Morgunblaðið - 05.07.1979, Page 48

Morgunblaðið - 05.07.1979, Page 48
EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINII M U.VSlNí. \ SIMINN KU: 22480 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1979 Góður afli togaranna allt í kringum landið TOGARARNIR hafa yfirleitt veitt mjög vel að undanförnu og virðast aflabrögð vera góð allt í kringum landið, en ekki á til- teknum afmörkuðum svæðum. í síðustu viku var t.d. landað um 380 tonnum úr Júni í Hafnarfirði eftir 12‘/2 dags veiðiferð. Uppi- staðan í afla var karfi og ufsi. í gær var lokið við að landa úr Kaldbak á Akureyri, sem kom með 326 tonn, aðallega þorsk eftir 10 daga veiðiferð. Skiptaverðmæti fyrir þann túr var 51 milljón króna. Akureyrartogararnir öfl- uðu vel allan síðasta mánuð og komu yfirleitt að með á milli 200 og 300 tonn. Af Austfjarðatogurunum má nefna að Hólmanesið frá Eskifirði kom inn um helgina með um 200 tonn eftir 9 daga útivist og var uppistaðan í aflanum ýsa. Þá hefur Mbl. fregnað að uppgrip hafi verið hjá togskipum bæði í flottroll og botntroll á svæðinu frá Skagagrunni vestur á Hala. íslenzk olíusparnaðartæki vekja athygli víða um heim: Geta sparað milljarða í olíu til fiskiskipa A sjávartækjasýningunni Eurocatch, sem nýlokið er f Lond- on, sýndi íslenzka fyrirtækið Tæknibúnaður nýjan „eyðslu- reikni“, tæki sem sett hefur verið og verið er að setja í íslenzka togara og báta og á að geta dregið mikið úr eldsneytisnotkun skip- anna. Vakti tækið mjög mikla athygli og voru pöntuð á staðnum tæki fyrir allt að 200 miilj. króna fyrir útgerðaraðila í Aberdeen, Frakklandi, Ástralfu, Skotlandi og Kanada. Tæknilegur fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, Haukur enn efstur HAUKUR Angantýsson var cnn efstur við fjórða mann eftir níu umferðir á World Open skákmótinu í Bandarfkj- unum. en alls eru umferðirnar tíu. Haukur var með 7,5 vinn- inga og einnig stórmeistararn- ir Miles, Georghiu og Bisuquir. Margeir Pétursson var með 7 vinninga og Sævar Bjarnason 5,5. I áttundu umferð vann Haukur Peltz frá Bandaríkjun- um, en hann er landflótta Rússi og var áður m.a. þjálfari Tukmakovs. í níundu umferð hafði Haukur svart á móti Miles og lauk skák þeirra með jafntefli. I síðustu umferðinni teflir Haukur am.aðhvort við Georgþiu eða Bisuquir. Gunnlaugur Jósepsson, var með eyðslureiknana á sýningunni, en hann er eigandi þess ásamt Árna Fannberg. Búið er að setja þetta tæki í 2 íslenzka togara og verið að koma því fyrir í fleiri togurum og bátum. Það mælir eyðsluna á eldsneytinu á sjómílu, en hvert skip hefur sjna eyðslukúrfu og gefur vélstjóra og skipstjóra jafnóðum upplýsingar um eyðslu og hraða og útgerðinni í landi útskrift. Með vali á réttum hraða í hverju tilviki er hægt að ná fram miklum sparnaði á eldsneyti og bæta nýtingu þess. Mælarnir hafa verið settir saman há Öryrkjabandalaginu og mun vinn- an fyrir öryrkjana við þetta nú geta aukist verulega. Olíukaup íslenzka fiskiskipaflot- ans munu í ár nema um 20 milljörðum króna og sparnaður á hverjum hundraðs hluta nemur því 200 millj. krónum á ári. Náist því 5—8% sparnaður á eldsneyti skip- anna, eins og Gunnlaugur telur ekki ólíklegt að meðaltali, gæti sparnaðurinn numið allt að 1000 til 1600 millj. krónum á ári fyrir íslenzka fiskiskipaflotann. En slík- ar tölur eiga að sjálfsögðu eftir að koma betur í ljós. I einstökum skipum er talið um að sparnaður kunni að komast upp í 15—20%, ef þessi tækni er nýtt vel. Tæknideild Fiskifélags íslands hefur á sl. 2 árum gert rannsóknir á olíunotkun fiskiskipaflotans og hafa þær komið að miklu haldi við þróun þessa nýja tækis frá Tækni- búnaði, en slík úttekt á olíunotkun hefur ekki annars staðar verið gerð, og munu Kanadamenn nú áforma að fara að dæmi íslend- inga. Sjá nánar frétt á bls. 26. Hvort sem plássleysið í skútunni eða eitt- hvað annað hefur rek- ið þessa upprennandi sjómenn fyrir borð er sjálfsagt að minna á máltækið að enginn er verri þótt hann vökni. Ljósm. Kristinn. / JBs ' ». -jr . „ Málaleitan Frydenlunds hafnað — leitaði eftir því að ísland léti einhliða aðgerðir Norðmanna óátaldar HUGMYNDUM þeim til lausnar Jan Mayen-málsins, sem Knut Fyrdenlund utanríkisráðherra Norðmanna sendi Benedikt Grön- dal utanríkisráðherra var ( gær hafnað án fundar íslenzku við- ræðunefndarinnar. í fyrirspuj-n Frydenlunds var leitað eftir því, að íslendingar létu óátaldar