Morgunblaðið - 16.02.1975, Blaðsíða 48
OPIÐ TIL KL. 22
ÞRIÐJUDAGA
Reykjavíkurvegi 72 Hafnarfirði Sími 53636
SUNNUDAGUR 16. FEBRUAR 1975
Byggir Stálvík 8
flutningaskip fyr-
ir Norðmenn..?
NORSKA útgerðarfyrirtækið
Rederi Oddfjell í Bergen hefur
nú spurzt fyrir um það hjá skipa-
smíðastöðinni Stálvík hvort fyrir-
tækið geti ekki byggt 8 lítil flutn-
ingaskip fyrir það á næstu árum.
Ef af þessu verður, yrði hér um
lang stærsta samning að ræða,
scm íslenzk skipasmíðastöð hefur
nokkru sinni gert og tæki nokkur
ár að smíða öll skipin.
Morgunblaöið hafði samband
við Jón Sveinsson, forstjóra Stál-
víkur, í gær og innti hann eftir
þessu máli. Jón sagði, að það væri
rétt að Oddfjell-félagið hefði farió
fram á það við Stálvik að það
Góð loðnu-
veiði strax
og birti
SAMA góóa loðnuveið-
in heldur áfram á
svæðinu við Hrollaugs-
eyjar og frá því kl. 9 í
fyrrakvöld til kl. 11 í
gærmorgun tilkynntu
15 loðnuskip um afla
til Loðnulöndunar-
nefndar, alls 3830 lest-
ir. Þessi afli fékkst að
mestu í gærmorgun,
þar sem nú er bannað
aó stunda loðnuveiðar
á þessu svæói yfir nótt-
ina. Eitt þessara skipa,
Sæberg, fékk þó sinn
afla úti fyrir Aust-
fjörðum. Skipin, sem
tilkynntu um afla, eru
þessi:
Sæberg 270 lestir, Ársæll
Sigurðsson 180, Öli Tóftum
110, Lundi 210, Alftafell
260, Ljósfari 220, Sigurbjörg
260, Hilmir 400, Skinney
260, Víðir NK 240, Ásgeir
320, Héðinn 420, Glófaxi 110,
Öskar Halldórsson 340 og
Náttfarí 230.
gerði tilboð í smíði þessara skipa.
Hér væri um að ræða lítil flutn-
ingaskip, sem notuð yrðu á innan-
landsleiðum í Noregi. Þau ættu að
vera 41x9,5 metrar á stærð, eða
heldur minni en skuttogarinn
Runólfur, sem Stálvik hefur ný-
lokíð smíði á.
„Að sjálfsögðu erum við fullir
áhuga á þessu, enda er miklu ein-
faldara að smíða flutningaskip en
skuttogara,“ sagði Jón.
Hann sagði, þeir væru nú með
einn skuttogara í smiðum og ættu
efni í annað skip, sem ekki væri
ráðið um smíði á. Hins vegar væri
það svo að íslenzk stjórnvöld
hefðu viljað undanfarið að þeir
sinntu skuttogarasmiði, en ef
ekki yrði fljótiega ljóst um næstu
verkefni þá væri Stálvík verk-
efnalaus og þá yrði að snúa sér að
öðrum vefkefnum eins og t.d. til-
boðinu frá Noregi. Alltaf væri
verið að koma með fyrirspurnir
erlendis frá og fyrir skömmu
hefói t.d. komið maður til þeirra
frá Tansaníu, sem vildi láta smíða
rækjubáta, sams konar þeim og
voru smíðaðir fyrir Indverja hér á
landi fyrir nokkrum árum.
Fjárhagserfiðleikar
hjá Hitaveitunni:
Liósm. 01. K. M
NORÐURLANDARÁÐ — 23. þing ráðsins var sett i Þjóðleikhúsinu I gærmorgun og sýnir myndin
þingfulltrúa. Borð hafa verið sett yfir aðra hverja sætaröð í aðalsal leikhússins.
Frestar framkvæmd-
um í nágrannabyggðunum
VEGNA fjárhagserfiðleika hefur
Hitaveita Reykjavíkur nú stöðvað
ný útboð sem stofnunin hafði boð-
ið út. Hitaveitan fór fram á 9.1%
liækkun á sölutaxta sínum i nóv-
ember s.l., en hefur enn ekkert
svar fengið frá ríkisstjórninni. Sú
hækkun, sem um var beðið, mun
vart teljast raunhæf nú. Þær
framkvæmdir sem frestað hefur
verið að sinni eru fyrst og fremst
í Hafnarfirði og Kópavogi.
