Morgunblaðið - 16.02.1975, Blaðsíða 34
34
MÖRGÚNBLAÐIÐ, SÚNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1975
99
Eve of Destruction”
Nótt eina heyrði ég ifiann
syngja á litlu kaffihúsi í Balboa
I Kaliforniu — í Frankenstein-
kaffihúsinu. Gítarspil og sðng-
ur þessa manns kveikti f ttiér.
Viku síðar keypti ég gítar og
lærði á hann þrjú grip. Ég söng
og spilaði þar til ég var nærri
búinn að gera alla brjálaða.
Kvöld eitt í afmælisveizlu
söng ég nokkra söngva. Veit-
ingahúseigandi frá Santa
Monica heyrði til mín og viku
síðar bað hann mig að syngja í
klúbbi sínum. Þegar aðrir
klúbbeigendur heyrðu til min
fór ég á milii þeirra, fór í einn
klúbb af öðrum. Vinur minn
einn var um þessar mundir að
safna saman tónlistarmönnum
og nefndi The New Christy
Minstrels. Ég var beðinn að
slást í hópinn — hafði reyndar
ákveðið að gerast leikari, en ég
sló til, ákveðinn í að fara þang-
að sem örlögin vildu leiða mig.
The New Christy Minstrels
héldu tónleika um öll Banda-
rikin og erlendis og við komum
fram í útvarpi og sjónvarpi. Við
héldum tónleika i Hvíta húsinu
fyrir Johnson forseta, og ég átti
þátt í lögunum „Green Green“
og „Greenback Dollar", sem
urðu metsölulög.
Á þessum tíma lærði ég
mikilvæga lexíu af manni frá
Honolulu. Hann var jazz píanó-
leikari og allar stelpur sátu yfir
pfanói hans þegar hann Iék. Við
fórum nokkur úr „Christy“ til
að hlusta á hann og hann bauð
okkur heim til sín að spila. Við
þáðum boðið. Þegar þangað
kom fórum við gegnum járn-
hlið að húsinu og biðum þar til
hann hafði lokað varðhundinn
inni i bflskúr þar sem voru
fyrir Rolls og glæsilegur
kádiljákur. Og inni fyrir höfð-
um við aldrei séð annan eins
íburð.
Við settumst og röbbuðum
saman. „Það var gott að þið
komuð strákar, ég er að deyja
úr leiðindum. Ég held ég sé að
verða vitlaus," sagði hann. Ég
varð hugsi. Ef þetta gerir mann
ekki ánægðan, að lifa í paradís,
eiga meiri pening en ég hélt að
væri til...
Og hann sem fékk 95 manna
Caravelli-þotu í afmælisgjöf til
að fljúga til kunningjanna.
Samt sat hann þarna volandi,
einmana og allslaus. Mick
Jagger söng „I cant get nó satis-
faction“ og er það án efa einn
sannasti söngurinn, sem hann
hefur sungið allt sitt lif til
þessa.
„Eve of Destruction.“
Þegar ég komst að raun um að
peningar voru ekki allt hætti ég
í „Christys". Það var i janúar
1965. Það ár var „Eve of
Destruction" tekið upp. Ég helt
mig vera spámann — að eitur-
lyf gætu svipt hulunni af ýmsu.
Ég vissi að heimurinn var að
eyðileggjast en ég hélt að við
gætum bjargað honum. Ég
trúði á sjálfan mig og góðsemi
mannsins. Ég var í rauninni að
leita eftir svörum með þessu
lagi mínu. Annar texti á plöt-
unni sagði: „Ég veit ekki hvað
við munum fá. Það eina sem ég
veit er að við höfum ekki öðlast
það ennþá.“ Ég vissi að ein-
hvers staðar lágu svör við
spurningum mínum.
En stórstjörnurnar áttu ekki
önnur svör en aðrir. Til dæmis
Jimi Hendrix, fólk setti hann á
stall og hélt að hann væri eitt-
hvað. Hann var mjög einmana
og lauk ævi sinni með sjálfs-
morði. Við Janis Joplin héng-
um saman í New York i nokkra
daga. Það eina, sem olli okkur
erfiðleikum, var hræðsla henn-
ar. Hún skildi ekki hvernig ég
gat sungið alveg bláedrú. Eina
leið hennar til að koma fram
fyrir áheyrendur var að drekka
sig fulla og sökkva sér niður í
tónlistina. Svo sagði hún mér:
„Ef ég sé áheyrendur verð ég
svo skelfd, að ég get ekki sung-
iö.“
„Hárið“.
Ég hélt áfram að syngja, taka
upp plötur, leika í tveimur
kvikmyndum og síðan lék ég í
„Hárinu", sem sýnt var á Brod-
way. Ég hélt að „Hárið“ væri til
að mótmæla kerfinu, segja að
allir væru frjálsir og jafnir.
