Morgunblaðið - 05.07.1979, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1979
47
• Sverrir Herbertsson sækir að (Jlfari Gunnlaugssyni markverði KS í leik KR og KS í gærkvöldi.
Siglfiróingarnir
bitu vel frá sér
KR—KS 2»
KR SNARAÐI sér áfram í bik-
arkeppni KSÍ með því að leggja
3. deildarlið KS frá Siglufirði að
velli á Laugardalsvellinum í
gærkvöldi. Sigurinn var ekki
stór, sem hefi verið ósanngjarnt,
en þó verðskuldaður. Skoruðu
KR-ingar þrjú mörk, en KS gerði
vel að jafna í fyrri hálfleik og
halda því allt til 58. mínútu.
Lengst af var erfitt að sjá hvort
liðið var úr 3. deild og hvort við
topp 1. deildar, en síðasta stund-
arfjórðunginn var þó enginn vafi
á því og sókn KR var með
ólíkindum þung og brestirnir í
vörn KS fóru ört stækkandi.
Sem sóknaraðili lagði KS lítið
til í.iálanna í leiknum, KR-ingum
var látinn eftir meiri hluti vallar-
ins og þeir reyndu að sækja af
kappi. En afskaplega illa gekk
þeim að ljúka sóknarlotum sínum.
Þær byrjuðu oft mjög vel,
skemmtilegir þríhyrningar niður
kantana þar sem vörn KS var
áberandi veikust fyrir, en þegar á
hólminn var komið, rak hver
klúðursendingin aðra. Og það var
lítið um færi.
Samt skoruðu KR-ingar strax á
10. mínútu og var þar Sverrir
Herbertsson að verki. Hann fékk
þó góða aðstoð grunlauss varn-
armanns en knötturinn breytti af
honum um stefnu og gekk mark-
verðinum þannig úr greipum.
Þrátt fyrir meiri sóknarþunga,
skoruðu KR-ingar ekkert meira í
fyrri hálfleik. Stefán Örn var þó
ekki fjarri því á 25. mínútu, en
skalli hans fór í stöngina. Sverrir
Herbertsson var frískastur
Kr-inga í fyrri hálfleik, en fall-
byssan var illa stillt og skot hans
tvö hittu ekki markið.
Á 39. mínútu náðu Siglfirðingar
mjög snöggri og óvæntri sóknar-
lotu sem lauk með því að Haraldur
Agnarsson komst einn í gegnum
vörn KR og skoraði laglega fram
hjá Hreiðari Sigtryggssyni, 1—1!
Stefán Örn Sigurðsson skoraði
annað mark KR á 58. mínútu eftir
góða fyrirgjöf Sverris og á síðustu
sekúndunum skoraði Börkur
Ingvarsson þriðja markið með
skalla af stuttu færi eftir horn-
spyrnu Elíasar Guðmundssonar.
KS-menn fengu ekki fleiri færi en
þetta eina sem nýttist í fyrri
hálfleik, en þeir reyndu nokkur
skyndiupphlaup og börðust eins og
ljón allan leikinn.
Sverrir Herbertsson var
mjög sprækur í leiknum fyrir KR,
svo og Elías sem kom inn sem
varamaður. Leikmenn KS voru
jafnir og einkum stóðu varnar-
mennirnir sig vel, eða þar til undir
lokin, þegar hún fór að líkjast
ginnungagapi.
Góður dómari var Eysteinn
Guðmundsson. — gg.
• Guðmundur Steinsson, hinn
efnilegi framherji Fram. Mark
hans tryggði Fram sigur gegn
KA á Akureyri í gærkvöldi, en
þar sigraði Fram 3—2.
Fram tokst
að sigra
KA~ O.Q
FRAM £mm%3
Framarar slógu KA-menn út
úr bikarkeppni KSÍ á Akureyrar-
velli í gærkvöldi. Báru þeir sigur-
orð af KA, 3—2, í mjög jöfnum og
skemmtilegum leik. sem var jafn-
framt opinn og vel leikinn af
hálfu beggja liða. Sanngjörnust
úrslit hefðu verið jafntefli eftir
gangi leiksins.
