Morgunblaðið - 16.02.1975, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRUAR 1975
Fáein kveðjuorð:
Kristín Arnadóttir frá
Ragnheiðarstöðum
Fædd 16. feb. 1894
Dáin 22. jan. 1975
Ef sæmdarkonan Kristín Árna-
dóttir frá Ragnheiðarstöðum í
Flóa, væri enn lifandi á meðal
vor, hefði hún orðið 81 árs í dag,
16. februar. En hún var til moldar
borin frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 31. janúar s.l., að viðstödd-
um fjölda vina og vandamanna. 1
margar vikur áður höfðu geisað
hin mestu illviðri víða um land,
einnig hér um slóðir, en þennan
dag skipti snögglega yfir í hina
mestu blíðu, sem virtist táknræn
fyrir allt hið jarðneska líf þessar-
ar mætu og hugljúfu konu, sem
alla vildi gleðja eftir mætti og
mátti ekkert aumt sjá.
Segja má, að ég hafi kynnst
Kristlnu og hennar ástkæra eigin-
manni: Sighvati Andréssyni, sem
misst hefur traustan og elskurík-
an lífsförunaut, löngu áður en ég
réðst til þeirra kaupmaður vorið
1954. Veturinn 1946—1947, réðst
ég vetrarmaður að Fljótshólum,
sem er næsti bær við Ragnheiðar-
staði f austur átt og vart meira en
10—15 mínútna gangur þar á
milli. Var ég þar að beiðni mágs
míns, sem þann vetur dvaldi er-
lendis, ásamt systur minni, en
þau voru þá í tilhugalífinu. Jafn-
an var mikill samgangur milli
fólksins á Ragnheiðarstöðum og
Fljótshólum, enda mikil vinátta
með dætrum Kristínar og Sig-
hvats og systrum Jóns Sturluson-
ar, mags míns. Þennan vetur
gerði ég mér mörg erindi að Ragn-
heiðarstöðum enda var gott þang-
að að koma, heimilisfólkið allt svo
glaðvært og alúðlegt —, ekki ein-
ungis gagnvart mér, heldur öll-
um, sem að garði bar. Heima-
sæturnar voru (og eru sjálfsagt
enn) ákaflega söngelskar, enda
var þar óspart sungið, bæði við
störf og í tómstundum. Bræður
þeirra voru og eru einnig mjög
„músíkelskir", léku á harmoniku
og önnur hljóðfæri, bæði heima
fyrir og á skemmtunum. Ekki er
að efa, að þessa eiginleika hafa
börnin hlotið í arf frá móður sinni-
enda átti hún þessa eiginleika
ri rfkum mæli og notaði þá óspart
bæði ein sér og ásamt börnum
sínum. — Þennan vetur batt ég
órjúfandi vinarbönd við þessi
indælu hjón og börn þeirra, sem
alla tíð síðan, hefur verið gott að
umgangast.
Áður en ég hvarf á brott frá
Fljótshólum vorið 1947, til að
stunda sjómennsku um nokkurra
ára skeið, bað Sighvatur mig um
að ráðast til sfn sem kaupmaður
um sumarið. Þessari bón hafnaði
ég þá, en kvaðst mundu hafa sam-
band við hann síðar og láta hann
sitja í fyrirrúmi, ef ég réði mig til
sveitastarfa að nýju. Þannig gerð-
ist þaó að ég varð kaupamaður á
Ragnheiðarstöðum sumarið 1954,
eða árið áður en ég varð lögreglu-
þjónn á Keflavíkurflugvelli, en
því starfi hef ég gegnt æ síðan —.
Aldrei hef ég séð eftir þvf, að
eyða þessum stutta tíma á lffsferli
minum þarna, enda á ég margar
ógleymanlegar endurminningar
frá þessu löngu liðna sumri. Eru
margar þessar minningar tengdar
húsmóðurinni á einn eða annan
hátt, enda var hún einstök í sinni
röð, hvað varðaði alla móður-
umhyggju glaðværðogóbilandi
dugnað. Vettvangur hennar var
nær eingöngu innanhúss, en þar
voru verkefnin ærin, bæði við
matseld og öll þjónustustörf, sem
marka má af því, að ekki var lagt
á borð fyrir færri en 10—12
manns, þegar gestir voru ekki
meðtaldir, en þá bar ekki ósjald-
an að garði.
Þegar ég kom að Ragnheiðar-
stöðum, í maflok 1954, var ég ekki
einn á ferð. Ekki amaðist Kristfn
yfir þvi, þótt ég kæmi þangað með
þrjá „ómaga“ til sumardvalar.
Voru það 15 ára stjúpsonur bróð-
urs míns, 5 ára sonur hins sama
bróðurs míns og 12 ára telpa frá
Hafnarfirði. Umhyggja Kristfnar
fyrir ungmennum þessum var
slík, að engu var líkara en að þau
væru öll hennar eigin afkvæmi.
