Morgunblaðið - 16.02.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRUAR 1975
31
Herdís Hermóðsdóttir:
Rödd
úr eldhúsinu
Ég var að Ijúka við að lesa grein
eftir Jón ísberg um Mídasargull
og Vísisvizku, en ber ekki neina
sérstaka lotningu fyrir hinni
Jónisku vizku greinarinnar,
vegna þeirrar dæmalausu einsýni
höfundar sem hún ber vitni.
Það mun hárrétt, að allir þekki
söguna um Mídas konung. En hitt
mun þá líka jafnsatt, að allir
þekki gamla málsháttinn að sann-
leikanum verði hver sárreiðastur.
Sú hefur líka orðið raunin á i
þetta sinn. Ég tel mig ekki þurfa
að skjóta skildi fyrir Visi, en
þakka honum hins vegar fyrir að
hafa þorað að taka þetta tabu-mál
til meðferðar, eitt blaða. Það var
seinna en von var á. Enda fékk
alþjóð tækifæri til að hlýða á for-
svarsmenn beggja málsaðila I
sjónvarpinu og hef ég um það
rökstuddan grun, að þar hafi Vis-
ir ekki borið skarðan hlut frá
borði í augum landsmanna.
Mér sýnist nú að fjandinn eigi
marga lærisveina og ekki grun-
laust um að J.í. hafi eitthvað
reynt að apa eftir honum lestrar-
lagið. Að minnsta kosti hef ég
ekki getað fengið það út úr grein-
inni í Vísi, að það sé tillaga um að
leggja niður landbúnaðinn. Hann
bendir aðeins á, að óforsvaranlegt
sé að skattpína almenning til að
standa undir framleiðslu land-
búnaðarvara, en selja svo þessum
sama almenningi framleiðsluna á
þvi okurverði, að okkur, neytend-
unum veitti alls ekki af öllu
Mídasargulli til að geta alið börn-
in okkar upp á eðlilegu og hollu
fæði.
Þetta hef ég sjálf reynt að sýna
fram á, og eins hitt, sem er þó
sýnu verri gerningur, en það er að
skattleggja þennan sama neyt-
anda, sem ekki getur keypt búvör-
urnar sökum þessa okurverðs, til
að borga þær ofan í erlenda neyt-
endur og það í svo ríkum mæli, að
t.d. Færeyingar sögðu í haust, að
þeir borðuðu íslenzkt lambakjöt i
allar máltíðir vegna þessk að það
væri svo ágætt og ódýrt, en
keyptu sér svo fisk til að steikja á
sunnudögum!! Þetta er, að mín-
um dómi ekki aðeins óverjandi,
það er glæpur.
Svo það má kannski með nokkr-
um hætti segja, að ég hafi raufað
þann seyð, er nú rýkur, enda fékk
ég litlar þakkir fyrir, sem kunn-
ugt er, En það skemmtilega skeð-
ur, að sumt er mjög líkt í svari
Inga Tryggvasonar við grein
minni í Morgunblaðinu og þessari
grein J.í. Þeir telja sem sé, að
ekki sé rétt farið með tölur. En
þeir vita vel að þær eru réttar, og
það sem betra er, aimenningur
veit það. Sá almenningur, sem
ekki hefur ráðherra-, þingmanns-
eða sýslumannslaun til að standa
gegn þeirri lífskjaraskerðingu,
sem þessi ríkisverndaða einokun
á aðalneyzluvörum fólks bakar
honum. Þegar svo er komið, að
t.d. gulrófur, teknar upp úr
íslenzkri mold, eru seldar hér á
sama verði og suðrænir ávextir,
sem fluttir eru til landsins yfir
óravíddir heimshafanna á dýrum
skipum, og sjómennirnir okkar
geta keypt erlendis egg, kjöt
(jafnvel íslenzkt) og smjör á
helmingi lægra verði (en fá það
ekki) en sömu vörutegundir hér-
lendis, þá er ekki nema réttmæt
krafa að leyfður sé innflutningur
á þessum nauðsynlegu fæðuteg-
undum.
Það er ekki verið að ráðast gegn
bændum. Það er ekki verið að
leggja tii að bændastéttin sé lögð
niður. Það er einfaldlega verið að
kerfjast þess, að hinn almenni
borgari geti haft sómasamlega f
sig og á, án þess að þurfa að fá
kauphækkanir annan hvern mán-
uð, og gera þar með allan annan
atvinnurekstur óstarfhæfan og
ósamkeppnisfæran á erlendum
mörkuðum sökum dýrleika.
