Morgunblaðið - 16.02.1975, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FERRÚAR 1975
aacBOK
t dag er 16. febrúar, sem er 1. sunnudagur í föstu, 47. dagur ársins.
Ardegisflóð f Reykjavík er kl. 09.08, sfðdegisflóð kl. 21.27.
Vitið þér ekki að þeir, sem á skeiðvellinum hlaupa, hlaupa að sönnu allir, en einn fær
sigurlaunin? Hlaupið þannig að þér getið hlotið þau. En sérhver, sem tekur þátt 1
kapphlaupinu, er bindindissamur f öllu, þeir til þess að hljóta forgengilegan sigursveig,
en vér óforgengilegan. Þess vegna hleyp ég þá ekki eins og upp á óvissu; ég berst eins og
hnefaleikamaður, er engin vindhögg slær; en ég leik líkama minn hart til þess að ég, sem
hefi prédikað fyrir öðrum, skuli ekki sjálfur vera gjörður rækur.
(I. Korintubr. 9. 24—27).
ÁRNAO
HEIL.LA
Sigsteinn Pálsson, bóndi á
Blikastöðum, er sjötugur í dag,
16. febr.
Jóna Jarþrúður Jónsdóttir,
fyrrum húsfreyja að Skálanesi, er
áttræð í dag 16. febr. Hún er fædd
að Hólalandi í Borgarfirði. Maður
hennar, Ásmundur Sigmundsson
frá Hólshjáleigu í Hjaltastaða-
þinghá lést árið 1957. Þau áttu
saman sex börn. Síðan synir Jónu
hættu búskap hefur hún haldið
með þeim heimili á Seyðisfirði.
25. desember gaf séra Bjarni
Sigurðsson saman í hjónaband í
Lágafeliskirkju Sigrúnu Línu
Helgadóttur og Hafstein Hannes-
son. Heimili þeirra er að Hverfis-
götu 109, Reykjavík. (Stjörnu-
ljósmyndir).
IKROSSGÁTA
Lárétt: 1. afls 5. klukku 7. útlimi
9. slá 10. þreklaus 12. sund 13.
erfiði 14. klett 15. púkann.
Lóðrétt: 1. ámælir 2. vesæla 3.
snarpur 4. 2 eins 6. likamshlutann
8. samhljóðar9. leyndardómur 11.
blistra 14. komast yfir.
Lausn á síóustu krossgátu.
Lárétt: 1. askur 6. UKA 7. marr 9.
ek 10. masandi 12. úr 13. tólf 14.
TTR 15. ástin.
Lóðrétt: 1. aurs 2. skratti 3. ká 4.
rakinn 5. ömmuna 8. áar 9. EDL
11. norn 14. TT.
ST. RESTRUP-
nemendur
— Bommsadeisf, segir ráðgjafinn f ævintýrinu um skuldakónginn,
en það er eitt atriði f þjóðmálarevfunni f Iðnó.
Nú hafa Islendingaspjöil verið sýnd 43 sinnum f Iðnó og f dag er
sfðdegissýning á leiknum.
ST. RESTRUP-nemendur
Nemendur frá ST. RESTRUP-
lýðháskóla, Sönderholm, munu
koma saman næstkomandi þriðju-
dagskvöld 18. febrúar til að fagna
fyrrverandi skólastjóra sínum hr.
Svend Haugaard sem er fulltrúi á
þingi Norðurlandaráðs. Allar
nánari upplýsingar í sfmum 15802
og 50185.
Fótaaðgerðir
Kvenfólk Bústaðasóknar hefur
fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk í
safnaðarheimilinu alla fimmtu-
daga kl. 9.30—12. Pöntunum veitt
móttaka í síma 32855.
Hver tók úlpu
í misgripum?
Kristniboðsviku í Hafnarfirði lýkur
Á lokasamkomu Kristniboðsviku I Hafnarfirði í kvöld tala Edda
Gísladóttir og Gunnar Sigurjónsson. Auk þess verður kristniboðsþáttur
og Æskulýðskór K.F.U.M. og K. syngur.
ást er . . .
að nudda bakið
hvort á öðru til að
lina vöðvabólgur
og strengi.
| BRIDC3E ~1
Það vakti mikla athygli í
Evrópumóti fyrir nokkrum árum
þegar Noregur sigraði Italíu með
20 stigum gegn minus 3. Hér er
spil frá þessum leik, sem sýnir að
norsku spilararnir voru afar
harðir í sögnum.
Norður
S. D-10-5-4
II. G
T. 7-4-3
L. A-10-9-5-3
Suður
S. A-K-G-3-2
II. Á-D-10-3
T. Á-K-10-8
L. —
Á þessu spil fóru norsku
spilararnir í 7 spaða, en ítölsku
spilararnir létu sér nægja að
segja 6 spaða.
Til þess að vinna 7 spaða þarf
sagnhafi að fórna hjarta kóngin-
um. Hann valdi þá leið, að reikna
með að vestur ætti hjarta kóng,
tók hjarta ás, lét út drottningu og
þegar vestur gaf þá gaf hann
einnig.
Til viðbótar þessu skiptust
tíglarnir 3—3 hjá andstæðingun-
um svo allt fór vel og norska
sveitin græddi 11 stig á spilinu.
KRISTNIBOÐSSAMBANDIÐ
Gírónúmer
6 5 10 0
—
Fataúthlutun
Systrafélagið Alfa verður með
fataúthlutun að Ingólfsstræti 19.
þriðjudaginn 18. þ.m. kl. 2—5
eftir hádegi.
Á lúðrasveitartónleikum í
Hagaskóla 2. febrúar sl. hefur
einhver tekið í misgripum bláa
drengjaúlpu nr. 12 með loðkraga
og rauðbleiku fóðri og skilið eftir
aðra svipaða, sem er númer 16.
Vinsaml. Látið vita í síma 13677.
Þessar ungu stúlkur, Rósella Gunnarsdóttir og Þórey Guólaugsdóttir,
efndu til hlutaveltu ásamt vinkonu sinni, Ingibjörgu Þorsteinsdóttur,
til ágóða fyrir eiginkonu Geirfinns Einarssonar. Þær eiga allar heima
við Vesturberg f Reykjavfk. Myndin var tekin, þegar þær skiluðu
ágóðanum, kr. 2500.00, til Morgunblaðsins.