Fyrsta mark leiksins kom á 7.
mínútu. Njáll Eiðsson gaf vel fyrir
mark Fram og Óskar Ingimundar-
son skoraði sannkallað drauma-
mark. Tók hann boltann viðstöðu-
laust og negldi hann neðst í
markhorn Fram, algerlega óverj-
andi.
Trausti Haraldsson jafnar fyrir
Fram á 26. mínútu. Átti hann skot
að markinu utan af kanti og
hafnaði það í markhorninu fjær.
KA-menn ná svo aftur forystu á
28. mín. og enn er Óskar að verki.
Markverði Fram mistókst að kýla
boltann frá eftir pressu KA og
boltinn datt niður fyrir fætur
Óskars sem var á markteig og gat
skorað örugglega af stuttu færi. Á
markamínútunni miklu, 43., jafn-
ar Gunnar Orrason 2—2 með skoti
af markteig eftir að markverðir
KA hafði mistekist að hreinsa.
Þannig var staðan í hálfleik.
Síðari hálfleikur var spennandi og
hart barist en ekki tókst þó
liðunum að nýta marktækifæri sín
fyrr en rétt fyrir leikslok að hirin
bráðefnilegi Guðmundur Steins-
son, Fram, tók af skarið og lék
laglega á tvo varnarmenn og
renndi síðan boltanum framhjá
Aðalsteini markverði þar sem
hann reyndi að bjarga með út-
hlaupi.
Besti maður í annars jöfnu
Framliði var Marteinn Geirsson.
Liðið lék án Kristins Atlasonar
sem er í leikbanni og Péturs
Ormslevs. — Bestu menn KA voru
Elmar Geirsson og Njáll Eiðsson.
SOR/þr.
Einar kom
ÍBK í 8-liða
úrslit
Z 2:0
Einar Ásbjörn ólafsson. hinn
markheppni tengiliður Keflvík-
inga, sá um að koma ÍBK í átta
liða úrslit bikarkeppni KSÍ þeg-
ar ísfirðingar sóttu Keflvíkinga
heim. Einar Ásbjörn skoraði tví-
vegis í 2—0 sigri 1. deildarliðs
ÍBK. Það var átakalítill sigur
Keflvíkinga, forustuliðsins í 1.
deild gegn 2. deildarliði ísfirð-
inga.
Einar Ásbjörn skoraði fyrra
mark sitt á 10. mínútu fyrri
hálfleiks. Skoraði með góðu
skoti, er fór fram hjá varnar-
mönnum ÍBÍ og í netmöskvana.
Hinn kornungi miðherji ÍBK,
Ragnar Margeirsson. gaf góða
sendingu á Einar, sem nýtti færið
vel.
Keflvíkingar höfðu undirtökin í
fyrri hálfleik undan suðaustan-
kaldanum í Keflavík. En þeim
gekk erfiðlega að opna vörn Isfirð-
inga. Nýttu breidd vallarins iila.
Isfirðingar áttu eina hættulega
sókn í fyrri hálfleik og þá líka
fengu þeir bezta tækifæri leiksins.
Andrés Kristjánsson, miðherji
Isfirðinga, lék upp vinstra megin,
gaf síðan góða sendingu á Gunnar
Pétursson, sem var einn á auðum
sjó í vítateignum. Gunnar skaut
hörkuskoti, en Þorsteinn Ólafsson
bjargaði meistaralega. Keflvíking-
ar juku forskot sitt undir lok fyrri
hálfleiks. Á 40. mínútu fengu
Keflvíkingar horn frá vinstri.
Þórður Karlsson gaf góða send-
ingu á markteigshornið fjær og
þar var Einar Ásbjörn fyrir og
skoraði laglega en varnarmenn
Isfirðinga voru illa á verði.
