Morgunblaðið - 17.02.1981, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1981
drykkjarvatni: Hefur góð
áhrif á taraiheilbrigði
barna og f ullorðinna
— segir ástralski tannlæknirinn Graham Mount
Thomas Martin, forstöðumaður Menningarstofnunar Bandaríkjanna
ávarpar þátttakendur i námskeiðinu. Aðrir á myndinni, talið frá
vinstri: Haukur Helííason, Stephen Klaidman, Richard Eder, Halldór
Halldórsson, Kári Jónasson, formaður Blaðamannafélags íslands, og
Friðrik Páll JÓnSSOn. (Ljósm. Ól. K. Maxn.)
Góðir gestir hjá Menning-
arstofnun Bandaríkjanna
og Blaðamannafélaginu
TVEIR þekktir bandarískir
hlaðamenn komu hingað i
síðustu viku í boði Menn-
ingarstofnunar Bandaríkj-
anna, þeir Richard Eder, for-
stöðumaður Parísarútibús
The New York Times, og
Stephen Kiaidman, frétta-
stjóri og leiðarahöfundur hjá
International Herald Tri-
bune.
Þeir Eder og Klaidman áttu
hér tal við ýmsa framámenn í
þjóðlífinu, en á laugardaginn
voru þeir fyrirlesarar á blaða-
mannanámskeiði, sem menn-
ingarstofnun Bandaríkjanna
gekkst fyrir ásamt Blaða-
mannafélagi Islands. Fyrirles-
arar á námskeiðinu auk Eders
og Klaidmans voru Halldór
Halldórsson fréttamaður hjá
Útvarpinu og Haukur Helga-
son aðstoðarritstjóri Dag-
blaðsins. Liðlega tuttugu ís-
lenzkir blaðamenn tóku þátt í
námskeiðinu, og var það mál
manna að það hefði verið hinn
mesti fengur að komu banda-
rísku gestanna.
Helmingur af íbúum jarðarinn-
ar og þrír af hverjum fimm íbúum
þróunarlandanna hafa ekki greið-
an aðgang að hreinu drykkjar-
vatni. Hjá enn fleiri eru hreinlæt-
ismálin í megnasta ólestri. Þetta
leiðir til mikiila mannlegra þján-
inga, bæði af völdum sjúkdóma og
fátæktar, sem fylgir í kjölfar þess
að fólk missir vinnuþrek vegna
heilsubrests. Sérfræðingar Sam-
einuðu þjóðanna eru þeirrar skoð-
unar, að sjúkdómar sem eiga
rætur að rekja til mengaðs
drykkjarvatns hafi það í för með
sér að árlega deyi 25 milljónir
manna, einkum börn, í þróunar-
löndunum.
Þetta er höfuðástæða þess, að
Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því
yfir, að áratugurinn 1981—1990
skuli helgaður drykkjarvatni og
auknu hreinlæti. Sameinuðu þjóð-
irnar hafa sett sér það markmið
að á þessum áratug skuli það
takast að útvega öllum jarðar-
búum hreint drykkjarvatn og
sómasamlega hreinlætisaðstöðu,
einkum að því er salerni og
frárennsli varðar.
Barnadauði
Rúmlega tveir milljarðar
manna, — eða rúmlega helmingur
íbúa jarðarinnar — búa í þróun-
arlöndunum. U.þ.b. 70% þessa
fólks býr til sveita og þar er
mestan vanda við að etja, að því er
varðar útvegun heilnæms vatns og
að því er önnur hreinlætisatriði
varðar.
Með fáeinum tölum er auðvelt
að sýna fram á við hvert ógnar-
vandamál hér er að etja.
Barnahjálparsjóður SÞ (UNI-
CEF) telur að u.þ.b. 15 milljónir
barna yngri en fimm ára deyi
árlega í þróunarlöndunum. Ein
meginorsök þessa gífurlega barna-
dauða er skortur á hreinlæti og
hreinu vatni. Ef alls staðar væri
nóg af hvoru tveggja mætti þegar
í stað draga úr barnadauða í
veröldinni um 50%.
Skv. skýrslum Alþjóða heil-
brigðismálastofnunarinnar
(WHO) má rekja um það bil 80%
allra sjúkdóma til mengaðs vatns,
eða skorts á hreinlæti. Árlega
deyja t.d. 6 milljónir barna. í
þróunarlöndunum, vegna þess að
þau fá óstöðvandi niðurgang og
sama orsök á einnig þátt í dauða
18 milljóna annarra manna.
Alvarlegar
afleiðingar
Aðrir sjúkdómar sem berast
með vatni, hafa það í för með sér
að milljónir manna verða öryrkjar
alla ævi að hálfu eða öllu leyti. Ef
ekki fæst læknishjálp, leiða þessir
sjúkdómar oft til dauða.