Það hefur aldrei heyrzt, að t.d.
fatasaumur í landinu ætti að
leggjast niður af því að flutt eru
inn föt. Það er flutt inn kex, þó
kvexverksmiðjur séu hér starf-
andi. Sömuleiðis alls kyns brauð
og kökur (og tertubotnar) þó
fjöldi brauðgerðarhúsa sé hér
starfræktur. Einnig eru flutt inn
húsgögn þó hægt væri að full-
nægja allri efti'rspurn frá inn-
lendum húsgagnaverkstæðum,
svo nokkuð sé nefnt.
Enginn talar um að ráðizt sé
gegn þessum iðngreinum þó inn-
flutningur sé leyfður á þessum
vörutegundum.
Hvers vegna ætti landbúnaður-
inn að vera undanþeginn allri
samkeppni?
Að vfsu voru sumar af þessum
innfluttu vörum háðar hinum svo-
kölluðu verndartollum. Það er
meinið. Þess vegna þurfa innlend-
ir framleiðendur ekkert að hugsa
um hagkvæmni og bætt fyrir-
komulag. Því verður aldrei um
neina framför að ræða, hvorki um
verðlag né vöruvöndun
Þannig fóðra stjórnvöld á hverj-
um tíma verðbólguna. Og það
væri synd að segja, að hún væri
ekki vel framgengin.
Þar var stjórn hinna vinnandi
stétta! engin undantekning, sam-
anber hina óraunhæfu kjara-
samninga í febrúar í fyrra.
Sýnir í Klausturhólum
Gunnar Þorlcifsson framkvæmdastjóri opnaði um síðustu helgi mál-
verkasýningu í sýningarsal verzlunarinnar Klausturhóla, Lækjargötu
2. Gunnar sýnir þar 40 myndir, og á fimmtudaginn höfðu 8 þeirra selst.
Sýning Gunnars verður opin til næstu mánaðamóta. Athygli fólks skal
vakin á því, að sýningarsalurinn er á 2. hæð, og er gengið í gegnum
verzlunina og þaðan upp á loft. Myndin sýnir Gunnar við tvö verka
sinna.
Þeir voru gerðir á þeim forsend-
um að dýrtíðin væri, þá þegar,
orðin slík, að fólk gæti ekki lifað
af, nema fá verulega kauphækk-
un. Og viðurkennt af öllum. i
En hvernig fór? Jú, marz kom og
kaupið hækkaði. En fólkið, sem
nú þóttist loks sjá svolitla glætu
framundan, var ekki búið að fá
fyrstu útborgun eftir nýja taxtan-
um, þegar allar landbúnaðarvör-
urnar voru látnar hækka um tugi
og hundruð króna pr. kg. og góð-
semisgrútartýra vinstri stjórnar-
innar slokknaði fyrir fullt og allt.
Svo ég snúi mér aftur að J.í. og
Midasargullinu hans, er hann seg-
ir að enginn tali um olíugróðann.
Það gera þó margir. Þar er ég
engin undantekning.
Ég tel það algert hneyksli hvern-
ig Rússar okra á olíunni. Með
hliðsjón af þvi að þeir þykjast
fyrirlíta hina vestrænu
kapitalista og auðvaldsskipulag
og arðránsstefnu þeirra eru þeir
af þvi sýnu verri, að taka upp hið
arabíska þvingunarverð á oliunni
gagnvart gömlu viðskiptaríki. Og
ég er ekki I vafa um, að hefðu
Bandaríkjamenn verið okkar við-
skiptamenn og selt okkur sömu
olíukaupakjör og Rússar gera,
væri ekki jafn hljótt um olíuokrið
á siðum Þjóðviljans og nú er.
Og það tel ég óhæfilegt misrétti,
að fólk sem býr við olíuhitun húsa
og rafmagn framleitt með oliu
skuli þurfa að gjalda sömu skatt-
prósentu og þeir, sem langtum
betur eru settir að þessu leyti.
