Morgunblaðið - 05.07.1979, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ1979
USA vill koma udp
ratsjárstöðvum
í Norður-Noregi
Frá fréttaritara Mbl. f Ósló.
4. júlí. AP.
BANDARÍKJAMENN hafa áhuga
á að koma upp ratsjárstöðvum í
Noregi til að fylgjast með, að
Sovétmcnn standi við SALT 2
samninginn. Ekki hefur enn borist
formleg beiðni til norskra
stjórnvalda um staðsetningu rat-
sjárstöðvanna í Noregi. Norsk
stjórnvöld hafa enn ekki sagt neitt
um málið, en gefið hefur verið í
skyn. að Norðmenn muni verða við
ósk Bandarfkjamanna og að rat-
sjárstöðin verði í Finnmörku.
Norsk yfirvöld telja, að Sovétmenn
mundu ekki setja sig upp á móti
slíkum ratsjáfstöðvum í Noregi.
í kjölfar byltingarinnar í íran
misstu Bandaríkjamenn ratsjár-
stöðvar sínar þar og þurfa nú að
finna nýja staði fyrir þær. Talið er
að ein helsta forsendan fyrir því, að
bandaríska öldungadeildin sam-
þykki SALT 2 samkomulagið, sé að
komið verði upp viðunandi eftir-
litsstöðvum til að fylgjast með
vígbúnaði Sovétmanna.
Fyrir um tveimur mánuðum sagði
Harold Brown, utanríkisráðherra
Kemur Times
út á ný innan
fárra vikna?
Lundúnum, 4. júlí. AP.
ÚTGÁFUSTJÓRN The Times
bauð í dag prenturum, sem
hafa unnið við blaðið að koma
aftur til vinnu en þeim hafði
verið sagt upp í sjö mánaða
deilum útgáfustjórnarinnar og
prentara vegna hagræðingar
og nýrrar tækni, sem taka átti
upp. Leiðtogi prentara, Barry
Fitzpatrick, sagði í dag, að The
Times kæmi út innan fárra
vikna. frekar en mánaða.
Talsmaður útgáfustjórnarinn-
ar var varkár í yfirlýsingum og
hann sagði við fréttamann AP.
Lloyds
greiddi
offjár
í lausn-
argjald
Lundúnum, 4. júlí. AP.
SKÆRULIÐAR í E1 Salvador
slepptu tveimur brezkum banka-
mönnum eftir að hafa haldið
þeim í sjö mánuði. Lloydsbank-
inn greiddi lausnargjaldið fyrir
mennina tvo en talsmenn hans
vildu ekki gefa upp hve mikið
það var. Mönnunum. Edward
Massie, bankastjóra Lloyds í E1
Salvador, og Michael Chatterton,
var rænt á götu í San Salvador í
nóvember síðastliðnum.
Lloyds vildi ekki gefa upp hve
var mikið var greitt fyrir mennina,
en sagt var að upphæðin væri
„há“. Brezkt blað taldi, að upp-
hæðin, sem Lloyds greiddi í lausn-
argjald, hefði verið um 3.8 mill-
jarðar króna en útvarpsstöð í E1
Salvador nefndi töluna 4 milljónir
punda eða rétt um þrjá milljarða
króna. Bresk yfirvöld sáu ástæðu
til að gefa út yfirlýsingu vegna
hins háa lausnargjalds. Nicholas
Ridley, aðstoðarutanríkisráð-
herra, sagði: „Ég vil að það komi
skýrt fram. Brezka stjórnin greið-
ir ekki skæruliðum lausnargjald
né hefði hún samið við þá.“
„Við höfum boðið prenturum
aftur starf — en með skilyrð-
um.“ Hann neitaði að segja
hver þessi skilyrði væru.
Sir Denis Hamilton, formaður
útgáfustjórnarinnar og aðalrit-
stjóri blaðsins, ræddi í dag við
fulltrúa 50 verkalýðsfélaga. The
Times hefur ekki komið út síðan
30. nóvember síðastliðinn eftir
að útgáfustjórnin lýsti því yfir,
að fækka yrði í allt of fjölmennu
starfsliði blaðsins, koma yrði í
veg fyrir skæruverkföll og, sem
mestum deilum olli, taka upp
nýja tækni, offsettækni, sem
hefði leitt til þess að hundruðum
prentara hefði verið sagt upp
störfum. Hvorki gekk né rak í
samningaviðræðum þar til fyrir
tveimur vikum að loks rofaði til
— og nú virðist það aðeins
tímaspursmál hvenær The Tim-
es kemur út aftur.
