Morgunblaðið - 16.02.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1975
HÓFSAMIR menn fóru með sigur af
hólmi á nýafstöðnum fundi kin-
verska alþýðuþingsins. hinum fyrsta
sem haldinn hefur verið i tiu ár.
Fyrst og fremst var þingið sigur fyrir
Chou En-lai forsætisráðherra sem
hefur um eins árs skeið sætt gagn-
rýni róttækra manna.
Ný stjórnarskrá. sem þingið sam-
þykkti, á meðal annars að tryggja
verkamönnum verkfallsrétt og
bændum rétt til að eiga jarðir sinar
og rækta þær. Embætti forseta var
lagt niður svo að Kina er að heita má
eina landið í heiminum sem hefur
engan þjóðhöfðingja. Síðast en ekki
sizt skipaði þingið nýja stjórn þannig
að nú er stjórn Kína fullskipuð í
fyrsta skipti siðan hreinsanirnar voru
gerðar á árum menningarbyltingar-
innar.
Að visu gegnir kinverska alþýðu-
lýðveldið aðeins þvi hlutverki að
samþykkja ákvarðanir sem kínversk-
ir forystumenn hafa komið sér
saman um, en ákvarðanirnar sýndu
að meiri samstaða hefur náðst um
markmið og leiðir með kinverskum
forystumönnum en dæmi eru um
siðan menningarbyltingunni lauk.
Eftir þingið situr samhent rikisstjórn
að völdum i Kina og hún virðist vera
traust i sessi
Yeh og Teng
Þótt Chou forsætisráðherra þjáist
af hjartasjúkdómi og hafi legið lengi
í sjúkrahúsi fór ekki á milli mála að
hann átti mestan þátt i viðtækri
endurskipulagningu sem var gerð á
ríkisstjórninni og æðstu stjórn
flokksins með samþykki alþýðu-
þingsins. Sjálfur var Chou endurkjör-
inn forsætisráðherra, en mikilvæg-
ustu breytingarnar voru þær að Yeh
Chien-ying var skipaður landvarna-
ráðherra og Teng Hsiao-ping fyrsti
varaforsætisráðherra.
Yeh Chien-ying landvarnaráðherra
er 76 ára að aldri og er í raun og
veru eftirmaður Lin Piaos marskálks
þar sem enginn maður hefur gegnt
þessu embætti síðan marskálkurinn,
sem var á sinum tima staðgengill
Mao Tse-tungs formanns, lézt í flug-
slysi 1971 eftir meinta tilraun til
þess að ráða formanninn af dögum.
Yeh var á sinum tíma einn helzti
samningamaður Kinverja i viðræðum
þeirra við Henry Kissinger, utanrikis-
ráðherra Bandarikjanna, og hefur
lengi notið mikils álits bæði í flokkn
um og hernum. Hins vegar hefur
hann alltaf verið eindreginn stuðn-
ingsmaður Maos og trúr þvi boðorði
hans að „flokkurinn stjórni fallbyss-
unum." Skipun hans í stöðu land-
varnaráðherra sýnir þvi að flokkur-
inn hefur treyst yfirráð sinum yfir
hernum, en talsvert hefur borið á þvi
að undanförnu að ýmsir yfirmenn
hans hafi reynt að vera sjálfstæðir
og fara fram án tillits til vilja flokks-
ins.
Teng er sjötugur að aldri og er i
raun og veru staðgengill Chous í
starfi sinu sem fyrsti varaforsætis-
ráðherra, en jafnframt var hann kjör-
inn einn af sex varaformönnum
flokksins. Teng féll i ónáð i menn-
ingarbyltingunni og sætti hörðum
árásum, en síðan henni lauk hafa
áhrif hans aukizt jafnt og þétt. Upp-
hefð hans nú er þvi talinn mikill
persónulegur sigur, ekki sizt vegna
þess að eitt sinn kallaði Mao hann
„leynilegan útsendara".
Þar sem Teng gegnir nú valdamikl-
um embættum bæði i rikisstjórninni
og flokknum eru völd hans sennilega
meiri en opinberir titlar hans segja til
um. Margir telja vist að Teng sé nú
liklegasti eftirmaður Chous og jafn-
vel Maos, en margir efast um að þeir
eigi langt eftir ólifað.
Síðan þingið var haldið hefur Teng
jafnframt verið skipaður forseti her-
ráðsins og Yeh yfirmaður stjórnmála-
deildar hersins. Þannig vill Peking-
stjórnin áreiðanlega vera viss um
hollustu hersins og jafnframt sýna
að hún óttist ekki uppreisn i hernum.
Valdhafarnir i Peking vilja umfram
allt tryggja að herinn haldi sér utan
við stjórnmálin, en auk þess eru
Teng og Yeh báðir fyrrverandi her-
menn og líklegt að herinn sé ánægð-
ur með forystu þeirra.
