Morgunblaðið - 16.02.1975, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRUAR 1975
47
Ljósm. Sv. Þorm.
VOGASKÓLI — Byggingarframkvæmdir eru fyrir nokkru hafnar við nýja
álmu Vogaskólans í Reykjavík. Eins og menn vita, fer hluti af starfsemi
Menntaskólans við Tjörnina nú fram í Vogaskóla og stefnt er að því, að öll
starfsemi skólans flytjist þangað.
Heimilistæki og
smábílar fjúka út
EFTIR þeini upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
hefur sala f heimilistækjum og
notuðum bifreiðum verið gífur-
lega mikil síðustu daga. Flestar
heimilistækjaverzlanir borgar-
innar standa nú að mestu auðar,
þar sem þær hafa ekki fengið
afgreiddar vörur úr tollvöru-
geymslu frá því f iok janúar. A
bflasölum er ekki einn einasti
smáblll lengur, — þeir hafa
hreint og beint fokið út sfðustu
daga, eins og einn bílasalinn
sagði.
Halldór Snorrason hjá Aðal-
bílasölunni sagði að salan undan-
leið, og nýttist aðeins rétt rúmur
helmingur þessara sæta. Þrátt
fyrir 13% niðurskurð á sætafram-
boðinu á sl. ári skánaði ástandið
sáralítið og allar horfur eru á að
flugfélögin verði enn að herða
sultarólina á þessu ári.
farna daga hefði nálgast kaupæði,
en samt hefði hann séð fjörugri
sölu. Fyrst og fremst væru það
hinir minni bilar sem rynnu út,
frá V-Evrópu og Japan, hinar
smærri gerðir af amerisku bílun-
um seldust einnig, en engin
hreyfing væri i þeim stærri.
Finnbogi Asgeirsson hjá Sveini
Egilssyni sagði að þeir ættu nú
engan notaðan bil — salan hefði
verið gífurlega fjörug. Hins vegar
væri ekki raunhæft að tala um
sölu á nýjum bilum, þar sem þeir
hefðu ekki fengist útleystir i lang-
an tima, en enn biði fólk sem
ætlaði sér að kaupa nýja bíla og
þá væri einkum verið aó kaupa
litla bila.
Páll Stefánsson hjá Raftorg
sagði, að hjá þeim væru öll heim-
ilistæki seld, þó svo að eitthvað
væri eftir inni i verzluninni. Það
væru aðeins tæki sem ætti eftir að
aka út og tengja hjá fólki.
Hann sagði, að þeir hefðu ekki
getað leyst út ný heimilistæki síð-
an 30. janúar og hefði það komið
sér mjög bagalega.
— Við svona breytingar eins og
nú, er gjaldeyririnn hækkar um
25%, kemur upp gífurlegt vanda-
mál hjá okkur við að leysa út
vörurnar, þar sem allur lager
verður að seljast samkvæmt eldra
verði. Sem dæmi um hækkanirn-
ar sem orðið hafa, þá kostar
þvottavél núna 84 þús. kr., en
kostaði 39 þús. kr. fyrir ári.
Páll sagði, að áður en talið um
gengisfellinguna byrjaði að heyr-
ast hefði verið byrjað aó votta
fyrir miklum samdrætti í sölu raf-
tækja og gert væri ráð fyrir að á
þessu ári yrði litil sala miðað við
s.l. ár.
Birgir Örn Birgirs hjá Heimilis-
tækjum sagði, að hjá þeim væru
öll stærri tæki búin og það fyrir 2
vikum. — Þetta væri endurtekn-
ing frá þvi I haust, er gengið var
fellt siðast.
SUS-stjórn mót-
mælir frumvarpi
— Norður-
landaráð
Framhald af bls. 1
tekur við embætti skrifstofu-
stjóra finnska þjóðþingsins.
Ragnhildur drap í ræðu sinni á
þau tákn norrænnar samvinnu,
sem Islendingar hefðu fyrir aug-
um i daglegu lífi sínu, Norræna
húsið, Norrænu eldfjallstöðina og
uppbygginguna í Vestmannaeyj-
um, sem Norðurlandaþjóðirnar
hefðu lagt veglegt lið. Síðan lagði
hún út af því, að þing Norður-
landaráðs skyldi haldið i Þjóðleik-
húsi Islendinga og sagði þá til, er
héldu þvi fram, að þar væri
stjórnmálastarfió á sinum stað.
En líklega væri þetta ekki eins
niðrandi og til væri ætlazt, því að
leikstarfsemi og stjórnmálastarf-
semi ættu margt sameiginlegt,
m.a. væri báðum ætlað að vera
spegilmyndir þjóðlífsins. (Ræða
Ragnhildar Helgadóttur er birt í
heild á bls. 3 i blaðinu í dag).
Að ræðu sinni lokinni tók Ragn-
hildur við fundarstjórn og voru
þá afgreiddir tíu dagskrárliðir,
flestir viðvíkjandi málsmeðferð á
þinginu og atkvæðagreiðslum,
sem verða með nafnakalli. Þá var
kjörin upplýsinganefnd ráðsins
og eiga i henni sæti tveir fulltrúar
frá hverju landanna; af Islands
hálfu Gylfi Þ. Gíslason og Jón
Skaftason, frá Danmörku Chr.