Síðari hálfleikur var fremur
tíðindalítill. Keflvíkingar virtust
sáttir við orðinn hlut, leikurinn
fór að mestu fram á miðju vailar-
ins og þar héldu Isfirðingar sínu
f.vllilega með mikilli baráttu. Tví-
vegis fór þó knötturinn í markslá
Isfirðinga, en í bæði skiptin eftir
fyrirgjafir og Pétur Guðmunds-
son, markvörður ÍBÍ, var þá illa á
verði. Þorsteinn Ólafsson varð að
taka á honum stóra sínum á 36.
mínútu þegar hann varði hörku-
skot Haralds Leifssonar. Keflvík-
ingar stóðu því uppi sem sigurveg-
arar — fremur átakalítill sigur án
nokkurs glans. Einar Ásbjörn var
bezti maður vallarins, Sigurður
Björgvinsson útsjónarsamur,
Ragnar Margeirsson leikinn og
Þorsteinn Ólafsson öruggur í
markinu. Hjá ísfirðingum vakti
Gunnar Pétursson mesta athygli,
hafði mikla yfirferð og barðist af
krafti eins og raunar liðið í heild.
Ágætur dómari var Óli Olsen.
H.Halls.
Helga hlaut bronz og
Þorsteinn í öðru sæti
eftir fyrri daginn
„ÉG HEF aldrei verið með hærri stigatölu eftir fyrri dag tugþrautar
og þar sem ég er venjulega nokkuð jafn báða dagana vona ég að mér
takist að ná 7.000 stigunum. „Þannig mælti Þorsteinn Þórsson í
spjalli við Mbl. í gærmorgun eftir fyrri dag unglingameistaramóts
Norðurlanda í fjölþrautum sem fram fer í Kaupmannahöfn. Þorsteinn
var í öðru sæti eftir Norðmanninum Gudmund Olsen með 3.522 stig.
en Olsen var með 3.578 stig. Olsen á yíir 7.200 stig í þraut. Ekki tókst
Mbl. að ná sambandi við íslenzku keppendurna í gærkvöldi. þar sem
keppni lauk seint.
Helga Halldórsdóttir stóð sig með ágætum í sínum flokki, hlau
bronzverðlaunin og setti nýtt íslandsmet í stúlkna- og meyjafiokki,
hlaut 3,457 stig, Fékk hún 14,6 sek. í grindahlaupi, varpaði kúlu 8,59
metra, stökk 1,51 m í hástökki, 5,15 m í langstökki og hljóp 800 m á 2:25,3
mín. Sigríður Kjartansdóttir hlaut 3.338 stig í sínum flokki, en það
nægði ekki til verðlauna. Hljóp Sigríður athyglisvert 800 m hlaup, en í
þeirri grein hlaut hún tímann 2:16,6 mín., sem er fimmti bezti árangur
íslenzkrar konu frá upphafi. Annar árangur Sigríðar var sá, að hún fékk
15,4 sek. í grindahlaupi, varpaði kúlu 7,91 m, stökk 1,46 í hástökki og 5,17
m í langstökki.
Árangur í einstökum greinum hjá Þorsteini var sá, að hann hljóp 100
m á 11,5 sekúndum sem er jafnt hans bezta, stökk 6,39 m í langstökki,
sem einnig er hans bezta, varpaði kúlu 12,70 m, stökk 1,92 m í hástökki
og hljóp loks 400 m á 52,2 sek., sem er hans bezta í greininni. Tíu til tólf
keppendur eru í hverjum flokki og komi Þorsteinn einnig með verðlaun
heim, eins og Helga, verður árangur hópsins að teljast nokkuð
frambærilegur.
-ágás.
gf Valsmenn
Fjölmennum á Völlinn
í kvöld og hvetjum okkar menn í
bikarleiknum gegn Víkingum kl. 20.
Afram Valur
Stuöningsmenn