Bandaríkjanna að innan árs hefðu
Bandaríkjamenn um ýmsa staði að
velja fyrir ratsjárstöðvar. En hann
sagði, að það tæki um fjögur ár að
bæta þann skaða, sem missir stöðva
Bandaríkjamanna í íran hefði haft í
för með sér, með nýjum njósna-
hnetti. Þessi njósnahnöttur, sem
Brown talaði um, gengur undir
nafninu Chalet.
í fréttaskeytum AP segir, að
norskir embættismenn hafi verið
óánægðir með blaðafréttir um málið
í síðustu viku. Blaðafregnirnar
hefðu, ef eitthvað, minnkað mögu-
leikana á að Norðmenn samþykktu
ratsjárstöðvar í Noregi.
Þá sagði Knut Frydenlund, utan-
ríkisráðherra Norðmanna, við
fréttamann AP í dag, að Banda-
ríkjamenn hefðu ekki farið fram á
það formlega að fá að setja upp
ratsjárstöðvar í landinu. Þá kom
fram í blaðafréttum, að Bandaríkja-
menn hefðu einnig leitað hófanna
hjá Pakistönum, en fengið neikvæð-
ar undirtektir embættismanna þar.
Formaður undirnefndar fulltrúa-
deildarinnar um njósnamál, Les
Apin, sagði á sunnudag að stöðvarn-
ar í Noregi væru mun hentugri en í
Pakistan. Þá sagði hann að flug U-2
njósnaflugvéla yfir Tyrklandi kæmi
aðeins að notum til að fylgjast með
lítt þróuðum eldflaugum, sem hafð-
ar voru í suðurhluta Sovétríkjanna.
U-2 vélarnar gætu ekki fylgst með
hinum fullkomnu eldflaugum, sem
eru í norðurhluta Sovétríkjanna.
NIEHOUSSLEPPT
Bandaríski iðnrekandinn William Niehous, sem var rænt í febrúar
1976. sést hér fluttur með herflutningabíl í Caracas í Venezúela þegar
Venezúelahermenn höfðu leyst hann úr haldi mannræningja. För eftir
handjárn sjást á báðum handleggjum hans.
Vilja fljúga DC-10
til Bandaríkjanna
Freddie Laker ásakar bandarísku flugmálastjórnina
WaBhington, 3. júlí — Reuter.
V-EVRÓPURÍKI báöu
bandarísku flugmála-
stjórnina formlega 1
um að aflétta banni
flugi DC-10 þotna
dag
við
til
Bandaríkjanna. Banda-
ríska flugmálastjórnin,
FAA, hefur lofað að svara
beiðninni innan viku.
Norðmaðurinn Eric
Willoch, forseti þings
Þetta gerðist
1977 — Herbylting gegn Bhutto
forsætisráðherra í Pakistan.
1976 — Jose Lopez Portillo
kosinn forseti Mexíkó' í stað
Echeverria.
1975 — Grænhöfðaeyjar fá
sjálfstæði eftir 500 ára stjórn
Portúgala.
1973 — Herbylting í Rwanda.
1970 — 109 farast með kanad-
ískri flugvél í lendingu í Toronto.
1969 — Tom Mboya, annar
vaidamesti maður Kenya, ráðinn
af dögum.
1960 — Herinn í Kongó gerir
uppreisn.
1955 — Fyrsta þing Vestur-
Evrópubandalagsins (WEU) sett
í Strassborg.
1948 — Brezka heilbrigðislög-
gjöfin tekur gildi.
1943 — Þýzk sókn á Rússlands-
vígstöðvunum hefst með Kursk-
orrustunni.
1933 — Kaþólski flokkurinn í
Þýzkalandi leystur upp.
1932 — Salazar kosinn forsæt-
isráðherra Portúgals og kemur á
fasistastjórn.
