Vísir - 24.12.1942, Qupperneq 11
JÓLABLAÐ VÍSÍS
il
Sætaskipun fyrr á tímum
( Ur sagnaþáttum KRISTLEIFS ÞORSTEINSSONAR (ræðimanns á Stóra-Kroppi
Ein meðal þeirra mörgu breytinga, sem orðið hafa ú siðustu
timum, má telja uppgjöf á þeirri sætaskipunarvenju, sem hér
tíðkaðist allt frá því í fornöld og fram undir lok 19. aldar. Með
þessari sætaskipun, bæði í kirkjum og veizlum, var hverjum ein-
staklingi gefið til kynna, hvaða inælikvarði væri lagður á liann
af þeim, sem liöfðu það verk á hendi, að skipa gestum i sæti.
Það liggur því í augum uppi, að þetta var mat, sem ýmist gladdi
eða hryggði viðkvæmar sálir, eftir því, hvort þær töldu sætið
samboðið virðingu sinni eða ekki. 1 veizlum var það í höndum
hins svo kallaða frammistöðumanns, að vega og meta gildi manna
og skipa þeim í sæti; en í kirkjum höfðu px-estar mestu að ráða
i þeim efnum.
Fram yfir 1870 var engin timburkirkja hér í Borgarfirði. All-
ar hinar gömlu torfkirkjur voru með líkri gerð: Kór, afmark-
aður með skilrúmi og föstum bekkjum allt í kring, en í fram-
kirkjunni voru þverbekkir eins og enn tíðkast. Kórinn var ætl-
aður bændum einum, og álti þar hver bóndi sitt ákveðna sæti.
Mestu virðingamenn sóknarinnar sátu silt við hvort altarishorn
og gekk svo virðingin niður á við, eftir því, sem framar kom í
kórinn og allt að kórstöfum, en svo nefndust stuðlar þeir, sem
voru við inngang úr framkirkju í kói inn. 'Vel þótti það sæma for-
söngvara, að sitja við kórstaf. Var þar virðingarsæti. Gert var
ráð fyrir þvi, að fleiri kirkjugestir gæti orðið en það, að þeir
rúmuðust í hin föslu sæli í kórnum; yoru því lausabekkir þar til
vara, sinn lil hvorrar liliðar. Ungir, en fullvaxnir, bændasynir,
gátu fengið sæti í kór, einkum ef þeir voru sönghæfir, en væru
föstu bekkirnir fullskipaðir bændum, ]>á voru lausabekkirnir
ætlaðir þeim. Ekki þótti það sæma, að maður og kona sætu
saman i kirkju og eins þó að um lijón væri að ræða. Öll sæti
norðan megin i kirkjunni voru einungis ætluð kvenþjóðinni, og
þrjá innstu bekki að sunnanverðu skipuðu konur. En áðrir
bekkir sunnan megin voru ætlaðir vinnumönnum og drengjum.
Loft var yfir nokkrum hluta framkirkjunnar með lausum bekkj-
um. Þar var öllum heimill aðgangur að sætum, án allrar niður-
röðunar. Völdust oft þangað gáskafullir menn og léttúðugir —
ásamt unglingum. Var og stundum ekki trútt um, að þar bólaði
á glettum og alvöruleysi, en slikt mæltist ætíð illa fyrii*.
Þessi fastbundna sætaskipun í kirkjum hefir víst verið algild
regla hér á landi um margar aldir. Sanna það slcýrslur úr kirkju-
sóknum, þar sem fólk er talið með nöfnum og gerð grein fyrir
því, hvar hver og einn mátti sitja í kirkjunni. Yngsta skýrsla
um þá hluti mun vera úr Sauðlauksdal, frá 1848. önnur enn
itarlegri er og til frá Garði i Kelduhverfi.
Hafa sóknarprestar eflaust verið alveg einráðir um þetta mat
á manngildi sóknarharna sinna, sem byggðist víst að mestu á
ytri ástæðum.
