Morgunblaðið - 16.02.1975, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1975
^ 22 022-
RAUÐARÁRSTÍG 31
tel 14444 * 25555
BlLALEIGA CAR RENTAlI
€
BILALEIGAN
51EYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
piorviecn
Útvarp og stereo, kasettutæki
BÍLALEIGA
Car Rental
SENDUM
41660-42902
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR REIMTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
MARGFAUUR
JHorannMrt.M^
Sr. BOLLr
GÚSTAFSSON
i Laufási:
il hvers er að verja löngum
tima til að semja hátiðlega pré-
dikun fyrir kristinn söfnuð á
annríkistímum? Fæstir prestar
eða prédikarar komast hjá
ásókn þeirrar spurnar, hvort
tíma og orku sé varið til gagns
fyrir heilagt málefni. Það er
notalegt að sitja við skrifborð í
vistlegu bókaherbergi með góð
gögn við höndina; láta hugann
reika og leita orða, skipa þeim í
setningar, ætluðum til að vekja
en ekki svæfa. Þær eiga að
vekja menn til umhugsunar um
iífsnauðsyn kristinnar trúar til
frelsunar frá synd og dauða. En
þótt hik og efasemdir láti
stundum á sér kræla, þá fer
andinn jafnan með sigur, ef
Kristur er boðaóur. Það er and-
inn, sem úthellt var yfir kristna
lærisveina á stofndegi kirkj-
unnar. Sá andi leiddi Jesúm út
í auðnina til þess að hans yrói
freistað; hann reyndur við upp-
haf starfsdagsins hér á jörð.
Þessi andi veitir boðendum
orðsins þrek til að bera sann-
leikanum vitni, hvað sem á
bjátar, og þeir segja við hverja
úrtölurödd: „Vík burt Satan,
því ritað er: Drottinn, Guð
þinn, átt þú að tilbiðja og þjóna
honum einum." (Matt. 4. kap.
10. v.). — „Krossferli að fylgja
þfnum/fýsir mig, Jesú kær.“
Þessi viljayfirlýsing hlýtur að
koma fram í hugann við upphaf
föstunnar. Tfma sorgar og
þunglyndis, kann einhver að
segja. Er það nú ábætandi hér á
meðal okkar, já, við þær að-
stæður, sem við Islendingar bú-
um? Loks eftir þá miklu and-
legu áreynslu, sem ömurlegt
skammdegismyrkur og óblið og
erfið veður vetrar á norðurslóð
hljóta að hafa á ibúana þar, þá
eiga menn að loka augunum
fyrir hækkandi sól og lifa í ein-
hverri uppgeróarsút vegna
þessara dapurlegu atburða úr
grárri fyrnsku. Það eru engin
undur, þótt ýmsum verði á að
hugsa þannig, þvi að sú villa er
útbreidd, að rjúfa beri atburð-
ina úr samhengi, t.d. að ætla
huganum ekki að meðtaka
meira um föstutímann en lam-
andi áhrif frá ofurþunga þeirra
kvala, er Kristur fyrir oss auma
leið. En það minnir á mann,
sem virðir fyrir sér olíumál-
verk, gengur fast að því og ein-
blínir í gegnum stækkunargler
á svarta blettinn í neðra horn-
inu til vinstri; á einn biksvart-
an skugga í margbreytilegri, lit-
rikri mynd, sem krefst þess að
staðið sé álengdar fjær og horft
á heildina til þess að tignar,
fjarlægóar og fegurðar lista-
verksins verði notið. Krossferill
Jesú, kvöl hans og dauði eru til
einskis án þess dásamlega,
sterka ljóma, er stafar frá upp-
risunni, af sigri hans yfir synd
og dauða, sem getur af sér
bjartsýni og sannfæringu um
dýróiega ávexti trúarinnar. —
Þegar komið er í húsakynni
sumarbúða kirkjunnar við
Vestmannsvatn, veita menn
athygli miklum trékrossi fyrir
miðjum vegg í aóalsal búðanna.
Er nær dregur hausti og birtu
tekur að bregða á kvöldin, þá er
það áhrifaríkt á bænastund,
þegar öll ljós eru slökkt í saln-
Leiddur
af
andanum
um, nema kertaljósin, sem
börnin tendra á altarinu og ljós
frá lömpum að baki krossinum.
Þarna blasir við mjög einföld
en táknræn mynd af föstunni.
