Vísir - 24.12.1942, Page 59
JÖLABLAÐ VÍSIS
59
KVEN FÓLKIÐ OG
jÓLIN
Skemmtilegur dúkur.
Er eitth\að sérstakt afmæli
hjá yður á næstunni eða skírn-
arveizla ? Þá skuluð þér fá yð-
ur reglulega þunnt og fínt lér-
eft eða eitthvað þvílikt efni.
þ'estið fallega blúndu í kring.
Saumið kannske smá „húll-
saum“ hingað og þangað. Þegar
gestirnir svo koma, biðjið þér
hvern og einn að gjöra svo vel
og skrifa nafn sitt á dúkinn.
Hver skrifar síðan þar sem
hann vill og svo þegar lieimilið
er komið í saml lag eftir veizlu-
höldin, setjist þér niður og
„bróderið“ öll nöfnin í mis-
munandi litum og setjið mán-
aðardagmn á dúkinn um
leið. Það getur verið mjög^
skemmtilegt að eiga svona dúk
til minningar um ánægjustund
með góðum vinum.
Nýr lampaskermur
úr gömlum.
Þér getið veitt börnum yðar
gleðistundir með þvi að gefa
þeim gamlan lampaskerm úr
pergamenti og hjálpa þeim til
þess að gera hann sem nýjan.
Sérstaklega mun þeim þykja
spennandi, ef }>au hafa herbergi
eða einhverja smáskonsu útaf
fyrir sig og geta notað skerminn
þar. — Þér takið þá til gömul
mvndablöð, pönlunarski'ár og
þessháttar og látið þau klippa
út þær myndir, senx þeim lizt
bezt á. Drengir vilja helzt hafa
flugvélar, bíla eða þá „cow-
boys“, en telpum geðjast bezt
að litlum börnunij hænuung-
um, kettlingum og þessháttar.
Svo hnxa þau myndirnar á
skerminn, ekki alltof reglulega
né óreglulega. — Þetta er ágæt-
ur og róandi leikur, einhvern
þann veti'ardag, sem ekki er
hægt að láta krakkana leika
sér úti.
Fullorðnir geta líka haft gam-
an af því að dytta að gömlu
skermunum og sá eg nýlega tvo
slíka lampaskerma. Annar var
með dýx'amyndum, hinn með
landabréfi Evrópu fvrir valda-
töku Hitlers.
Svo er enn eitt munstur og
það eru frímerkin.
,.Motta“ í baðherbergið.
Þér eigið sjálfsagt nóg
af afgöngum eins og svo marg-
ar konur. Þegar þeir safn-
ast fyrir og ekki er sýnilegt
að þér hafið nokkurntíma not
fyrir þá, þá takið þér yður til
einn góðan veðui'dag og álcveð-
ið að farga að minnsta kosti
helmingnum. En það skuluð
þér ekki gera! Búið heldur til
skemmtilega tuskumottu í bað-
herbergið yðar. Fáið yður bút
af fiðurheldu lérefti og festið
svo tuskumunstrið þar á. Vand-
ið yður við munstrið. Veljið
liti sem fara vel saman —
rósótt eða „munstrað“ í miðj-
unni og fallega, samstæða liti
með því. Hafið sömu stærð
á öllum pjötlunum og jafn-
mai'gar af hverjum lit.
Það er lika hægt að búa tií
allra fallegustu rúmteppi
barnai'úm eða púðaboi'ð
þess að nota að sumri í sumar-
skálanum, ef smekkkona er að
verki. — Á þessari handavinnu
er bezt að forðast silki eða
silkitengd efni. Bezt er að nota
sirs, cretonne og þessliáttar.
Bezt er að búa til snið af
liverjum ferhyrning, svo allar
pjötlurnar séu uákvæmlega
jai'nstórar. Ef sniðið er úr
pappa, þá sniðið pjötlurnar
hrldur stærri — brjótið svo
ukmum pappas}>jaldið og sauixx-
ið saman í farið sem af því
kemur.
Dúkkuvagn handa litlu
stúlkunni yðar.
Þér getið búið til allra fall-
egustu vöggu handa litlu dótl-
ur yðar, ef þér eigið lítinn tré-
kassa og tvö auka-herðalré. Þér
skuluð „yfirdekkja“ kassann
með köflóttu eða róáóttu efni
eða þá mála hann í einhverjum
hressilegum lit. Takið svo
krókana úr herðatrjánum og
l'estið þau neðan á kassann
Bezt er að mála þau í viðeig-
andi lijt áður en það er gert.
Sængurföt er hægt að búa til
ýmist úr togi, bómull eða þá
gömlum svæfli sem þér eruð
hættar að nota. Sængui'ver er
gott að hafa úr sama efni og
yfirdekkið á vöggunni — og
í þessi „herlegheit“ er bezt að
hafa tuskubrúður. Eg er sann-
færð um að h.ver litil stúlka
elskar mest þau leikföng, sem
mamma hefir sjálf búið til
handa henni.
Notið gömlu skyrtuna.
Þegar* þér eruð búnar að
venda flibbaki-aganum og man-
cliettunum á skyrtu mannsins
yðar og það er svo farið að
slitna aftur og hann getur ekki
notað flíkina lengur, þá er samt
ekki útilokað að gagn sé hægt
að hafa af henni samt. Þér get-
ið búið til blússu á sjálfa yður
til eða drenginn yðar, en til þess
er auðvitað nauðsynlegt að
hafa góð snið. Sprettið upp
skyrtunni og pressið síðan og
forðist slitnu staðina þegar
þér farig að sniða. Nýjan lcraga
og uþpslög er bezt að sníða
neðan af skyrtunni. Reynið að
nota axlastykkin og framstykk.
in í nýju blússuna, ef þau eru
ekki of slitin.
CLARK’S
Brodergarn
JWeikið
ttyggh yðui
gceðin
1