Eftir að hafa leikið I nokkra
mánuði fór mér að líka illa við
persónuna, sem ég lék. Mér
lenti saman við stjórnendurna.
Þeir fengu 50 þúsund dali á
viku meðan aðrir við sýninguna
fengu um 100 dali. Þeir sem
störfuðu við sýninguna voru
allir jafnir, eins og leikurinn
sjálfur sagði, en ekki á útborg-
unardaginn.
Einn af strákunum svaraði
þessu: Auðvitað er þetta svona
— þetta er bara sýning bján-
inn þinn — bara „bisness". Svo
bregðast krosstré sem önnur
tré. Þess vegna hætti ég.
(Þýtt úr Campus Life — fram-
hald).
Enginn lýsti betur ástandinu á sjöunda áratugnum
en Barry McGuire í laginu Eve of Destruction.
Metsöluplatan sagði frá vonleysi kynslóðarinnar og
vonbrigðum. Barry varð frægur og vinsæll og meðal
kunningja hans voru Jimi Hendrix og Janis Joplin.
Hann hvarf frá tónlistinni, en hefur nýlega byrjað
aftur. En nú er Barry McGuire óþekkjanlegur.
Fréttír
Bréfa — biblfuskóli.
Fyrir nokkru sögðum við
frá biblíuskólum í Noregi og
Danmörku og fengum lýs-
ingar á starfsemi þeirra.
Norsk Luthersk Misjonssam-
band, sem rekur skóla í Ósló
hefur ýmsa fræðslu um
Biblíuna m.a. sumarnám-
skeið, kvöldskóla og stutt
helgarnámskeið. Einnig
hafa þeir tekið upp bréfa-
skóla og er hægt að fá
upplýsingar um þetta allt í
bæklingi sem gefinn hefur
verið út. Heimilisfangið er:
Biblia, Fjellhaug skoler,
Sinsenveien 15, Oslo 5. Við
þetta má bæta að ýmis félög
hér hafa verið með biblíu-
bréfaskóla eða bréfa-biblíu-
skóla, en ekki vitum við
hvort slíkir eru í gangi
núna. Fróðlegt væri að fá
upplýsingar um slíkt. Lýð-
háskóli er hins vegar rekinn
í Skálholti af Þjóðkirkjunni
og er þar m.a. að fá biblíu-
fræðslu.
Klámið að hverfa
Dagens Nyheter í Svíþjóð
hefur lýst yfir að það taki
ekki lengur auglýsingar,
sem klámmyndir tilheyra.
AÐ það sérstaklega við um
bíóauglýsingar. Mun þetta
koma til af þvf að menn vilja
ekki nota konuna í þessum
tilgangi.
Hvernig væri að íslenzk
blöð fhuguðu þetta?
Æskulýðsdagurinn '75.
Hinn árlegi æskulýðs-
dagur þjóðkirkjunnar
verður sunnudaginn 2. marz.
Yfirskrift dagsins er tekin
úr Biblfunni og er: „Allir
eiga þeir að vera eitt.“
Undir þessari yfirskrift á að
fjalla um fjölskylduna, hvað
það er sem getur sameinað
hana, en raddir hafa verið
uppi um að fjölskyldan sé
orðin óþarft fyrirbrigði. Á
samkomum og guðsþjónust-
um á vegum æskulýðsstarfs-
ins verður þetta efni tekið
fyrir og einnig er ætlunin að
fá inni í fjölmiðlum með um-
ræður og greinar o.fl.
Gylltur leir eða leirugt gull
FRAMHJÁ GENGUR fjöldinn.
Sumir'flýta sér, aðrir fara sér
hægt. Hvert skyldi hann vera
að fara? Hvað ætli hann sé að
gera? 1 fyrstu varpa ég þessum
spurningum frá mér. Eg veit
ekkert um hann. Og þó,A leið
minni gegnum bæinn kemur
aftur í hug mér mynd fjöldans.
Hvað gerir hann? Lifir hann
ekki sínu daglega lífi, vinnur,
sefur og nærist? Ekkert meir?
Nú eiga allir frítíma. Hvað þá?
Reyna ekki flestir að koma sér
vel fyrir? Láta einskis ófreist-
að. Sumir finna alltaf eitthvað
nýtt til að hressa upp á til-
veruna með og sölumenn eru
óiatir við að benda á allt það
sem er ómissandi. Margir
berast með straumnum í
hamingjuleit.
1 hug minn kemur mynd gull-
grafarans. Hans æðsta mið er
að finna gull. Um leið og frétt
um nýja gullæð berst út tekur
hjarta hans að slá hraðar. Hann
skilur allt eftir, fórnar öllu og
leggur af stað, í leit. Finnur
hann gullið? — Er leit f jöldans
lík leit gullgrafarans? E.t.v.
svipuð, en þó frábrugðin. Gull-
grafarinn veit hvers hann
leitar, en fjöldinn rennir oft
blint í sjóinn. — Dagblað, aug-
lýsing. Komdu .... Farðu ...