Skugga ber á t'rékrossinn svo
hann er dökkur og dapurlegur,
eins og tákn þess mótlætis, er
frelsarinn varð að taka á sig
fyrir syndugt mannkyn, en að
baki honum annað krossmark,
ljómandi og af ijósi gjört, sigur-
tákn, lífsins merki. — Röddin,
sem forðum reyndi að freista
Jesú í auóninni hljómar ekki
síst i ýmsum tóntegundum og
með fjölbreytilegum blæbrigð-
um á föstunni. Hún segir:
„Blessaður reyndu að komast
léttar frá þessum hugleiðingum
um kross og kvöl, eða slepptu
þeim helzt alveg, enda stangast
þær illilega á við mannlega
skynsemi og raunar álit ýmissa
heimsfrægra fræðimanna. Er
ekki svo fjölmargt, sem er
miklu meira virði en þessir
gömlu steinrunnu siðir og sög-
urnar fornu. Slepptu því að
hugsa um það allt og baðaðu
hugann í raunsærri trúarbrögð-
um nútímans studdum vís-
indum og merkilegum til-
raunum. Jesús verður að taka
tillit til þeirra hvort eð er og
gjöra svo vel að slá striki yfir
ýmislegt, sem hann forðum
sagði. Eða láttu t.d. raunhæf
viðfangsefni eins og stjórnmál
koma í þeirra stað. Það eru
nefnilega til stjórnmálastefnur,
sem geta hæglega fullnægt
trúarþörfinni,“ segir þessi læ-
vísarödd. Og hún hlakkaryfir
gengi þeirra þjóðfélagsstefna,
sem kúga kristna menn og alla
þá, sem meta sannleikann ein-
hvers, og markvíst stefna þær
að þvi að afmá kirkjuna af yfir-
borði jarðar eins og hættuleg
skáld sem ekki þegja um það sem
miður fer. Við veitum því
athygð, er við lesum freistinga-
söguna, að Jesús var leiddur af
andanum út í eyðimörkina, til
þess að hans yrði freistað.
Leiddur af heilögum anda Guðs
til þess að takast á við niðurrifs-
öflin. Hann skyldi reyndur til
þrautar áður en hann kæmi
opinberlega fram í nafni Guðs
föður. A sama hátt reynir
andinn okkur. Hann iætur okk-
ur glíma við hik og efasemdir.
Hann ætlar trú okkar aó sigra
fyrir hjálp Jesú Krists. Hún
verður að skírast í eldi mótlætis
og standast það, enda er hún
ekki ein.
Frá bridgefélaginu Ás-
arnir í Kópavogi
Sveitakeppninni er nú lokið
— en alls voru spilaðar 18 um-
ferðir. Sveit Rúnars Lárusson-
ar sigraði örugglega eftir að
hafa haft forystu alla keppn-
ina. 1 sveit Rúnars eru ásamt
honum tveir bræður hans Her-
mann og Ólafur og faðir hans
Lárus Hermannsson.
Staða efstu sveita varð þessi:
Rúnars Lárussonar 293
Valdimars Þórðarsonar 259
Þorfinns Karlssonar 244
Ragnars Hansen 210
Sverris Kristinssonar 197
Páls Þórðarsonar 192
Meðalárangur var 180.
Næsta mánudag spilum við
sveitakeppni við Bridgefélag
Hafnarfjarðar — en annan
mánudag hefst barometer-
keppni en hún verður auglýst
nánar síðar.
XXX
Frá Tafl- og bridge-
klúbbnum.
Nú er lokið 5 umferðum af 9 i
sveitakeppni meistaraflokks og
er staða efstu sveita þessi:
Tryggva Gislasonar 79
Þórarins Árnasonar 77
Þórhalls Þorsteinssonar 61
Kristínar Ólafsdóttur 61
Bernharðs Guðmundssonar 52
Sigurjóns Tryggvasonar 49
1 fyrsta flokki eru spilaðar
ellefu umferðir og af fimm
loknum er staðan þessi:
Braga Jónssonar 86
Kristínar Þórðardóttur 83
Viðars Jónssonar 82
Guðrúnar Jörgensen 70
Rósmundar Guðmundssonar 70
Óskars Friðþjófssonar 48
Sigríðar Ingibergsdóttur 45
Stefáns Jónssonar 45
Sjötta umferðin verður spil-
uð í Domus Medica á fimmtu-
daginn kemur og hefst kl. 20
stundvíslega.
XXX
Aðeins er nú eftir að spila
tvær umferðir í Aðalsveita-
keppni Bridgefélags Reykja-
víkur og virðist ekkert geta
komið í veg fyrir, að sveit
Hjalta sigri með yfirburðum:
Hjalta Elíassonar 228
Þóris Sigurðssonar 204
Helga Sigurðssonar 188
Jóns Hjaltasonar 169
Þórarins Sigþórssonar 167
Björns Eysteinssonar 148
Gylfa Baldurssonar 144
1 siðustu umferð vann sveit
Þóris nauman sigur á sveit
Hjalta, eða 11—9. Næsta um-
ferð verður miðvikudaginn 19.
febrúar kl. 20 og spila þá sáman
m.a. sveitir Hjalta og Jóns
Hjaltasonar.
XXX
Eins og kunnugt er fór TBK
til Huddersfield á sl. sumri og
mun bridgefélagið i Hudders-
field endurgjalda heimsóknina
á sumri komandi. TBK fékk
bréf fyrir skömmu — og segir
að þeir óski eftir að koma með
30—40 manna hóp 6.—13. júní
nk. TBK hefur haldið fund um
málið og samþykkt þennan
tíma. Hafa þeir sent út bréf og
tilkynnt þeim að þeir séu mikið
velkomnir til Islands.
Lítið fleira er fréttnæmt um
heimsókn þessa að svo stöddu
en eitthvað er undirbúnings-
vinna hafin og munum við birta
nánari fréttir frá dagskrá heim-
sóknarinnar og heimsókninni
almennt svo fljótt sem unnt er.
A.G.R.