Aldrei heyrði ég hana láta
styggðaryrði falla til þeirra —, né
heldur til nokkurrar annarrar
manneskju, frá því að eg kynntist
henni fyrst. Ekki man ég eftir að
hafa nokkru sinni heyrt hana
hallmæla nokkrum manni né
skeyta skapi sínu á nokkru,
hvorki lifandi né dauðu. Lundin
var alltaf hin sama, á hverju sem
gekk, og alltaf sá hún björtu
hliðarnar eingöngu á öllum hlut-
um. Ég sá hana aldrei æðrast, þótt
eitthvað móti blési, en aldrei fer
svo, að á langri og erilsamri ævi,
mæti fólki ekki smáir eða stórir
erfiðleikar, sem margir eiga erfitt
með að klöngrast yfir. Kristín
virtist ekki f neinum vandræðum
með að yfirstíga sína erfiðleika,
enda skorti hana aldrei kjark til
að ráðast á garðinn þar, sem hann
var hæstur. Hún trúði á allt hið
góða og fagra í lífinu og Iét aldrei
blekkingar umhverisins villa um
fyrir sér.
Margt hafði breytzt á Ragn-
heiðarstöðum, frá þvf er ég var á
Fljótshólum 8 árum áður. Nú
voru börnin öll uppkomin, flest
vel gift og mörg flutt að heiman,
en héldu þó góðri tryggð við
heimahagana, sem veitt höfðu
þeim svo unaðsríka æsku, í faðmi
ástríkrar móður og umhyggju-
sams föður —. Þegar Stina og
Kalli, sem þá höfðu hafið sinn
búskap f Reykjavík, komu í heim-
sókn um helgar, var ávallt glatt á
hjalla á Ragnheiðarstöðum. Kalli
kom ætfð færandi hendi og veitti
tengdaföður sínum, mér og öðr-
um fullvöxnum næga „brjóst-
birtu“. Þegar áhrif hennar fóru
að segja hæfilega til sín, var söng-
gyðjan óspart tignuð og má mikið
vera, ef söngurinn sá hefur ekki
heyrst á næstu bæjum ef vindátt-
in stóð í rétta átt. Ekki minnist ég
þess, að Kristín hafi nokkru sinni
bragðað á áfenginu, en þó naut
hún þess auðsjáanlega innilega að
taka þátt í glaðværðinni og syngja
með.
Um það leyti, sem ráðningar-
tíma mínum lauk um haustið,
varð Sighvatur fyrir talsverðu
slysi —, lenti með hægri hönd í
afskurðarvél, sem tók mikinn
hluta framan af þrem fingrum.
Frestaði ég brottför minni frá
Ragnheiðarstöðum um 2 vikur af
þessum sökum, en slys þetta
leiddi til þess, að Sighvatur brá
búi og fluttist vestur á Reykjanes-
skaga, settist fyrst að í
Ytri-Njarðvík, en nokkru
síðar í Keflavík. Upp frá því
bjuggu þau að Faxabraut 33 C þar
í Bæ. Sighvatur keypti þessa ibúð,
sem er á tveim hæðum, en þar
sem þau voru nú orðin tvö ein í
heimili, nægði þeim neðri hæðin
eingöngu og leigðu því þá efri
lengst af vandalausum. Þegar ég
settist að í Keflavík, árið 1962,
æxlaðist svo blessunarlega til, að
heimili okkar urðu svo nálægt
hvort öðru, að kalla mátti á milli
ibúðanna, án fyrirhafnar. Til
þeirra lagði ég oft leið mína og
var mér ævinlega tekið opnum
örmum. Ekki gat ég séð þess nein
merki, að Kristínu leiddist
bústaðaskiptin, enda virtist hún
njóta þess umfram allt annað að
yera samvistum við sinn ástrfka
maka, sem hún leit á sem
húsbónda sinn og herra.
Vafalaust hefði hún
möglunarlaust fylgt honum á
heimsenda, ef hann hefði krafist
þess af henni. í sambúðinni voru
þau ætíð eins og nýtrúlofuð.
Sem dæmi um viljastyrk
Kristínar og fróðleiksfýsn er ekki
úr vegi að minnast þess, að um
tíma leigðu þau hjónin amerískri
fjölskyldu efri hæðina. Kristín
var þá komin nokkurn spöl á
áttræðisaldurinn; keypti hún sér
kennslubók í ensku og fór að læra
þá tungu upp á eigin spýtur og án
teljandi tilsagnar, einungis til að
geta tjáð sig og talað við hina
erlendu konu, sem henni féll
mjög vel við. Á skömmum tíma
tókst henni að læra svo mikið í
enskunni, að hún hafði af henni
fullt gagn í samskiptum sínum við
leigjendur sína. Einnig gerði hún
mikið af því að ráða krossgátur, í
blöðum og tímaritum, aðallega í
þeim tilgangi, eins og hún komst
að orði, að öðlast meira vald yfir
fslenzku máli og auka orðaforða
sinn —. Já, svona var hún,
blessuð konan, allt til hins
síðasta, að læra meira og meira og
auka við þekkingu sína, eins og
kostur var á,
Á allra síðustu æviárum sfnum,
varð ekki hjá því komist að sjá, að
tekið var að halla undan fæti hjá
Kristínu, á hennar hamingjuríka
æviskeiði. Hún þjáðist talsvert af
astma, heyrnin dofnaði óðfluga og
minnið sljóvgaðist til mikilla
muna. Og til marks um það sagði
Sighvatur mér frá því, að oft og
iðulega legði hún á borð fyrir 10
manns, þótt þau væru aðeins tvö
heima. Þá fannst henni hún vera
orðin húsfreyja á Ragnheiðarstöð-
um aftur og f miklu að snúast.