Þetta fólk býr í sfnum gömlu hús-
um, lítið sem ekkert einangruðum
og fer með 1000 1. minnst á mán-
uði yfir veturinn, aðeins minna á
sumrum, ef síðasta sumar er
mælikvarðinn. Þá eru 600 kr. lítið
bót eins og flestir geta séð. Hvers
vegna fellir ríkið ekki niður toll-
inn á oliu til húsakyndingar? Það
sýnist þó ólíkt vitlegra en það
fyrirkomulag sem nú er. Það
mundi bæta hag þessa fólks án
beinna kauphækkana og um leið
kippt einum spæni úr aski verð-
bólgunnar.
En á hverjum bitnar svo verð-
bólgan harðast? A húsmæðrun-
um. Og samt tel ég þær bera sína
ábyrgð á þessu ófremdarástandi,
njeð sinni dæmalausu þolinmæði
og afskiptaleysi. Verðbólgan æðir
áfram og þær vita ekki hvernig
þær eiga að fara að því að láta
kaupið duga fyrir brýnustu þörf-
um heimilanna.
Ég trúi því varla, þrátt fyrir
allt, að húsmæður þessa lands séu
svo hundflatur skrælingjalýður,
að þær þegi við þvilíkum kjafts-
höggum og þeim hafa verið
greidd á þessu þjóðhátíðarári í
formi hinna síendurteknu stór-
hækkana á verði matvæla, aðal-
lega landbúnaðarvara. Ég tel
landbúnaðinn nauðsynlega at-
vinnugrein í landinu, en tek ekki
undir það, að bændur séu nauð-
synlegri en aðrir þegnar þjóð-
félagsins. A.m.k. ekki nauðsyn-
legri en fólkið sem er nýtt til að
kaupa framleiðslu þeirra á okur-
verði. Hver einasta viti borin
manneskja veit, að við eigum við
mikla erfiðleika að etja i þjóðar-
búskapnum. En það er sjaldan
minnzt á þá erfiðleika sem hver
húsmóðir verður að sjá fram úr
dag hvern. En það vil ég full-
yrða, að treysti húsmæður sér til
að láta hin venjulegu daglaun
duga fyrir nauðþurftum eins og
málin horfa við frá minum bæjar-
dyrum séð, þá hafa þær til að bera
meira fjármála- og hagræðingar-
vit í litla fingrinum, en fyrir-
finnst í heilabúi fjármála- og hag-
sýsluspekinga, bæði fyrrverandi
og núverandi ríkisstjórnar, og
ættu þeir skilyrðislaust að rýma
sess fyrir þvilíkum hæfileika-
mönnum í fjármálastjórn, því oft
er þörf, en nú er nauðsyn.
Þar með kveð ég að þessu sinni
og þykir sjálfsagt nóg sagt, þó
margt sé ósagt látið.
Skrifað hinn 18. janúar 1975.
Herdfs Hermóðsdóttir.
ðjaukjorio 1
Múrarafélagi
Reykjavíkur
Frestur til að skila framboðs-
listum til stjórnarkjörs í Múrara-
félagi Reykjavíkur rann út 12.
febrúar. Einn listi kom fram, listi
fráfarandi stjórnar, og er hann
því sjálfkjörinn.
Stjórnina skipa eftirtaldir
menn næsta ár: Kristján Haralds-
son, formaður, Helgi Steinar
Karlsson, varaformaður, Þórar-
inn Hrófsson, ritari, Öli Kr. Jóns-
son og Ölafur Sigurðsson, en tveir
þeir siðasttöldu skipta með sér
gjaldkerastörfum.
Varastjórn skipa: Trausti L.
Jónsson, Ólafur Veturliðason og
Arilius Harðarson.
Kvenfélag
Húsavíkur
80 ára
Húsavik 14. febrúar
KVENFÉLAG Húsavíkur varð
áttatíu ára i gær og minnist þess-
ara timamóta með fagnaði í
félagsheimilinu á Húsavík á
morgun, laugardag. Frá upphafi
hefur markmið félagsins verið að
stuðla að eflingu menningar og
framfaramála Húsavíkur, og
mætti þar margt upp telja. T.d.
hefur félagið gefið flesta þá
kirkjugripi, sem prýða Húsa-
víkurkirkju.
Frá stofnun hefur félagið hald-
ið ókeypis jólaskemmtun fyrir öll
barnaskólabörn á Húsavik, svo
margir eru þeir sem frá upphafi
hafa notió veitinga og velgjörn-
inga þessa ágæta félags.