Christiansen og Robert Petersen,
frá Finnlandi Kalevi Kivistö og
Juhani Saukkonen, frá Noregi
Guttorm Hansen og Jo Benkow og
frá Svíþjóð Sture Palm og Per
Olof Sundman. Loks var kosió i
nefnd menningarmálasjóðsins,
aðalfulltrúar og varamenn; frá Is-
landi Gylfi Þ. Gislason, til vara
Ragnhildur Helgadóttir, frá Dan-
mörku Robert Pedersen, til vara
Svend Haugaard, frá Finnlandi
Mauno Forsman og til vara Elsi
Hetemaki, frá Noregi Per Borten,
til vara Liv Stubberud og frá
Sviþjóð Paul Jansson, til vara Jo-
hannes Antonsson.
Laust eftir klukkan tólf var
gert hádegisverðarhlé en kl. 14
áttu að hefjast almennar umræð-
ur.
— 300 millj.
Framhald af bls. 48
neytiskostnaður íslenzku flug-
félaganna um 112% á sl. ári einu
saman.
Hallinn i innanlandsfluginu
varð um 50 milljónir króna á sl.
ári eftir því sem áætlað er, og
hallinn á N-Atlantshafsflug-
leiðinni nam um 250 milljónum
króna. Er ljóst að samdráttur hef-
ur orðið á þeirri flugleið hjá Loft-
leiðum, eins og raunar allflestum
flugfélögum veraldar, en ekki
liggja fyrir tölur um það hversu
sá samdráttur er mikill.
Engu aó siður er ljóst að sæta-
nýting Loftleióa á N-
Atlantshafsflugleiðinni hefur
verið mjög góð á sl. ári og langt
umfram meóallag. Árið 1973 voru
um 17 milljónir sæta í boði meðal
allra flugfélaganna sem halda
uppi áætlunarflugi á þessari flug-
KOMIÐ hefur í Ijós, að af-
greiðslutfmi véla til Kröfluvirkj-
unar er styttri en gert var ráð
fyrir í upphafi og gera menn sér
nú jafnvel vonir um að virkjun
komist í gang 1977, þ.e. ekki taki
nema 24 mánuði að reisa virkjun-
ina f stað 43 eins og upphaflega
var áætlað.
Páll Lúðvíksson, varaformaður
undirbúningsnefndar Kröflu-
virkjunar, sagði er Morgunblaðið
ræddi við hann í gær, að undir-
— Wodehouse
Framhald af bls. 1
aristókratiska brezka húmors, og
skapaði persónur á borð við
Bertio Wooster, hinn dæmigerða
hástéttarséntilmann, og Jeeves,
þjón hans, sem sjálfsagt eiga eftir
að lifa lengi. Vettvangur sagna
Wodehouse var tíðast
aristókratískt sæluríki þess tima-
bils sem kennt er við Játvarð
kóng. Wodehouse bjó i Banda-
ríkjunum siðustu 35 ár ævi sinn-
ar, en var aðlaður af Breta-
drottningu um s.l. áramót. Hann
skrifaði alveg fram í andlátið.
búningsvinna héldi áfram af
krafti og er það verk að mestu i
höndum verkfræðiskrifstofu
Sigurðar Thoroddsen. Strax og
vorar verður byrjað að bora og
framkvæmdir hefjast á staðnum á
svipuðum tíma.
— Frumáætlun gerir ráð fyrir
að virkjunin verói byggð á 43
mánuðum, en nú er greinilegt að
afgreiðslutími véla er mun styttri
en gert var ráð fyrir, og ef það
stendur gerum við okkur vonir
Stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna mótmælir harðlega
frumvarpi til laga um samræmda
vinnslu sjávarafla og veiða, sem
háðar eru sérstökum leyfum er
nú liggur fyrir Alþingi. Stjórn
S.U.S. telur að Sjávarútvegsráðu-
neytið hafi alla möguleika á þvi í
dag skv. núgildandi lögum að tak-
um aó virkjunin verði reist á 2
árum og komist í gang 1977, sagði
Páll.
Kröfluvirkjun á að verða i fullri
stærð samtals 55 megawött, en
gert er ráð fyrir að hún verði
tekin í notkun í tveimur áföngum
og 1. áfanginn verði 30 megawött.
Kostnaöaráætlun var gerð á
árinu 1973, en nú þarf að endur-
skoða hana, þar sem miklar
breytingar hafa orðið á öllum
sviðum.
marka bæði afla og sókn og
vernda þannig stofna rækju- og
skelfisks eins og rétt þykir hverju
sinni.
