Morgunblaðið - 16.02.1975, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1975
3
Raqnhildur Helgadóttir,
forseti Norðurlandaráðs:
Skilningur almennings
á starfi þjóðkjörinna
stjórnmálamanna
— er forsenda þess að þjóðþingin
séu virkar stofnanir
Ræða við setningu þings Norðurlandaráðs í gær
Háttvirtu þingfulltrúar,
góðir gestir.
Fyrir hönd hinnar nýkjörnu
forsætisnefndar vil ég bera
fram þakkir fyrir það traust,
sem okkur hefur verið sýnt. Við
munum leitast við að vinna það
verkefni, sem okkur hefur
verið falið, eins og best við
getum. Fráfarandi forseta,
Johannes Antonsson, vil ég
þakka fyrir ráðsins hönd, en
hann hefur stjórnað því á liðnu
starfsári með öryggi og lipurð.
Þá vil ég einnig láta í ljós sér-
stakt þakklæti til eins úr hópi
aðalritara okkar, Eiler Hultin
frá Finnlandi, en hann lætur
nú af þeim starfa til að ganga í
þjónustu þjóðþingsins í heima-
landi sínu, þar sem hann verð-
ur skrifstofustjóri.
Mér er það mikið gleðiefni að
bjóóa f.h. Islandsdeildar Norð
urlandaráðs alla hina norrænu
gesti velkomna til lsiands. A
þessu landi blasa við augum
okkar tákn um áhrif Norður-
landaráðs. Ég nefni Norræna
húsið í Reykjavík. Norður-
landaráð átti verulegan hlut að
endurreisnarstarfinu eftir eld-
gosió i Heimaey, en flestir
íbúanna eru nú aftur komnir
heim. Hið þriðja tákn, sem ég
nefni, er Norræna eldfjallastöð-
in, en hún tók til starfa í
Reykjavík á síðastliðnu ári.
Ráðið kemur nú saman til
funda í Reykjavík í fjórða sinn
og í annað skipti í Þjóðleikhús-
inu. Sjálfsagt eru þeir til, sem
brosa i kampinn og segja: „Hér
er stjórnmálastarfið á sinum
stað. í raun og veru er það ekki
annað en stærðar leikhús.*' Með
þessu telja menn sig hafa visað
stjórnmálamönnunum til sætis
í eitt skipti fyrir öll. Við skul-
um þó lita betur á málið. Er
þetta eins niðrandi og stundum
er ætlast til, að það sé? Var það
ekki Shakespeare sjálfur, sem
sagði, að öll veröldin væri leik-
svið og aðeins leikarar hver
karl og kona? Það sem gerist í
leikhúsinu og það sem gerist í
stjórnmálunum á mikilvæga
sameiginlega þætti. Þetta
hvorttveggja á að vera spegil-
mynd þjóðlífsins. A báðum
stöðunum þurfa menn að geta
séð mannlífið i hnotskurn, geta
greint og skýrt blæbrigðin í lif-
inu og samtiðinni, — séð, hvar
skórinn kreppir. Stjórnmála-
starfseminni er auk þess ætlað
það erfiða hlutverk að leitast
sífellt við að bæta daglegt líf
fólks. Við höfum nokkuó mis-
jafnar skoðanir á aðferðunum.
Hið norræna lifsviðhorf er
okkur þó sameiginlegt og það
er grundvöllur Helsingforssátt-
málans um samstarf Norður-
landa i Norðurlandaráði.
Svo til allir þingfulltrúar í
Norðuriandaráði eru þjóð-
kjörnir. A það bæði við um hina
78 kosnu fulltrúa þjóðþing-
anna, fulltrúa ríkisstjórnanna
og fulltrúa landsstjórna
Færeyja og Álandseyja. Þeim
er ætlað aó vinna stjórnmála-
störf i þjóðþingum sínum,
hvort sem þeir eru i rikisstjórn-
um eða ekki. Af þessu leiðir, að
Norðurlandaráð er ákjósanleg-
ur vettvangur umræðna um
samband þingræðis og lýðræðis
og um áhrif þjóðþinganna al-
mennt.
Að norrænu tali er þingræðið
sú skipan lýðræðislegra stjórn-
arhátta, sem best hentar. Hér á
Norðurlöndum er þörf á virku
þingræði, svo að verið geti
raunverulegt lýðræði.
Þjóðþingin þarfnast aðstoóar
sérfræðinga og embættis-
manna. En menn taka að efast
um gengi lýðræðisins, þegar
þeim verkefnum þjóðþinganna
fjölgar, sem eru dregin eða
látin í hendur manna, sem ekki
eru kjörnir í aimennum kosn-
ingum. Og þetta getur átt við
bæði frumkvæði og ákvarðanir.
Það varðar líka lýðræðið, ef
þjóðþingin verða háó einhvers
konar aðgeróarhópum i þjóð-
félaginu.
A Noróurlöndum verður þess
nú vart, aó þýðing stjórnmála-
starfseminnar fyrir lýðræðið
nýtur ekki fullrar viðurkenn-
ingar.
Til að þjóðþingin séu virkar
stofnanir, er nauðsynlegt, að al-
menningur hafi skilning á
starfi hinna þjóðkjörnu stjórn-
málamanna í samfélaginu.
Þingmenn þarfnast jákvæðs
skilnings i orðanna fyllstu
merkingu. Án þess skilnings
geta stjórnmálamennirnir
misst móðinn. Þá dregur úr
góðum áhrifum þeirra. Jafn-
framt getur orðið minna um, að
kjósendur eigi margra góðra
kosta völ. Um leið dregur úr
gæðum .stjórnmálastarfsem-
innar, þvi að störf á sviði stjórn-
málanna verða ekki i sama
mæli og áður eftirsóknarverð í
augum hæfra manna. í öllu
þessu felst hætta fyrir lýðræðið
á okkar tið.
