hinna lika, •— Sannleikurinn var sá, að enginn botnaði neitt i
þessu, enda þótt hér væri aðeins gamla sagan að endurtaka sig:
Menn höfðu étið feitu kýrnar i góðærinu eins og j>eir höfðu svo
oft gert áður.
----o——
Þá var það, einn hlíðviðrisdag, síðla sumars, að Halldór Kjart-
an var úli í garði sínum, ásamt vini sínurn, snáðanum úr kjall-
aranum. Þeir voru þar að leika sér og mátti ekki á milli sjá, hver
skemnrti sér belur. Sólin skein á ]>á og ]>að var logn á þeim, þótt
norðankaldi væri á bersvæði. Skjólið var svo gott á milli trjánna,
opið fyrir suðvestan sól, en lokað móti norðri. —
■ Þetta sumar hafði Ilalldór lítið verið við störf í skrifstofu sinni,
liann fann að hann var þreyttur og hafði auk þess enga löngun
til athafna. Útgerð og umstang var fjarri huga hans, enda hafði
læknir ráðlagt honum að hvila sig að mestu og sleppa áliyggjum.
Honum ]>ótti gaman að þvi, að geta gtúskað í bókum sínum og
allmikill tími fór lil þess á hverjum degi að njóta samvista við
litla vininn, sem hann liafði eignast. Eftir lugi ára fann hann nú
Ioks til ánægju, — hinnar sönnu, rólegu gleði, sem einungis getur
sprottið og blómgast hjá þeim, sem elska. Ilinn aldraði maður
hafði tekið ástfóstri við þetta fallega, skemmtilega barn. Þa'ð var
honum ómetanleg sóluhjálp og hann gerði sér það ljóst. — At-
vinnurekstur hans og viðskipti, vinna og ferðalög höfðu áður
verið hans andlegi matur og drykkur, — daglegt brauð sálarinn-
ar — og þótt liann hefði aldrei verið neinn harðjaxl í viðskiptum,
þá var það þó jafnan takmarkið, að gi'æða á öðrum. — En nú
hafði hamingjan sent honum þennan dreng. Hann gat kennl
drengnum að tala, kennt honum að skoða blómin, litfögur og
Ijómandi í sumardýrðinni, kennt honum að grípa bolta. Sýnl
lionum myndir í bókum og hvernig golan lék með lauf trjánna.
Hinn liyggni maður hrúgaði ekki leikföngum í vin sinn. Hann
gaf honum fá en góð leikföng; með því varð fögnuður barnsins
alltaf jafn, er eitthvað nýtt kom, með hæfilega löngu millibili.
Þannig hafði Halklór Kjarlan eignast gersamlega óeigingjarna og
unaðslega tíma —- hvíldarríkt líf eftir mikil störf, líf, sem ]>ó
var miklu fyllra en fortíðin hafði verið, allt frá þvi að konan hans
dó frá honum á unga aldri. —
Þá var það, þennan fagra dag, að Páll Kjartan, bróðir Ilalldórs
kom til hans á mjög óvenjulegum tíma. Páll var og hafði lengi
verið hægri hönd bróður síns og þetta vor og sumar hafði hin
þunga byrði og erfiði atvinnureksturs ]>eirra bræðra hvílt nær
þvi eingöngu á honum. Páll var fimmtán árum vngri en Halldór
og því maður á bezta aldri.
— Nei. — Komdu sæll Páll, sagði Halldór glaðlega. — Gaman
að þú máttir vera að því að líta til mín í góða veðrinu. — Hann
tók drenginn úr rólu, þar sem hann hafði verið að leika sér við
liann og gekk brosandi á móti bróður sínum. — En lieyi'ðu Páll,
hvað ósköp ert þú alvarlegur. Er nokkuð að heima hjá þér?
— Þakka þér fyrir, allir eru frískir heima.
— Hamingjunni sé lof, sagði Halldór. Komdu hérna, bróðir,
og seztu niður á þennan bekk.
Þeir bræður gengu að grasbekk og settust þar niður. Halldór
liélt á drengnum, sem horfði stórum augum á Pál.
— Já, sagði Páll, þegar í stað er þeir voru seztir niður. — Þú
hefir kannske frétt það síldin er enn fallin!