Stundum, þegar ég var búinn að
sitja hjá þeim í á aðra klukku-
stund, svolgra í mig 3 bolla af
kaffi og úða í mig feiknin öll af
pönnukökum og öðru góðgæti,
átti Kristín það til að segja upp úr
eins manns hljóði: „Heyrðu, má
ég ekki bjóða þér upp á kaffi og
eitthvað meðlæti?“ Kannski
endurtók hún þetta tíu mínútum
síðar og átti ég í erfiðleikum með
að sannfæra hana um, að ég stæði
hreint á blfstri af öllum góðgjörð-
unum, sem hún væri búin að
troða í mig. Svona var nú minnið
hennar orðið —, en þó leyndi það
sér ekki, að gestrisnin og höfð-
ingsskapurinn voru fyrst og sein-
ast efst í hennar huga.
Vandalaust væri að skrifa stóra
bók um ævi þessarar blíðlyndu,
ástríku, hógværu, ttygglyndu,
brosmildu, dugmiklu og sfðast en
ekki sízt, þrautseigu konu, en
þessi fáu kveðjuorð verða að
duga. Samskiptum mínum við
Kristfnu Árnadóttur frá Ragn-
heiðarstöðum, minnar fyrrum
elskulegu húsmóður og síðar
hjartfólginnar vonkonu, mun ég
aldrei gleyma, svo lengi sem mér
sjálfum endist líf og heilsa.
Hverjum manni, sem hlotnast
sú gæfa, að eiga samleið með
slíkri konu sem Kristín var, þótt
ekki sé nema stuttan spöl á lffs-
leiðinni, er það mikill ábati, sér f
lagi ef hann metur hið góða og
fagra í lifinu meira en andstæður
þess. Ef öllum væri gefið að lifa
eins og hún gerði, væri heimurinn
öðru visi en hann er og indælt að
vera til.
Vini mfnum Sighvati Andrés-
syni og öllum afkomendum þeirra
hjóna, votta ég mína innilegustu
samúð —, en segi samt: „Þótt
líkaminn verði að dufti, lifir and-
inn að eilífu og fagrar minningar
gleymast ei“.
S. Þorvaldsson,
Keflavfk.
útfaraskreytingar
btómouol
Gróðurhúsið v/Sigtún simi 36770
t
Innilegar þakkir til allra fjær og nær, er á einn eða annan hátt sýndu
okkur hlýhug og hjálp i veikindum, við andlát og jarðarför mannsins
míns og föður okkar
ÞÓRHALLS DAN KRISTJÁNSSONAR
Bogaslóð 12,Höfn Hornafirði.
Sérstakar þakkir á deild 4C Landspitalanum, til allra þeirra er léttu
honum sjúkdómsleguna.
Ólöf Sverrisdöttir og börn.
t
Innilegar þakkir til allra, er sýndu mér samúð við andlát og útför
eiginmanns mins,
SIGURÐAR ÞORSTEINSSONAR,
bifvélavirkja,
Skúlaskeiði 2, Hafnarfirði.
Ennfremur alúðarþakkir til þeirra er veittu mér aðstoð í veikindum
hans. Guð blessi ykkur öll. „
Soffia Sigurðardottir.
t
Eiginmaður minn
VILHJÁLMUR BALDUR GUÐMUNDSSON
Kirkjuferju,
andaðist i Landspítalanum að morgni 14. febrúar.
Margrét Bjarnadóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður
okkar, tengdaföður og afa,
VILMUNDAR ÁRNASONAR
frá Löndum, Grindavik.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför mannsins
míns, föður og tengdaföður
JÓHANNS KR. GfSLASONAR
netagerðameistara.
Kvisthaga 11.
Vilhelmina Halldórsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa
HARRYSO. FREDERIKSEN
framkvæmdastjóra
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 1 8. febrúar kl. 1 3 30.
Margrét Frederiksen Ólafur Frederiksen
Guðrún Frederiksen Halldór Sigurðsson
Edda Hrund Halldórsdóttir
t
Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför
ÞÓRISTRYGGVASONAR
Bergþóra Viglundsdóttir, Sólveig Hjartardóttir,
Sólveig Þórisdóttir, Snorri Þórisson,
Erna Tryggvadóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu.
GUÐBJARGAR JÓHANNESDÓTTUR.
Fyrir hönd aðstandenda,
Róbert E. Þórðarson.