Vísir - 24.12.1942, Page 52
52
JÓLABLAÐ VISIS
....- —*--
við að fara að sjá Öræfajökul,
Máfabyggðir, Esjufjöll og Suð-
ursveitarfjöllin, en til þess þarf
skyggni auðvitað að vera gott.
Kl. 10 um kvöldíð tjölduðum
við. Þá höfðum við gengið 15—
18 km. SV gola var og skyggni
ágætt. Skiðastafina notuðum
við til }>ess að hæla niður stög'-
in og hlóðum varnargarð kring-
um tjaldið, ekki var að vita
nema veðrið hreyltist og þá viss-
ara að húa vel i haginn. Síðar
um kvöldið og nóttina hvessti
litið eitt, annars hélzt sama góða
veðrið.
Við sváfum vel um nóttina og
lengi frameftir. Leiðinlegt var
að sjá hvernig hinir hlýju sunn-
anvindar, sem gengu yfir jökul-
inn, voru búnir að fara með
varnargarðinn okkar. Hann var
sundurtærður og víða fallinn.
— Það geysar ekki óvejður á
Vatnajökli núna. Hvað veðrið
getur verið fagurt. Gaman væri
að vera kominn upp á Kverk-
fjöll, þessi höfðinglegu, fallegu
f jöll, sem gnæfa hátt yfir hjarn-
breiður Brúarjökuls og Dyngju-
jökuls, tveggja mestu skriðjökla
landsins. Við heimsækjum þau
væntanlega næsta sumar. Og þá
held eg að Snæfell þurfi að fá
heimsókn við tækifæri, á þeim
slóðum er vist ekki gestkvæmt.
Það tók tima að koma sér af
stað, eins og vant er, þó vorum
við komnir á skíðin um hádegi.
Nú voru bakpokarnir lítið eitt
léttari, við skildum eftir mat,
það var fyrirsjáanlegt,-að veðrið
yrði gott }>ennan daginn. í dag
ætluðum við langan áfanga, ekki
að tjalda fyr en við Esjufjöll,
þá töldum við okkur lausa við
aðaljökulinn, sem nú lá fram-
undan og til heggja handa, svo
langt sem augað eygði. Sólbráð
var um daginn og færi því
þungt. Þegar heitast var sáum
við græn-hláa bletti hér og þar;
reyndust það vera krapatjarnir,
sem láu í smádældum. Þessar
tjarnir töfðu okkur þó ekkert og
megum við þakka það skíðun-
um, og þegar við nálguðumst
háhunguna hurfu þær með öllu.
Breyttist þá færið jafnframt til
hins hetra. Um kl. 7 um kvöldið
sáum við á skallann á Öræfa-
jökli, þar sem hann gægðist
upp vfir hábunguna. Um svipað
leyti sást þurs einn mikill bera
við himin, austan við Öræfa-
jökul; þar voru Esjufjöll, og
samtímis komu í ljós eggjar
Suðursveitarfjalla, sem er mikill
fjallaklasi. Máfahyggðir gátum
við ekki greint fyr en síðar um
kvöldið. Stefnunni höfðum við
haldið réttri. En þó við grilltum
í Flóanum — aS sumarlagi.
í Esjufjöll, var huigt til þeirra
ennþá. Sólin hafði tíma til þess
að setjast bak við Bárðarbungu
og rísa upp aftur austanvert við
Kverkfjöll, áður en þangað var
komið. Færið stirðnaði um
kvöldið og varð þá ágætt. —
Kl. 4 um morguninn vorum við
komnir suður undir Esjufjöll.
Þar var tjaldað. Langur spölur
lá að baki, svo við áttum sann-
arlega skilið að hvíla okkur vel,
enda var það gert.
Við sváfum fram á miðjan
dag (sunnudag), þrátt fyrir
steikjandi hita, sem var í tjald-
inu, því úti var glampandi sól-
skin. Nú voruin við komnir í
annað umhverfi. Að haki okkur
lá lijarnhreiða Vatnajökuls, hin
mikia eyðimörk, þar sean
hvergi var hægt að rekast á auð-
an hlett. Hér er allt liulið jökli,
eins og áður, en miklu stórfeng-
legra, meira hrífandi, tilbreyt-
ingaríkara. í austri, ekki mjög
langt frá, eru Suðursveitarfjöll-
in, mikill fjallabálkur, tindóttur
og snæviþakinn víða, umgirtur
jökli. Sjálfur Öræfajökull blas-
ir við í SV, höfðinglegur álit-
um og trónandi yfir öllu, eins
og hann hefir löngum gert.
Og enn er lialdið af stað.
Klukkan er 8 að_ kveldi. Við ætl-
um að nota skugga næturinnar
lil lireyfings. Smá sprungubelti
er á vegi okkar; við fikrum
okkur yfir það á skiðunum. Síð-
an er haldið áfram austan i
Esjufjöllum. Nú opnast útsýn
yfir Breiðamerkurjökul á liaf úl.
Af Esjufjöllum sést ágætlega yf-
ír Breiðamerkurjökul, sem
steypist þar fram sinn hvoru
<Sm eru nokkrlr mögu-
leikar á aö útvega járn- og
trésmfðavélar frá Amerfku.
Talið þvf við okkur sem fyrst,
ef yður vanhagar um slfkar
vólar, eða snúið yður beint
til umboðsmanna okkar:
Messrs. J.V. Cremonin & Co.
i 21 Siate Street,
New York,
sem elnnlg geta útvegað
flestar aðrar vörur f Banda-
ríkjunum._______________
Sérgrein: SÍMNEFNI: „FERRUM‘ SI’MI 5296 P.O. BOX: 681
Allskonar vélar og verkfæri.