Augu og eyru eru vakandi.
Fara, skoða, kaupa. — Hvað
svo? Endirinn verður oft öðru-
vísi en ætlað var í byrjun.
Margir standa uppi með gyllt-
an leir. Vonbrigði, innantóm
skemmtun, fánýtir og einskís-
verðir hlutir. Margir stefna þó
markvisst að einhverju „varan-
legu“. — Ég sat við gluggann,
úti brann hús, hús mannsins
sem fór hér um áðan. Lögregla,
sjúkrabíll, slökkvilið. 1 hönd
mannsins, sem fór hér um áðan,
er aska. Allt sem hann á. —
Hversu oft endar saga einhvers
á þessa leið? Saga þín? Hún
hefur e.t.v. byrjað vel: Gamall
skrjóður, lítill bíll, bfll stærri
en nábúans. Herbergishola, há-
hýsi, hjólhýsi. Þannig má láta
hugann reika. stundum er
leitað langt yfir skammt. Ef
maðurinn, sem stóð með öskuna
í hendinni, hefði aðeins vitað
að fjársjóðurinn var ekki langt
undan. Hefði hann ekki fleygt
leirnum og tekið gullið?
Auðvitað. Er það ekki alveg
sjálfsagt? Hvers vegna gerir
hann það þá ekki? E.t.v. vegna
þess að gullið er oft leirugt.
Konan með brúna barðastóra
hattinn leit á mig með
undrunarsvip: Þjóðsaga, bara
þjóðsaga. Ungur maður I snjáð-
um jakka útskýrir fyrir mér
hinar ýmsu leiðir, sem hann
telur vera, til að hreppa
hamingjuna. Allar miðast að
því að gera eitthvað gott. — Ég
staldra við. Fjársjóðurinn
liggur við dyrnar, en enginn
hirðir um að opna til að ná f
hann. Ef þú, maður, aðeins
vissir hvers virði hann er, þá
myndir þú án efa fara að sem
kaupmaðurinn forðum er seldi
allt, sem hann átti, til að kaupa
„perluna“ dýrmætu. Eða þá
eins og konan við Jakobsbrunn,
sem við lesum um í Jóhannesar-
guðspjalli. Hún bað Jesúm um
að gefa sér lifandi vatn, eftir að
hann hafði sagt henni að við
neyzlu þess myndi hana aldrei
þyrsta aftur.
Við munum einnig er Kristur
sagði: „Safnið yður ekki fjár-
sjóðum á jörðu, þar sem mölur
og ryð eyðir, og þar sem þjófar
brjótast inn og stela,“ Matteus
6:19—20. Hvernig fáum við
gert þetta? Leitið fyrst ríkis
hans og réttlætis og þá mun allt
þetta veitast yður að auki. Mér
koma í hug orð úr Spádómsbók
Jeremía: „Ó, land, land, land
heyr orð Drottins.“ Jer. 22:9.
Hversu þörf er ekki áminning
spámannsins: „Heyr orð Drott-
ins.“ „Þvf að svo elskaði Guð
heiminn, að hann gaf son sinn
eingetinn, til þess að hver, sem
á hann trúir, glatist ekki, held-
ur hafi eilíft líf.“ Jóh. 3:16.
„Komið til mín, allir þér, sem
erfiðið og þunga eruð hlaðnir,
og ég mun veita yður hvfld.“
Matteus 11:28. „En öllum þeim,
sem tóku við honum, gaf hann
rétt til að verða Guðs börn:
þeim sem trúa á nafn hans.“
Jóh. 1:12 Ennfremur segir
Jesús: „Ég er kominn til þess
að þeir hafi lff og hafi nægtir."
Jóh. 10:10b. „Frið læt ég eftir
hjá yður, minn Frið gef ég yð-
ur; ekki gef ég yður, eins og
heimurinn gefur." Jóh. 14:27.
Um leið og við höfum tekið
við þeirri gjöf, sem Guð gefur
okkur í Jesú Kristi, eigum við
það sem allir leita að: grundvöll
til að byggja líf okkar á, mark
til að stefna að, það sem gefur
lífinu gildi og svo margt sem
við fáum að njóta í samfélagi
við Jesúm. Enginn veit hvað líf
með Guði er, fyrr en hann hef-
ur reynt það sjálfur. Ég fæ ekki
sannfært nokkurn mann með
mínum orðum, þar verður andi
Guðs að koma til. —
Hvar stendur þú? „Þar sem
fjársjóður þinn er, þar mun og
hjarta þitt vera.“ Matteus 6:21.
Athugaðu stöðu þína. Sækistu
eftir gylltum leir eða leirugu
gulli?
M.F.