1865 — tVilliam Booth stofnar
Hjáipræðisherinn í London.
1841 — Ferðaskrifstofa Cook’s
stofnuð.
1830 — Frakkar gera innrás í
Alsír og taka Algeirsborg.
1812 — Bretar semja frið við
Rússa og Svía.
1811 — Venezúela lýsir yfir
sjálfstæði fyrst spænskra ný-
iendna í S-Ameríku.
1798 — Napoleon tekur Alex-
andríu.
1796 — Bretar taka Elbu.
1764 — Ivan VI Rússakeisari
myrtur.
1682 — Soffía keisaradrottning
verður ríkisstjóri Rússlands við
lát Feodors keisara.
1596 — Brezkur leiðangur gerir
strandhögg í Cadiz og á strönd
Spánar.
Afmæli. David Farragut, banda-
rískur flotaforingi (1801—1870)
— Phineas Barnum, bandarískur
fjölleikahúsa-brautryðjandi
(1810-1891) - Cecil Rhodes,
breskur stjórnmálaleiðtogi
(1853—1902) — Jean Cocteau,
franskur rithöfundur (1889—
1963) — Henry Cabot Lodge,
bandarískur stjórnmálaleiðtogi
(1902----) — Andrei Gromyko,
sovéskur utanríkisráðherra
(1909---).
Andlát. Ernst Hoffman, rithöf-
undur og tónskáld, 1822 — Sir
Stamford Raffles, embættismað-
ur, 1826 — Sir Austen Layard,
fornleifafræðingur, 1894.
Innlent. Þjóðfundur settur í
Reykjavík 1851 — d. ísleifur
Gizurarson biskup 1180 — Árni
bp. Þórarinsson 1788 — Flugvél
tekur farþega í fyrsta skipti á
íslandi 1919 — ítalski flugflot-
inn kemur til Reykjavíkur 1933
— Alþingiskosningar 1942 —
Alþýðuflokkur óskar eftir við-
ræðum um sameiningu jafnaðar-
manna 1971 — Geir Hallgríms-
syni falin stjórnarmyndun 1974
— d. Jón Aðils 1920 — nefndar-
tiliögur í fjárhagsmáiinu 1862.
Orð dagsins. Á friðartímum
grafa synir feður sína — á
stríðstímum grafa feður syni
sína — Herodotus, grískur sagn-
fræðingur (5. öld f. Kr.).
evrópskra flugmála-
stjórna, sagði við frétta-
menn að beiðnin væri
vegna þess að flugmálayf-
irvöld í V-Evrópu hefðu
gefið DC-10 þotum
flugleyfi.
„Miklir hagsmunir eru í húfi.
Við höfum ekkert á móti því, að
slíkir hagsmunir víki fyrir öryggi
séu tæknilegar ástæður fyrir því.
En við teljum DC-10 þoturnar
fullkomlega öruggar," sagði
Willoch, sem ásamt fulltrúum
Breta, Frakka, Tyrkja, Dana,
Finna, Hollendinga og Belga
ræddu við Langhorne Bond, flug-
málastjóra Bandaríkjanna.
Nú er tæpur mánuður frá því
að bandaríska flugmálastjórnin
bannaði flug DC-10 þotna, sem
skrásettar eru í Bandaríkjunum,
jafnframt því að slíkum þotum
var bannað að lenda í Bandaríkj-
unum. Evrópumenn fylgdu í kjöl-
farið en flugmálayfirvöld veittu
síðan DC-10 þotum flugleyfi,
í Lundúnum ásakaði Sir
Freddie Laker bandarísk flug-
málayfirvöld um að hafa gert
„hrikaleg mistök og reyna nú allt
hvað þau gætu að fela þau“. Sir
Freddie Laker sagði, að flugfélag
hans, Laker Airways, leitaði nú
leiða til að fara í mál við FAA,
bandarísku flugmálastjórnina,
til að reyna að endurheimta
eitthvað af því fé, sem félagið
hefði tapað. Laker Airways
fljúga yfir Atlantshafið á lágum
fargjöldum en félaginu hefur
verið bannað að láta DC-10 þotur
fljúga til Bandaríkjanna.