Næstar liúsfreyjum, eða aftur af þeim, máltu betri bænda-
dætur sitja, þá frómar vinnukonur og fátækra-bænda-dætur, en
í krókbekkjum, fremst í kirkju, átti fólk það að sitja, sem að
dómi prestsins átti enga verðleika skilið. Yfirleitt mun fóllc
hafa tekið þessu með þögn og þolinmæði, og þó mest vegna þess,
að ]>á var eins og heilög skylda að hlýða boðum presta i einu og
öllu. Nokkuð mun það liafa verið misjafnt, hvað prestar fylgdu
stranglega þessari sælaskipan, en bezt gátu þeir neytt sin i
þessum sökum, ]>egar kirkjur voru endurbyggðar.
Hinn nafnkunni prestur, séra Þorsteinn Helgason, sem var
í Reykholti frá 1833 til 1839, lét reisa þar kirkju, sem hæði
var slór og sterklega byggð. Bar hún þá mjög af öðrum kirkjum
i Borgarfirði. Hún var með hliðarveggjum úr torfi, en gaflar
og þak úr timbri, tjörubikuðu. Yfir sáluhliði var lítil livelfing
úr timbri fyrir kirkjuklukkurnar, og nefndist það klukknaport.
Kirkja þessi stóð í fimmtiu ár, eða til ársins 1886, en þá var sú
kirkja reist, sem hér stendur nú. Var liún vígð ári siðar af Guð-
mundi Helgasyni, sem þá var þar prestur.
Aður en séra Þorsteinn Helgson vigði kirkju þn, sem hann
Kristleifur
Þorsteinsson
lét reisa, úthlutaði hann sætum lianda öllum bændum og hús-
freyjum í sókninni. Ritaði liann nöfuin fyrir ofan bekkina. Eftir tik
visan meðhjálpara fann svo liver sitt úthlutaða sæti, sem liann svo
liélt upp frá þvi, meðan liann lifði i sókninni. Með tið og tima
breyttist ]>etta nokkuð, en alla þá tið, sem kirkjan stóð, eimdi
eftir af ]>essari sætaskipan. Norðan megin í frainkirkju máttu
karlmenn aldrei setjast og í kór vogaði sér enginn óboðinn að
ganga, nema sóknarbændur.
Lengi tíðkaðist það hér um Borgarfjörð, að fólk riði i stór-
liópum í utansóknarkirkjur, einkum um hásumai'ið. Mesl bar á
utansóknarfólki í Reykholti, bæði af þvi, að þar voru oft
góðir og nafnkenndir prestar og kirkjan vel í sveit sett. Gat utan-
sveitarfólk stundum orðið svo margt, að kirkjan rúmaði ekki
nema nokkurn hluta þess. Kom þá í hlut meðhjálpara, að svip-
ast um meðal ulansveitarfólksins og vita hvort þar væri ekki að
finna meiriháttar menn, sem bæri sá heiður, að vera leiddir í
kór. Ein eða tvær heldri konur i sókninni áttu líka að sjá um
utansóknarkonur og velja þeim sæti, er samboðin væri virðingu
þeirra. Gekk þetta ekki þraulalaust, þegar á kirkjugólfi stóð mað-
ur við mann, og i gegnum alla þá þröng varð að troðast að
hinum samboðnu sætum. Minnist eg þess, að eg sá tvær konur
í Reykholtskirkju, aðra úr Flókadal, en hina úr Reyklioltsdal,
olnboga sig i gegnum mannþröngina með virðinga-gesti sína,
og þá orðnar sjallausar og sveittar af erfiðinu.
Ekki var ætíð auðsótt fyrir unga menn, að fá sæti i kór, þótt
þeir væri fulltiða og nokkuð að manni, einkum ef þeir voru
þurfamanna synir; en ]x» kastaði fyrst tólfunum, ef þeir voru
synir hrossakjötsæta. Á þeim árum þólti það ganga glæpi næst,
að éta hrossakjöt, og var þeim og jafnvel niðjum þeirra lítil
viðreisnarvon í augum fjöldans. Kusu því flestir heldur, af tvennu
illu, að líða hungur, en gera sig seka i óhæfúnni. Þó voru menn
til, sem brutu þessi boðorð. Meðal þeirra var bóndi einn á Búr-
felli í Hálsasveit, sem Svemn hét, Yigfússon. Hann var refaskytta
og gæða karl, en til þess að forðast sveit, eins og það var orðað,
bjargaði hann sér og sínum með þvi að nevta hrossakjöts, sem