Stjórnmálamennirnir sjálfir
verða að grípa hér i taumana.
Má ég varpa þvi fram til um-
hugsunar, hvort nú sé ekki
tímabært, að þingmannasam-
koma eins og Norðurlandaráð
láti hefja könnun þessa mál-
efnis í þeim tilgangi að bæta
stjórnmálastarfið í þjóófélag-
inu og þar með lýðræðið.
Þetta leiðir hugann að megin-
reglu, sem nú er fjallað um i
Norðurlandaráði, — reglunni
um stjórnsýslu fyrir opnum
tjöldum. Hún á m.a. að stuðla
að miðlun upplýsinga og að
gagnkvæmum skilningi. 1
Norðurlandaráði sjálfu hefur
mikið verið unnið að lillögum
um, að allir, bæði innan ráðsins
og utan, geti sem bezt fylgzt
með því, sem hjá okkur fer
fram.
Stundum spyrja þeir um nyt-
semi hinna mörgu funda og háu
skjalabunka, sem ekki þekkja
Norðurlandaráð af langri og
djúpstæðri reynslu. Á þingi
okkar hér i Reykjavík munum
við ræða leiðir til að greiða fyr-
ir samskiptum milli deilda ráðs-
ins. Þaó á að gera starfsemina
einfaldari og bæta hana um
leið.
Um aðra málaflokka er það
að segja, að vænta má mikil-
vægrar umræðu um menning-
armál. Það fé, sem ráðið getur
veitt til menningarstarfsemi,
mun aukast á næstunni í sam-
ræmi við samþykkt, sem gerð
var á þingi okkar í Alaborg á sl.
hausti. Menningarsamvinnan á
vegum Norðurlandaráðs hefur
ómetanlegt gildi. Þetta á bæði
við um samstarf um visinda-
rannsóknir, sem fer vaxandi og
er eftirsóknarvert, og við al-
mennt samstarf um menningar-
mál. Þetta er sú norræna sam-
vinna, sem allir telja eðlilega.
Svo er raunar einnig um mann-
réttindamálin, t.d. jafnrétti
karia og kvenna. Ráðstafanir á
norrænum grundvelli á þessu
sviði verða ræddar á þessu
þingi.
Þó aó margir mikilvægir
málaflokkar séu á dagskrá,
munu efnahagsmálin eins og
áður verða i brennideplinum.
Við náurn í raun ekki langt á
menningarsviðinu, ef við erum
ekki raunsæ i efnahagsmálum.
Norrænt efnahagssamstarf,
ekki sizt um orkumál, getur
haft afarmikla þýðingu, ekki
aðeins fyrir Norðurlöndin sín í
milli, heldur og i samskiptum
þeirra við önnur riki. Eg vil
einnig láta í ljós þá persónu-
legu von mina, að meðferð fisk-
veiðimála og hafréttarmála i
Norðurlandaráði á þessu þingi
þess verði til að flýta lausn haf-
réttarmála á alþjóðavettvangi.
Þau málefni mætti nefna, sem
Norðurlönd hafa ekki getað
sameinast um með auðveldum
hætti. Hagsmunirnir rekast á i
sumum málaflokkum, og það er
eðlilegt að sumu leyti. En ein-
mitt þessa vegna verðum vió að
vinna að þvi að efla eininguna
okkar á meðai.
Stundum blæs ekki byrlega
fyrir norrænni samvinnu. En
þvi meiri sem straumurinn er,
þeim mun fastar þarf að standa
i fæturna.
Norðurlandaráð ætti að vera i
traustri stöðu, þvi að það
verður ekki auðveldlega upp
rifið, sem nærist af aldagöml-
um rótum.
MUNIÐ AUSTURLANDAKYNNINGUNA A UTSYNARKVÖLDINU Á HÓTEL SÖGU í KVÖLD
Allir fara í ferð
með ÚTSÝN
ÍZZ
SKlÐA- GAMBÍU- KENÝA
FERÐIN FERÐIR •1 7 dagar viku Safari. Vika við
m Indlandshaf
Austurrikis 1 7 dagar Brottför: 2 dagar í Nairobi Fyrsta flokks
22. febr. aðbúnaður.
Brottför 8. marz. _ Brottför
1 . niars. 22. maí (páskaferð) 22. febrúar 22. mars
^ -i — > . (páskaferð)
/ ‘N / —
LONDON Vikuferðir til KANARI-
Ódýrar vikuferðir! Kaupmannah.: EYJAR
Febrúar: 22 Brottför:
Marz: 18 1 6 22 14. feb. ..Scandinavia
April: 5 12 19 26 Mens' Wear Fair'
3. mars ..Shoe Fair Exh
VERÐ REGENT PALACE ..International boat 2 7 feb — 3 vikur
í 2ja m herb. show 6 marz — 3 vikur
í 1 m herb 14. mars .1 9th Scandn 20 marz — 2 vikur
CUMBERLAND navian Fashion Week 2 7 marz — 3 vikur
í 2ja m herb 75 Flug, gisting og 1 7 april — 2 vikur
í 1 m herb morgunverður 1 maí — 3 vikur
AMERICAN EXPRESS EINKAUMBOÐ A ÍSLANDI
Febr.: 28
Marz: 14 28
April: 4 18
TJÆREBORG EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI