Morgunblaðið - 15.07.1980, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1980
íslandsmótið í svifflugi:
Mótið sett - en
ekkert flogið
EKKERT var íloKÍð á íslands-
mótinu í sviffluKÍ á Hellu um
helKÍna þrátt fyrir að mótið hafi
verið sett sl. laugardaK- Það voru
veðurKuðirnir sem léku keppend-
ur svo Krátt.
Ekki er búist við, að keppnin
hefjist fyrr en seinni hluta vik-
unnar, en 12 svifflugur taka þátt í
henni. í hverju keppnisliði eru
flugmaður og aðstoðarmaður eða
menn með honum. Um tvær gerðir
af svifflugum er að ræða, annað-
hvort úr tré eða plasti.
Keppt verður í hraðflugi og
fjarlægðarflugi. Gert er ráð fyrir
að mótið taki níu daga, ef veður
hamlar ekki.
Skortur og skömmt-
un er framundan
- segir formaður Hagsmunafélags
kjúklingabænda um fóðurbætisskatt
— Fyrri hluta þessa árs hefur
verið offramlciðsla i kjúklinga-.
CKKja- ok svínabúskap mcð þeim
aflciðinKum að búin hafa verið
rckin undir rckstrarKrundvdli
ok ncytandinn fcnKÍð vóruna
Aðalfundur
íbúasamtaka
Vesturbæjar
ÍBÚASAMTÖK Vesturha’jar héldu
aðalfund sinn 2. júni sl. í Iðnó. Á
komandi hausti eru fyrirhuKaðir
fundir um umferðarmál í hverfinu.
svo ok um skólamál.
Stjórn samtakanna hefur rætt
möguleika á því að fá forsvarsmenn
skipulags borgarinnar á fund með
félagsmönnum, þar sem ræddar yrðu
fyrirhugaðar framkvæmdir og breyt-
ingar í hverfinu.
Ibúar hverfisins eru hvattir til þess
að ganga í samtökin, til þess að stuðla
að verndun og bættu umhverfi í
Vesturbænum.
I stjórn samtakanna eru: Björn S.
Stefánsson formaður, Brynhildur K.
Andersen, Jóhannes Guðfinnsson,
Magnús Skúlason og Þórunn Klem-
ensdóttir.
(Fréttatilkynning.)
mjöK ódýra . saKði ÁsKeir Ei-
ríksson formaður Hagsmunafé-
laKs kjúklinKahænda i samtali
við Mbl.
— Með þunga þessarar offram-
leiðslu á bakinu er allt í einu rokið
til og settur fóöurbætisskattur til
viðbótar á erfiðleikana, fyrst
200%, síðan 50%, sem einnig er
mörgum ofraun. Með skömmtun-
arkortum, sem bændur þurfa jafn-
vel að koma fljúgandi frá Astur-
landi í eigin persónu, til að fá. Það
verður nóg að gera hjá samgöngu-
aðilum! Þessar búgreinar eru
reknar án allra niðurgreiðslna og
útflutningsbóta. Hvers vegna eiga
óstyrktar búgreinar að greiða líka
fóðurbætisskatt, sem færi beint út
í verðlagið, fyrir offramleiðslu
hinna ríkisstyrktu búgreina
(sauðfjárræktar og kúabúskapar)
til viðbótar við sinn eigin offram-
leiðsluvanda ?
Nú þegar eru fuglabúin farin að
týna tölunni — í byrjun skattlagn-
ingar. Hvað verður eftir ár ?
Hættir almenningur að hafa ráð á
að borða kjúklinga, svínakjöt og
egg ? Hætta þessar vörur að vera
á boðstólum ? Þá verður ekki
spurt hvað þær kosti, heldur hvar
þær fáist ? Er verið að skella á
okkur skorti, skömmtun og
hamstri ? spurði Ásgeir að lokum.
Markaðsbæklingur
- frá Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja
FELAG dráttarbrauta og
skipasmiðja hefur sent frá sér
markaðsbækling á ensku er
félagið lét taka saman. Var
honum m.a. dreift á sjávarút-
vegssýningunni „Woríd Fis-
hing“, sem haldin var i Kaup-
mannahöfn i síðasta mánuði og
er ætlunin að koma honum á
framfæri á fleiri erlendum
vörusýningum á næstunni.
í frétt frá Félagi dráttarbrauta
og skipasmiðja segir að vonir
standi til að bæklingurinn sé
upphafið að skipulegri landkynn-
ingar- og markaðsstarfsemi aðild-
arfélaganna bæði á innlendum
vettvangi og erlendum. Segir einn-
ig að framleiðsluvara íslenskra
skipaiðnaðarfyrirtækja og almenn
þjónusta þeirra standi síst að baki
því besta sem erlendir keppinaut-
ar bjóði.
Varasamur vegur
í Strákagöngum
SÍKlufirAí. 11. júlí.
Full ástæða er til að vara
okumcnn við ástandi veKarins í
StrákagönKunum.
Vegurinn, sem er með varanlegu
slitlagi, er nú svo holóttur og þær
svo djúpar og skarpar, að sé ekið
ógætilega um hann getur það
valdið stórskemmdum á bílunum.
Eru dæmi þess að menn hafi orðið
fyrir tjóni svo tugþúsundum
skiptir. Væri full ástæða til að
setja þarna upp viðvörun meðan
ekki verður bætt úr ástandi vegar-
ins.
m.j.
Hvalurinn borinn upp á Arnarhól þar sem hleypt var úr honum loftinu.
Hvalverndunarmenn á Lækjartorgi:
Friður með hvölum
Á LAUGARDAG efndu hvalverndunarmenn til útifundar og kynntu baráttumál sín.
Hófst fundurinn kl. 2.00 við Kjarvalsstaði og var gengið þaðan niður á Lækjartorg.
Var uppblásinn hvalur borinn í broddi fylkingar en hval þennan kom Bandaríkjamað-
urinn John Perry með til landsins nýverið. Þegar niður á Lækjartorg kom. hélt Jón
Baldur Illíðberg ávarp um hvalinn og hinar ómannúðlegu hvalveiðar f.h. Skuldar,
félags hvalverndunarmanna. Guðmundur ólafsson las ritgerðina „Stóra hjartað“ eftir
Jóhannes S. Kjarval. Ritgerð þessi birtist í Morgunbl. 14. marz 1948 og mótmælir
Kjarval þar hvaladrápi. Þá hélt Steíán Bergmann. líffræðingur, ræðu og sagði hann
m.a. að of lítið væri vitað um stofnstærð hvala til að réttlæta áframhaldandi veiðar á
þeim.
artorgi og hljómsveitin Kvalir
fundin-
John Perry kom fram á
fundinum og skýrði ástæðuna
fyrir því að hann fór af stað
með þessa uppblásnu hvali en
hann hefur, sem kunnugt er, í
hyggju að fara með stærri
hvalinn yfir Ermasund í
sumar til að vekja athygli á
baráttumálum hvalverndun-
armanna.
„Játning Jónasar" hét upp-
ákoma sem leikin var á Lækj-
lék Búrhvala blús. Á
um var dreift dreifibréfi þar
sem sagði m.a. „Það er ekki
einungis að hvalveiðar séu í
þann veginn að útrýma mörg-
um hvalastofnum, heldur eru
þær einnig með fádæmum
grimmdarlegar. Enginn mað-
ur myndi nokkurn tíma geta
samþykkt að landdýrum væri
slátrað með fallbyssukúlum á
löngu færi svo hending réði
hvar búkur dýrsins splundrað-
ist, — hvort dauðdaginn yrði
skammur eða langur og sárs-
aukafullur. Þannig eru hvalir
drepnir. Það er hvorki bábilja
né hjátrú að hvalir hafi full-
komið taugakerfi, jafnvel á
borð við sjálfan manninn.
Dráp þeirra með þessum hætti
verður því enn viðbjóðslegra.
Vilduð þið vinsamlegast
kynna ykkur þessi mál.“
IFrá fundinum á Lækjartorgi. F.v. Jón Baldur IIIiðbcrK. John Perry og Ásgeir Rúnar Helgason.
Ljósm. Gudjón