Ósigur róttækra
Chou forsætisráðherra, Yeh land-
varnaráðherra, Teng varaforsætis-
ráðherra og aðrir ráðherrar nýju
stjórnarinnar eru reyndir og hæfir
menn sem hafa unnið saman i marga
áratugi og liklegt er að þeir njóti
vinsælda meðal almennings. Þeim er
það sameiginlegt að þeir eru hófsam-
ir í skoðunum og frábitnir tilraunum
á við þær sem voru gerðar f menn-
ingarbyltingunni. Á alþýðuþinginu
kom líka fram að þeir munu halda
áfram þeirri stefnu að bæta sambúð
ina við erlend ríki og leggja áherzlu á
efnahagslega uppbyggingu heima
fyrir i stað baráttu fyrir hugsjónaleg-
um rétttrúnaði.
Sigur hinna hófsömu á alþýðu
Hver
tekur
við
af
Mao?
Chiang Ching
áhrifum þeirra hafi verið útrýmt. Þeir
standa enn traustari fótum i valda-
kerfinu. En ef til vill er mikilvægara
að þrir nýir menn hafa verið skipaðir
i valdamikil embætti: Chang Chun-
chiao, Hua Kuo-feng og Chen Hsi-
lien.
0 Chang Chun-chiao á sæti í
stjórnmálaráðinu og var nú auk þess
skipaður einn hinna sex varafor-
sætisráðherra Áður fyrr var hann
einn af foringjum flokksins í Shang-
hai og átti þátt í ofsóknum gegn
flokksstarfsmönnum sem féllu í
ónáð. Þess vegna hefur Chang lengi
verið talinn tilheyra hinni vinstri-
sinnuðu Shanghai-kliku, en nú virð-
ist hann hafa gengið i lið með hóf-
sömum. Mikilvægt var að hann var
sá maður sem kynnti hina nýju
stjórnarskrá á alþýðuþinginu. I
ræðum sínum á þinginu forðaðist
hann vigorð vinstrisinna og lagði
áherzlu á „bæði aga og frelsi".
0 Hua Kuo-feng er 53 ára og var
einnig skipaður varaforsætisráð-
herra en gegnir jafnframt starfi
öryggisráðherra. Hua er frá Hunan
eins og Mao og hefur fengið skjótan
frama þar sem hann var ekki skipað-
ur í stjórnmálaráðið fyrr en 1973.
Embætti hans er varasamt þar sem
óstaðfestar fréttir herma að tveir
fyrirrennarar hans hafi verið ráðnir
af dögum, en Ijóst er að áhrif hans
eru mikil bæði í landsmálum og mál-
um dreifbýlisins.
0 Chen Hsi-lien er 62 ára og er
stjórnmálaráðsfulltrúi auk þess að
vera varaforsætisráðherra. Hann er
einn fárra hermanna sem gegna
valdamiklum embættum bæði i
flokknum og stjórninni. Hann er nú
yfirmaður Pekingherstjórnarsvæðis-
ins og hefur jafnframt á hendi yfir-
stjórn varna Innri-Mongoliu og Norð-
ur-Kina ef Rússar gera árás á landið.
Hann er einn af fáum yfirmönnum
hersins sem komust klakklaust
gegnum menningarbyltinguna og
margt bendir til þess að hann geti
orðið landvarnaráðherra.
þinginu var svo alger að hinir rót-
tæku fengu engan fulltrúa í stjórn-
inni þótt þeir væru býsna háværir á
fundum þingsins. Jafnvel kona
Maos, Chiang Ching, fékk ekkert
ráðherraembætti og þó benti margt
til þess í fyrra að áhrif hennar hefðu
aukizt. Þar að auki virðist hún hafa
sótt fast að fá embætti menningar-
ráðherra, en i hennar stað fékk Iftt
þekkt óperutónskáld, Yu Hua-yung,
það embætti sem er sérstaklega
eftirsóknarvert i augum hinna rót-
tæku vegna menningaráhuga þeirra.
Menn úr svokallaðri „Shanghai-
kliku" róttækra manna fengu heldur
engin ráðherraembætti, hvorki
Wang Hung-wen, sem hefur verið
kallaður eftirlæti Maos og er eini
fulltrúi þeirra f stjórnmálaráði flokks-
ins, né annar helzti foringi þeirra,
Yao Wen-yuan.
Þar með er Ijóst að verulega hefur
verið dregið úr áhrifum róttækra á
menningarsviðinu sem áður voru al-
ger en þar með er ekki sagt að
Ósigur Maos
Þótt traust stjórn sé setzt að völd-
um i Kina og hún eigi að tryggja
rikiserfðirnar þegar Mao hverfur af
sjónarviðinu er ekki hægt að útiloka
möguleikann á harðri valdabaráttu.
Að visu virðist Teng helzt koma til
greina sem eftirmaður Maos að
Chou undanskildum en Teng er
gamall. Sama máli gegnir með flesta
hina forystumennina. Enn hafa hinir
róttæku mikil völd i flokknum og