Jóhannes Zoéga, hitaveitu-
stjóri, sagði i viðtali við Morgun-
biaðið i gær, að þessi nýju útboð
hefðu einfaidlega verið stöðvuð
vegna þess að hitaveitan gæti
ekki staðið við tilskildar greiðsl-
ur. Þau verkefni, sem fyrir lágu
og hefur verið frestað, eru lögn
dreifikerfis í Hafnarfirði og
nokkrir áfangar í vesturbænum í
Kópavogi. Þá er einnig útboó
fyrri áfanga dreifikerfis i Garða-
hreppi tilbúið, en beðið verður
með að birta það.
Við spurðum Jóhannes hve
mikla hækkun hann teldi, að
Hitaveitan þyrfti að fá. Hann
sagði, að sótt hefði verið um 9.4%
hækkun í nóvember til stjórn-
valda en ekkert svar hefði enn
borizt, og að líkindum væri aðal-
sölutími þessa árs búinn, þannig
að þetta kæmi sér nú enn verr. Ef
allt ætti að ganga eins og bezt
væri á kosið, þyrfti Hitaveitan nú
að fá kringum 40% hækkun.
Verkfræðilegur undirbúningur Hraun-
eyjafossvirkjunar er kominn á lokastig
TÆKNILEGUR og verkfræóileg-
ur undirbúningur Hrauneyjafoss-
virkjunar er nú á lokastigi og
verður hægt að taka ákvörðun um
útboð virkjunarinnar f vor, að
sögn dr. Jóhannesar Nordal, for-
manns stjórnar Landsvirkjunar.
Miðað við að komi til útboðs eins
fljótt og hægt er verður mögulegt
að hefja framkvæmdir við virkj-
unina árið 1976 og hægt að ljúka
framkvæmdum árið 1979. Hraun-
eyjafossvirkjun verður nálægt
200 megawött, en til samanburð-
ar má geta þess, að Sigölduvirkj-
un verður 150 megawött og Búr-
fellsvirkjun er 210 megawött.
Hrauneyjafossvirkjun er talin
töluvert hagkvæmari virkjun en
Sigölduvirkjun.
Hrauneyjafossvirkjun verður
nokkru neðar í Tungnaá en Sig-
ölduvirkjun. Aður en ráðist var í
virkjun Sigöldu lá fyrir hag-
kvæmnisathugun fyrir báðar
virkjanirnar og þá þegar vitað að
Hrauneyjafossvirkjun yrði hag-
kvæmari, en réttara þótti að
virkja Sigöldu fyrst þar eð hún
hefði betri miðlun og væri örugg-
ari. Virkjun Hrauneyjafoss krefst
ekki eins mikillar stiflugerðar og
virkjun á við Sigöldu, en að öðru
leyti krefjast báðar virkjanirnar
svipaðrar mannvirkjagerðar.
Fallhæðin vð Hrauneyjafoss verð-
ur 85 metrar, og vatnsmagn og
fallhæð eru meiri en við Sigöldu.
Verkfræðistofa Sigurðar Thor-
oddsen hf. og bandaríska fyrir-
tækið Harza hafa unnið að verk-
fræðilegum og tæknilegum undir-
búningi virkjunarinnar við
Hrauneyjarfoss.
Ljósm. MbL: Þórleifur Ulafsson.
SIGURDUR RE 4 kom með fyrstu loðnuna til Reykjavíkur í gærmorgun. Skipið var með 1050 lestir og er
það stærsti loðnufarmur sem borizt hefur hingað. Myndin er tekin þegar verið var að landa úr skipinu í
Sundahöfn.
300 millj. kr. halli ísl.
flugfélaganna á sl. ári
— Sjá grein um erfiðleika hins
alþjóðlega farþegaflugs á bls. 12
og 13 —
□ --------------------------□
SAMKVÆMT sfðustu áætlunum
Flugleiða er reiknað með því að
hallinn af rekstri flugfélaganna
tveggja — Loftleiða og Flug-
félags Isiands — hafi numið um
300 milljónum króna á sfðasta
ári. Ein helzta ástæðan fyrir þess-
um halla er stórhækkun alls
rckstrarkostnaðar og þar af vegur
eldsneytishækkunin þyngst. 1
millilandafluginu hækkaði elds-
Framhald á bls. 47.