Morgunblaðið - 16.02.1975, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.02.1975, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRUAR 1975. 111 Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen anna á milli auk alls annars. Eftir að búið var að kveikja og borða, minntist Sigríður á, hvort ekki ætti að fara að spila; það þótti þeim Indriða og Ormi gott ráð, Ingveldi þótti og gaman að spila, og var hún sú f jórða, og er nú farið í alkort. Við Indriði verðum saman, sagði Sigríður, Spilin skulu ráða, sagði Ormur; því ekki var honum meir en svo um að vera saman við móður sína, er hann vissi, að hún var sjaldan vön að fá lýju. Hjartakóngur er hér, sagði Indriði. Og hérna er hjartadrottning, og þá erum við saman, Indriði minn, eins og ég vildi; og fáðu nú gott, því við eigum að vinna. Er þá tekið til að spila og gekk þeim Indriða betur; hver strokan og múkurinn eftir annan. Nú skulum við einu sinni fá stroku, Ormur litli! sagði Ingveldur, í því hún rétti spilin að Indriða til að draga, en það er verst, að hún Sigga á útsláttinn. Nei, nei, ekki held ég verði stroka í þetta sinn, segir Sigríður ofur glöð, í því hún tók upp spilin, því hérna fékk ég fjóra besefa í einum slag. Fjóra besefa í einum slag! Þá verður að gefa upp aftur. Æ, nei, móðir mín góð, þeir voru ekki nema þrír, en þann fjórða fékk ég í öðrum slagi; ég hef ekki nema níu á hendinni. Víst voru þeir fjórir í einum slag, spilið er ónýtt. Varð þá að vera sem Ingveldur vildi, og gefur hún upp aftur. Það var þá ekki verra, sagði Sigríður í hálfum HOGNI HREKKVISI Einn hamborgara — og annan með fiskhausum hljóðum og ætlar að stíga fætinum ofan á tána á Indriða, og átti það að þýða hjartatvistinn, en sté í þess stað óvart ofan á fótinn á móður sinni undir borðinu. Þetta spil er ógilt, sagði Ingveldur, þá er hún skoðaði hjá sér spilin og sá að stóra brúnkolla var hæsta spilið. Þú sagðir honum Indriða til og steigst ofan á fótinn á mér, stelpan þín, og svo stelur þú úr stokknum, held ég, og því fæ ég ekki roð. Nei, það gjöri ég ekki móðir góð! Ætlar þú að bera á móti því, sem ég sé? Ég vil ekki spila við þig; það er bezt að fara í þjóf og láta hýða þig- Þá kölluðu allir: Já þjóf! Við skulum fara í þjóf. — En Ingveldur vildi nú ekki spila meira og varð svo ekki úr spilamennskunni framar, enda var þá farið að líða á vökuna, og vildi Indriði fara að fara heim. Bjarni hreppstjóri skipaði einum af vinnumönnum sínum að fylgja Indriða yfir að Hóli, en bað Indriða að koma þar oftar, er hann hefði tíma til — því mér segir svo hugur um, að þú verðir gæfumaður, og eru komur þínar hingað mér kærar. Sigríður litla beiddi föður sinn að lofa sér að fylgja Indriða á veg ofan fyrir túnið, og leyfði hann það. Þegar komið var ofan fyrir túnið, segir Sigríður við Indriða: Hér verð ég að snúa aftur, Indriði minn. Ég má ekki fylgja þér lengra í þetta sinn, en þetta sagði hann faðir minn mér, að ég skyldi gefa þér, því hann veit að þú ert smiðsefni; en þessir leppar eru frá mér sjálfri, ég hef prjónað þá sjálf; og vertu nú sæll og blessaður! Og komdu bráðum yfir um aftur, ef þú getur, því mér þykir svo vænt um að sjá þig og get aldrei gleymt þér. Indriði kyssti Sigríði fyrir gjafirnar og þótti harla vænt um þær, einkum hefilinn og sögina, sem Bjarni hafði sent honum. Ekki fundust þau Sigríður oftar þennan vetur; en nokkrum sinnum kom hann að Tungu á þeim missir- um, og varð ætíð mikill fagnaðarfundur með þeim Sigríði, er þau sáust, og skildust jafnan með blíðu. Líður svo fram til þess, að Sigríður er staðfest. Faðir hennar kenndi henni spurningarnar og að skrifa og dálítið i talnafræði; þótti presti, er hún var fermd, að hún væri afbragð annarra barna að kunnáttu og hrósaði gáfum hennar og stillingu. Ekki tók Sigríður eins miklum framförum til handanna; móðir hennar hafói hana til alls, sem gjöra þurfti á heimilinu, eins og aðrar griðkonur; nam hún að sönnu öll innanbæjarverk, sem hún sá fyrir sér, og tóvinnu, sem tíðast er í sveitum, en ekki fékkst móðir hennar við að kenna henni hannyrðir eða matreiðslu; kunni hún þó hvorttveggja vel. Bjarni hreppstjóri ámálgaði það oft við konu sína, að Sigríði væru kenndir saumar og matartilbúningur, en Ing- veldur sagöi jafnan, að hún vænti þess ekki, að Sigga yrði sú fyrirmannsfrúin, aó hún munda þurfa mikils FERDIIVIAIMD IJ 1 j i T~ » ^ i s (TkðfnofQUAkQÍfinu Feðurnir læra smá- barna nostur Skýrt er frá þvf f dönskum blöðum, að fæðíngarstofnun ein f Kaupmannahöfn, hafi tekið upp nýjan þátt f starf- semi sinni sem svo mjög þykir vænleg til árangurs. Feður barnanna koma þangað á kvöldin tii þess að læra að ann- ast um reifabörn sín sjálfir. Þetta er gert á þann hátt að eftir að reglulegum heim- sóknartfma er lokið, fá þeir að dvelja eina klukkustund með eiginkonu og barni og er þess- um tíma til þess varið að feðurnir læri að annast barnið sjálfir. Á þennan hátt eiga eiginmennirnir að vera orðnir- vei skólaðir í öllu smábarna- nostrinu er móðir og barn koma heim af fæðingarstof- unni. — Um ieið öðlast þeir lika þá reynslu að þeim er vel ijóst að það er mikil vinna að annast um börnin, eins og komist er að orði í fréttagrein um þetta i Politiken. Ég vil lika sjá, ég vil líka sjá! Gunna — þetta er nú einum of, þó þú viljir rifta trúlofun- inni. Jæja, þá erum við komnir á botninn. Hvor verður á undan niður?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.