Morgunblaðið - 16.02.1975, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRUAR 1975
Starfsfólk ÍSAL gaf #0
þús. kr. í snjóflóðasöfnunina
STJÓRN starfsmannafélags ISAL
afhenti í gær Norðfirðingafélag-
inu í Reykjavík rösklega 400 þús.
kr. til snjóflóðasöfnunarinnar
vegna náttúruhamfaranna í Nes-
kaupstað. Söfnun félagsins hófst
um 10. jan. s.l. og lauk þann 24.
janúar. Að meðaltali gaf hver
starfsmaður Álfélagsins upphæð,
sem svarar 700 krónum.
Það var Birgir Thomsen, for-
maður starfsmannafélags ISAL,
sem afhenti Þórleifi Ólafssyni,
formanni Norðfirðingafélagsins,
gjöfina að viðstöddum stjórnar-
mönnum úr báðum félögum.
hefur aðalstöðvar sínar í Seelis-
berg í Sviss.
Markmið félagsíns er að kynna
hér og kenna innhverfa íhugun
með opinberum fyrirlestrum og
námskeiðum. Jafnframt því sem
félagið stuðlar að almennum vís-
indalegum rannsóknum á áhrif-
um íhugunarinnar á einstakling-
inn og umhverfi hans, stendur
það fyrir fræðilegum fyrirlestr-
um um vísindi skapandi greindar,
eða Science of Creative
Intelligence (SCI). Sú grein hef-
ur verið tekin á námsskrá ýmissa
æðri skóla í Evrópu og Ameríku.
Formaður íhugunarfélagsins er
Sigurþór Aðalsteinsson, arkitekt.
Jörð til sölu
Tilboð óskast í jörðina Innri-Bug, Fróðárhreppi,
Snæf.s. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum. Tilboð sendist Mbl.
fyrir 1. marz merkt: „Jörð — 9660''.
Vöru- og áhaldageymsla
Orkustofnun óskar eftir húsnæði til vöru- og
áhaldageymslu vegna jarðborana ríkisins. Æski-
leg stærð 2—400 fm. Nánari upplýsingar í
síma 1 7400.
Orkustofnun.
íbúð til sölu
við Arnarhraun. Jarðhæð, 96 fm, 3ja
herbergja. Allt sér. Upplýsingar í síma 53229.
200 fm lagerhúsnæði
óskast í austurborginni. Má vera lágt undir loft.
Góð aðkeyrsla skilyrði.
Tilboð merkt: „Lagerhúsnæði — 9559" send-
ist augl.d. Mbl.
Barnaheimili
Erum að stofna lítið barnaheimili nálægt mið-
bænum. Getum bætt við tveimur börnum helst
á skólaaldri.
Ætlumst til að foreldrar taki virkan þátt í
uppbyggingu og rekstri.
Nánari uppl. í síma 271 90 milli kl. 5 — 7 í dag
og á morgun.
Tilkynning
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir janúarmánuð er 17.
febrúar. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þri-
riti.
Fjármálaráðuneytið 10. febrúar 1975.
Fyrirlestur
um íhugun á
Kjarvalsstöðum
15. JANÚAR s.l. var stofnað félag
áhugamanna um innhverfa íhug-
un eða „Transcendental
Meditation", sem er íhugunar-
tækni Maharishi Mahesh Yoga.
Félagið nefnist Islenzka
íhugunarfélagið og starfar það í
tengslum við International
Meditation Society (IMS), sem
Gísl í Menn tmkólan -
um við Hamrahlíð
ANNAÐ kvöld frumsýna nem-
endur í Menntaskólanum í
Hamrahlíð Gísl eftir Brendan
Behan. Leikritið var fyrst sýnt
hér f Þjóðleikhúsinu fyrir um það
bil einum áratug, en hefur síðan
verið sýnt víðar um land.
Þetta er viðamesta verkefni,
sem sett hefur verið á svið í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
til þessa, en sýningin tekur um
tvo tima.
Um tvo mánuði hefur tekið að
æfa leikritið og hefur verið æft á
hverjum degi frá áramótum.
Leikarar eru átján og fjórir hljóð-
færaleikarar taka þátt i sýning-
unni. Að sögn ieikenda slagar tala
þeirra, sem unnið hafa að þessari
uppfærslu, hátt upp í fjörutíu.
Aðalhlutverkin eru í höndum
Ragnheiðar Tryggvadóttur, Karls
Ágústs Ulfssonar, Stefáns
Tryggvasonar, Bjarnar Loga
Björnssonar, Sigríðar Þorgeirs-
dóttur, Jóns Inga Guðmunds-
sonar, Helgu Haraldsdóttur og
Jakobs S. Jönssonar.
Við brugðum okkur á æfingu í
síðustu viku og ræddum við
nokkra leikendur. Þeir sögðu, að
æfingar hefðu gengið vel, og var
auðheyrt, að tíminn, sem undir-
búningur hefur tekið, er ekki tal-
inn eftir. Ráðgert er að sýna leik-
inn a.m.k. fjórum sinnum. Ætlun-
in er að fara með stutta kynning-
ardagskrá í hina ýmsu skóla borg-
arinnar, og sögðu leikendurnir að
þetta væri að sjálfsögðu gert til að
laða að áhorfendur að sýningunni
sjálfri.
Stefán Baldursson er leikstjóri,
en Jónas Árnason þýddi leikritið.
Leikmynd teiknaði Björn Leó
Jónsson en hún er að öllu leyti
unnin af nemendum sjálfum.
Aðgöngumiðar að sýningum
verða seldir í anddyri Mennta-
skólans við Hamrahlíð.
1 Gfsl er sungið, dansað, rifizt, faðmazt og fluttar eldheitar hugsjónaræður til skiptis, enda eru trar
þekktir fyrir stormasöm samskipti.