Vísir - 24.12.1942, Side 57
57
JÖLABLAÐ VlSIS
Samvinnumenn vilja samkeppni
í verzlun. — En samkeppnin á að
tryggja lágt vöruverð.
KRON hefst handa um nýja afgreiðslutilhögun, sem dregur úr dreifingarkostnaði.
Sjálfskipti.
Samkeppni milli verzlana er æskileg. Verzlanirnar
keppa um að gera kostnað sinn sem minnstan í hlut-
falli við söluna. Það á svo að koma neytendum til góða
í lægra vöruverði. Þó fær slík samkeppni fyrst fullt
gildi, þegar hún fer fram milli einkaverzlana annars
vegar og samvinnuverzlana neytenda hins vegar. Þá
fyrst er tryggt, að sparnaðurinn renni í pyngju neyt-
endanna. Séu einkafyrirtæki ein um verzlunina, sýnir
reynslan, að þau freistast til að gera með sér verð-
samtök. i : I i ■' i.
KRON hefir haft forustu um viðleitni í þá átt að
lækka dreifingarkostnaðifin, t. d. með því að koma á
pöntunarfyrirkomulaginu, bæta sölubúðimar þannig,
að vinnuafl sparist, og nota ýmiss konar áhöld,_sem
bæði spaya vinnu og draga úr vömrýrnun. Nú síðast
hefir Kron opnað nýja búð í tilraunaskyni, þar sem
ætlast er til, að viðskiptamennirnir afgreiði sig að mestu
leyti sjálfir. Er þá ætlað að spara talsvert mikið launa-
greiðslur og lækka þannig dreifingarkostnaðinn. Slík-
ar búðir em nú orðnar algengar í Bandaríkjunum, þar
sem samkeppni er mjög hörð.
KRON vill nú æskja samvinnu neytenda í þessu efni,
þannig að þeir taki nýunginni vel. Neytendum er hér
með gerður kostur á að efla eigin hag, með því að í sjálf-
skiptabúðinni éiga þeir aldrei að þurfa að bíða af-
greiðslu, og allur sparnaður af þessum nýtizku af-
greiðsluháttum rennur til þeirra sjálfra.
15