Þau ákvæði frumvarpsins, sem
stjórn S.U.S. mótmælir sérstak-
lega og telur afar varhugaverð,
eru ákvæði 1. gr. frv. þar sem
sjávarútvegsráðherra og embætt-
ismönnum hans er veitt heimild
til að setja reglur um skiptingu
afla rnilli vinnslustöðva og enn-
fremur ákvæði 2. gr. frv. þar sem
gert er ráð fyrir því, að sömu
aðilar geti upp á sitt eindæmi
ákveðið, hverjir byggja megi
vinnslustöðvar eða auka afkasta-
getu þeirra, sem fyrir eru i þeim
greinum veiða, sem háðar eru sér-
stökum leyfum skv. 1. gr.
Ljóst er, að frumvarpið stórefl-
ir rikisafskipti og þjappar öllu
valdi, í þvi máli sem frv. ræðir
um, í hendur ráðherra sjávarút-
vegsmála hverju sinni, sem auð-
veldlega getur leitt til misnotkun-
ar og hlutdrægni.
Stjórn S.U.S. minnir þingmenn
á, sérstakléga þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, að of mikilli rik-
isíhlutun um atvinnurekstur hef-
ur alltaf, fyrr eða siðar, fylgt
stöðnun, spilling, og versnandi
lífskjör.
BLÍ efnir til
happdrættis
BLAKSAMBAND Islands hefur
ákveðið að efna til happdrættis til
fjáröflunar fyrir sambandið.
Dregið verður í happdrætti þessu
20. marz n.k. og eru vinningar 10,
þeirra á meðal tvær ferðir til
sólarlanda. Utgefnir miðar eru
5500 og verð hvers miða er kr.
200.00.
— Franska kvik-
myndavikan
Framhald af bls. 46
KINNHESTURINN:
La Gifle, gerð 1974.
Leikstjóri: Claude Pinoteu.
Leikarar: Lino Ventura, Annie
Girardot og Isabelle Adjani.
Jean er prófessor um
fimmtugt, fráskilinn, en býr
með aðlaðandi konu og dóttur
sinni. Hann fellur i ónáð hjá
skólayfirvöidum út af smáatriði
og segir upp starfi sinu i
vonsku. Sambýliskonunni líst
ekki meir en svo á fjárhags-
grundvöllinn í nánustu framtíó,
svo hún pakkar saman og fer.
Isabelle, dóttir hans, er átján
ára og langar til að flytjast að
heiman í ævintýralegra um-
hverfi, en faðir hennar neitar
henni um það. Hún er hins veg-
ar enginn eftirbátur föður sins
i rifrildum og endar eitt þeirra
með þvi, að hann slær hana
eftirminnilega utan undir. En
Isabelle á einnig f striði við
fleira, vinnuna, strákana, bæ-
inn og peningana og yfirleitt
allt. Persónur myndarinnar elt-
ast hver við aðra og í hringiðu
lífsins skiptast á skin og skúrir.
KALDHÆÐNI
ÖRLAGANNA:
L’Ironie du sort, gerð 1974.
Leikstjóri: E. Molinaro.
Aðalleikarar: Claude Rich,
Jean Dessailly og Pierre
Clémenti.
Sagan gerist í sióari heims-
styrjöldinni árið 1943, og fjallar
um frönsku andspyrnuhreyf-
inguna. Antoine, meðlimi i
hreyfingunni, hefur verið falið
að drepa þýskan herforingja,
sem hefur undir höndum nöfn
á félögum i hreyfingunni.
Takist honum það, bjargar
hann félögum sinum og yfir-
manni, Jean, sem reyndar er
æskuvinur hans, en týnir lífinu
sjálfur. Mistakist honum,
veróur Jean skotinn. Loka-
niðurstaðan af gerðum hans
skiptir miklu máli og snertir
ýmsa, hver svo sem hún verður,
m.a. Önnu, vinkonu Jean og
Antoine, sem á von á barni
Antoine. í myndinni eru báðir
þessir möguleikar sýndir,
annar i litum en hinn
svart/hvitu. Er hér vafalaust
um all forvitnilega mynd að
ræða.
AUTT SÆTI:
La Caise vide, gerð 1975.
Leikstjóri: Pierre Jallaud.
Aðalleikarar: Martine Chevali-
er, Maxime Le Forestier.
Anna, sem er 22 ára býr ein
með syni sinum, Sainúel. Lif
hennar er reglubundið; vinna
úti allan daginn, hlaup með
drenginn í pössun og úr pössun.
Allir dagar eru eins nema
sunnudagur, sem hún helgar
syni sínum. Af og til rifjar
Anna upp minningarnar um
föður drengsins, Marc, sem var
fréttaljósmyndari og fór viða. 1
einni för sinni til Afríku
hverfur hann sporlaúst og
Anna hefur lifað i minningunni
um hann siðan. Af tilviljun
kynnist hún Maxirne, ungum og
dulum tónlistarmanni og sinám
saman vikja minningarnar um
Marc úr huga hennar. Þegar
Maxime tjáir henni svo ást sina.
er hún reíðubúin að taka henni,
en vill þó ekki binda sig til
langframa vegna Samúels. En
samband hennar við Maxime
hefur endurvakið lífslöngun
hennar.
1. áfangi Kröfluvirkj-
unar í gang 1977?