Það er ómælt það starf, sem
kvenfélagskonur hafa lagt
málefnum Húsavíkur og væri það
mikið ef mælt væri i timum eða
fjármunum.
— Fréttaritari.
— Rafvæðing
Framhald af bls. 27
þær spurningar einnig komið
fram, hvort ekki sé æskilegra að
nota þessa orku til annarra hluta
heldur en járnblendiframleiðslu,
t.d. til matvælaframleiðslu með
einum eða öðrum hætti. í því sam-
bandi vil ég taka það fram, að við
höfum, íslendingar, stórkostlega
möguleika til margs konar mat-
vælaframleiðslu, ylræktar- og
grænmetisframleiöslu með jarð-
hita, og það er enginn vafi á þvi,
að notkun þeirrar orku, jarðhita-
orkunnar, er hagkvæmari heldur
en notkun raforku í því skyni.
Það liggja fyrir miklar áætlanir
og greinargerðir um ylrækt með
notkun jarðhita og jarðgufu, og
verður væntanlega tækifæri til
þess áður en langt um líður að
ræða þau mál nánar hér á Alþ.
Stórvirkjun
á Norðurlandi
Virkjunarmöguleikar á Norður-
landi eru margvíslegir og miklir
og það þarf að huga vel að þeim.
Því miður er svo ástatt um rann-
sóknir og undirbúning að það á
nokkuð í land enn. Vil ég þar
nefna sérstaklega þessa fjóra
möguleika sem kannski eru stært-
ist og nærtækastir, þar sem er
virkjun i Dettifoss, virkjun í
Skjálfandafljóti, virkjun Jökulsár
eða jökulsánna í Skagafirði og
virkjun Blöndu. Það þarf að
hraða eftir þvi sem föng eru á
undirbúningi og ákvörðunum og
síðan framkvæmdum við nýja
vatnsaflsvirkjun á Norðurlandi
og ég vil taka það fram sem mína
skoðun, að ég tel að virkjun
Blöndu sé einhver hagkvæmasti
og öruggasti virkjunarkostur sem
völ er á, rannsóknir allvel á veg
komnar, Þó ekki nægilega til end-
anlegrar ákvörðunar. Mér virðist
mjög æskilegt að sem fyrst yrðu
teknar ákvarðanir um stórvirkjun
fyrir norðan til þess að skapa þar
möguleika á auknu atvinnulífi,
auknum iðnaði, stórvirkjun, sem
gæti þá orðið lyftistöng fyrir þann
landshluta eigi siður heldur en
þær stórvirkjanir og stóriðju-
framkvæmdir sem risið hafa hér
á Suð-Vesturlandi. Og það eru
óneitanlega miklar likur til þess
að Blönduvirkjun yrði þar fyrir
valinu, svo fremi að samningar
takist um land- og vatnsréttindi
við eigendur, sem að meginhluta
eru upprekstrarfélög Auðkúlu-
heiðar og Eyvindarstaðaheiðar.
Ég tel nauðsynlegt í sambandi
við slikar stóriðjufyrirætlanir
eins og gert er ráð fyrir i þessu
frv. að huga að byggðamálunum
og hvað hægt er að gera í virkjun-
ar og iðnaðarmálum á næstunni í
öðrum landshlutum.
Brezki vinsæld Brezki vinsældalistinn er þannig: alistinn
1(1) January Pilot
2(3) Sugar candy kisses Mac and Katie Kisson
3 (10) Please mr. Postman Carpenters
4( 7) Goodbye my Love Glitter Band
5 (12) Angie babv
6 (18) Black superman (muhammed ali)
1 Johnny Wakelin and the Kinshasa Band
7(17) Star on a tv show Stylistics
8 (23) Footsee .. Wigan’s Chosen Few
9 (13) How i'm here
10 ( 6) Morning side of the mountain .. Donny and Marie Osmond
Bandaríski vinsældalistinn
Vinsælustu lögin í Bandaríkjunum eru:
1(2) You’re no good
2(3) Fire
3 ( 4) Pick up the pieces .. Average White Band
4(5) Best of my Love
5 ( 9) Blaek walter
6(11) Boogie on reggae woman Stevie Wonder
7(8) Somc kind of wonderful Grand Funk
8 (12) Mv eves adored vou Frankie Valli
9 (21) Have you ever benn mellow Olivia Newton-John
10 (11) Get danein’ Disco Jex and the Sex-o-Lettes