einhliða aðgerðir Norðmanna gegn nýjum veiðiþjóðum á Jan Mayen-svæðinu utan efnahagslögsögu íslands og að öðru leyti giltu þau efnisatriði, sem samkomulag varð um í ráð- herraviðræðunum í Reykjavík um sumarloðnuveiðar og samstarfs- nefnd. I skeyti frá fréttaritara Mbl. í Ósló, Jan Erik-Lauré segir að Bene- dikt Gröndal gefi í skyn í samtali við norska blaðið Aftenposten að íslendingar geti fellt sig við að OddvarNordli forsœtisráðherra Noregs: Vil ekki trúa ööru en að samkomulag náistumJanMayen „NORSKA ríkisstjórnin mun á morgun ræða Jan Mayen-málið og því vil ég að svo stöddu ekki setja fram nein sjónarmið um það,“ sagði Oddvar Nordli forsætisráð- herra Noregs, er Mbl. spurði hann í gær álits á Jan Mayen-mál- inu og viðræðunum um það milli íslendinga og Norðmanna. Þó kvaðst Nordli geta látið uppi þá persónulegu skoðun sína, að hann vildi ekki trúa öðru en að sam- komulag næðist um Jan Mayen milli Norðmanna og íslendinga f þeim viðræðum. sem í gangi eru. Mbl. spurði Nordli, hvort norska ríkisstjórnin hefði mótað stefnu í Jan Mayen-málinu færi svo, að ekkert samkomulag yrði og þá hver hún væri. Nordli sagði að slík stefnumótun hefði ekki átt sér stað og að hann vildi ekki leiða getum að því, hvað Norðmenn myndu gera undir þeim kringumstæðum. „Við viljum semja um þetta mál við íslendinga," sagði Nordli, „og samningaviðræður eru í gangi. Það er rétt að skammur tími er til stefnu, hvað sumarloðnuveiðarnar varðar, en menn leggja sig líka fram um að finna þær hliðar málsins, sem leitt geta til friðsam- legrar lausnar þess.“ Mbl. spurði Nordli, hvort norska ríkisstjórnin hefði rætt möguleika á sölu olíu til íslands. Norski forsætisráðherrann sagði, að málið hefði ekki komið til kasta ríkis- stjórnarinnar, heldur þeirra yfir- valda, sem hlut ættu að máli. Stefna ríkisstjórnarinnar væri að vera jákvæð í garð slíkra viðskipta við Islendinga. Sjálf væri ríkis- stjórnin ekki söluaðili olíu og því væri það spurning um, hvort norsk fyrirtæki væru aflögufær og þá með hvaða kjörum, Norðmenn fari meðstjórn loðnuveiða á Jan Mayen-svæðinu utan efna- hagslögsögu íslands og láti þá einhvers konar lögsögu Norðmanna þar óátalda. Blaðið bendir á að Islendingar hafi ekki heimild til að stjórna loðnuveiðum utan efnahags- lögsögu sinnar og spyr, hvort Is- lendingar geti ef til vill fallizt á norska fiskveiðilögsögu þar. „Fræðilega séð er norsk lögsaga eini möguleikinn," hefur blaðið eftir Benedikt, en segir að hann hafi um leið lagt áherzlu á, að vandamálið sé áfram það, að Noregur vilji lögsögu byggða á lögum um efnahagslög- sögu. „ísland mun ekki samþykkja neitt nú, sem bindur hendur okkar áður en störfum hafréttarráðstefn- unnar er lokið,“ hefur blaðið eftir Benedikt. Mbl. tókst ekki í gær- kvöldi að ná sambandi við Benedikt Gröndal til að inna hann nánar eftir þessu. Af Noregs hálfu er lögð áherzla á að endanleg ákvörðun um sumar- loðnuveiðarnar við Jan Mayen verði tekin í þessari viku, en á fundi norskra ráðherra með talsmönnum norsku sjómannasamtakanna kom fram, að sjómannasamtökin vilja ekki gangast undir takmarkanir á loðnuveiðunum öðru vísi en að lögsögu verði komið á svæðið. Fréttaritari Mbl. í Ósló segir að af Noregs hálfu sé ekki reiknað með frekari fundahöldum með íslending- um vegna loðnuveiðanna við Jan Mayen, en reynt verði að leysa málið með símasamtölum. Báðir utanríkisráðherrarnir ráðgera að fara í sumarleyfi um helgina. Kolmunni veid- ist ekki ennþá EHkifirði. i. júlf. KOLMUNNAVEIÐISKIPIN Jón Kjartansson og Grindvíkingur komu inn til Eskifjarðar f dag. Veiðarnar haía gengið illa og er hvort skip með um 30 lestir. Sjómenn segja að kolmunni sé á svæðinu, en mjög dreifður og ekki í veiðanlegu ástandi eins og er. Skipin hafa reynt allt frá Suðausturlandi norður á Héraðs- flóa í þessari viku. Einnig segja sjómenn að sjávar- hiti sé lítill á þessum slóðum eða rúmlega ein gráða, en síðustu daga hækkaði sjávarhitinn þó um 1 '/2 gráðu og er því kominn í 2'/2 stig. Þrjú skip voru á svæðinu, Árni Friðriksson ásamt Grindvík- ingi og Jóni. Þá hefur færeyska skipið Kronborg komið á svæðið, en stoppað stutt. Skipverjar á Jóni Kjartanssyni og Grindvíkingi ætla að bíða um sinn og sjá hvort fiskurinn hleypur ekki saman í veiðanlegar torfur, en á meðan verður Árni Friðriksson á miðun- um og leitar. — Ævar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.