— Alikksi, Alikksi — sagði drengurinn og togaði í jakkakraga
Halldórs, en horfði á Pál.
Halldór hló við. — Hann kallar mig Alikksi, það á vist að vera
Halldór. — Þykir þér þetta ekki vera fallegur strákur? Hann er
vist eitthvað að spyrja mig um þig. — Ilann er fragndi okkar.
Páll hleypti brúnum lítið eitt.
-— Eg var að segja þér-------
— Já — já, alveg rétt, þú varst að segja að síldin væri fallin
ennþá. Við eigum talsvert mikla síld, þótt illa hafi gengið. Hvað
ætlarðu að gera?
— Það var einmitt þessvegna að eg kom. Eg hringdi til þin,
en auðvitað svaraðirðu ekki.
— Alikksi, sagði sá lilli og benti með litlum, feitum fingri á
Pál. — Manni, manni! Hann leit hróðugur á Halldór. Hann hafði
komizt að þeirri mikilvægu niðurstöðu að þessi alvarlegi maður
væi’i „manni“.
— Alveg í-étt vinur — sagði Halldór — og heitir Páll.
— Áll — „manni“ heitir Áll!
— Skynsamur strákur, sagði Halldór. Hvað heldurðu að hann
sé gamall?
— Heyrðu' Halldór, sagði Páll. — Eg kom til þess að segja þér,
að síldin er ennþá fallin. í dag getum við fengið fyrir hana 52
krónur. 1 fyrradag voiu það 68. \Tið eigum, eins og þú kannske
veizt iim, tólf þúsund tunnur. Við þolum illa þetta tap.
— Þetta er nokkuð alvarlegt, sagði Halldór, tók klút upp úr
vasa sínuin og' þurrkaði dálitla vætu, sem komin var á efi'i vör
drengsins.
Það varð þögn, örlitla stund. Páll hafði lagt annan fótinn yfir
hnéð og dinglaði fætinum, óþolinmóður.
— Þú ert órólegur, Páll, sagði Halldór og leit bróður sinn. —
Þetta verður mikið tap, geri eg ráð fyrir.
— Tap! sagði Páll — ]>ú veizt sjálfur að það verður meii'a en
tuttugu krónur á timnu — ef við seljurn í dag. Og eg vil selja i
dag. Hann sló knýttum hægri handar linefa niður i lófann á vinstri
liendinni, svo að small í. —
— Alikksi, hrópaði snáðinn og klappaði saman lófunum. —
Delja í dag!
Halldór hló.
— Þú hlærð! sagði Páll og stóð á faétur. Þú getur hlegið,
þegar þú fréttir að mestur hluti af eignum þínum — og mínum
— er tapaður og liitt í veði eða meira. Og svo hlærð þú! Hvert
tapið eftir annað í meira en ár!
— Hvern þremilinn villu að eg geri, sagði Halldór Kjartan,
en var nú alvarlegur. Eg held að vinuri minn hérna, snáðinn
litli hafi á í’étlu að standa, — við seljum í dag. — Og nú varð
hann fullkomlega alvarlegur aftur, og stóð á fætur. — Á öðrum
handleggnum liélt liann á drengnum, en liina hendina lagði hann
á öxlina á bróður sinum.
— Eg veit að þelta er alvarlegur skellur fyrir þig Páll. En það
er ekki þér um að kenna. Eg álít, að þú hafir ekkert glappaskot
gerl í sumar, frekai’ en áður að þú hafir séð um þetta allt ná-
kvæmlega eins og eg hefði gerl - ef að eg hefði verið frískur.
Eg hefi enga trú á því að sildin hækki aftur — seldu ef þú getur.
Þú lítur svo inn til mín í kvöld. Vertu sæll Páll!
— Dæll Áll, sagði snáðinn.
Páll leit á hann, áhyggjusvipurinn Iivarf snöggvast af góðlegu
andliti hans, liann klappaði á vanga drengsins. Svo hraðaði
hann sér burtu.
En Halldór Kjartan settist afftur niður á bekkinn. Sólin skein,
mild og hlý á þá félága, geguum laufið.
— Já við seljum í dagsagði hann óg bi’osti.
— Delja í dag, Áll delja í dag, sagði snáðinn.