Malaría veldur því t.d. að millj-
ón börn undir 2 ára aldri deyja á
ári hverju í Afríku sunnan
Sahara.
Augnsjúkdómurinn trachoma,
sem mjög oft leiðir til blindu, er
svo útbreiddur, að talið er að að
minnsta kosti 500 milljónir manna
þjáist af honum.
Talið er að u.þ.b. helmingur
allra íbúa þróunarlandanna eigi
við að búa, að á þá herji sníkil-
ormar -af einhverri tegund.
Schystosomiasis (eða bilharzia)
sem herjar m.a. á maga, þarma og
lifur hefur það í för með sér, svo
nefnt sé aðeins eitt dæmi um
sjúkdóma af þessu tagi, að um það
bil 200 milljónir manna í 70
löndum, verða alvarlega veikir á
ári hverju.
Mannlegar og ekki síður efna-
hagslegar afleiðingar þessa eru
ekki smáar í sniðum. Að því er
hverja einstaka fjölskyldu varðar,
þá getur sjúkdómur, sem leiðir til
þess að fyrirvinnan verður
óvinnufær haft í för með sér
gífurlega erfiðleika. Þessi veikindi
Eistlending-
ar ókyrrast
undir okinu
Frá Tallin.
— Yfir þúsund
unglingar
mótmæltu á
knattspyrnuvelli
borgarinnar.
Peter Reddaway/OBSERVER
I/ondon 12. janúar 1981.
l>ann áttunda janúar
lauk í Eistlandi pólitísk-
um réttarhöldum sem
einkonndust aí áköfum
tilraunum sovéskra yfir-
valda til þess að kveða
niður vaxandi ólgu meðal
þjóðernissinna í nyrstu
hlutum landsins. I>á
dæmdi hæstiréttur Eist-
lands 46 ára gamlan
kennara. Mart Niklus, til
15 ára íangelsisvistar og
ævilanjírar útlegðar, ok
dr. Juri Kukk, 40 ára
gamlan efnafræðinjf. tH
tveggja ára vistunar í
vinnubúðum. Báðum
mönnunum var gefið það
að sök að hafa verið með
andsovéskan áróður.
Niklus, sem var pólitískur
fangi á árunum 1958—1966, er
aðalleiðtogi andspyrnumanna og
vinur Andrei Sakharovs. Hins
vegar var Kukk vel virtur félagi
í Kommúnistaflokknum og var á
árunum 1975—1976 sendur í árs
rannsóknarleiðangur á vegum
flokksins en yfirgaf hann síðan
þneykslaður árið 1978.
Fyrir dómnum héldu menn-
irnir fram sakleysi sínu og til að
mótmæla aðferðum réttarins
þögðu þeir það sem eftir var
réttarhaldanna. Báðir mennirnir
voru í slæmu líkamlegu ástandi
eftir langvarandi hungurverk-
fall.
Þremur dögum fyrir lok rétt-
arhaldanna fóru lögfræðingar
þeirra fram á . frestun þeirra
vegna slæmrar heilsu skjólstæð-
inga þeirra, en fjórir læknar, þar
á meðal geðlæknir frá hinu
alræmda Serbsky-geðsjúkrahúsi
í Moskvu, skoðuðu þá og fullyrtu
að þeir þyldu réttarhöldin.
Tveim dögum síðar fram-
kvæmdu læknarnir næsta furðu-
lega geðrannsókn á sakborning-
unum í miðjum réttarhöldum og
voru báðir taldir geðheilir.
Vinir hinna ákærðu sem
margir höfðu komið langan veg
frá Lettlandi og víðar að, voru
útilokaðir frá réttarhöldunum
og var borið við plássleysi. Einn
af minnstu sölunum í dómshús-
inu var notaður, og að frátöldum
nokkrum borgaralega klæddum
KGB-mönnum fengu einungis
aldraðir foreldrar Niklus að vera
viðstaddir ásamt konu Kukks.
Síðastliðin tvö ár hafa Eist-
lendingar byrjað að taka sér til
fyrirmyndar hið herskáa for^
dæmi nábúa þeirra, Litháa. I
Litháen hafa samtvinnaðir
þættir þjóðerniskaþólskra trúar-
hefða, áþekkt því sem er hjá
nágrönnum þeirra Pólverjum,
orsakað menningarsprengingu
sem KGB hefur átt erfitt með að
ráða við.
Trúmál hafa ekki skipað háan
sess meðal hinna 1,5 milljón íbúa
Eistlands, en aftur á móti er
pólitísk og efnahagsleg óánægja
meira á oddinum. Mestar
áhyggjur hafa sovésk yfirvöld þó
af vaxandi samvinnu milli Eist-
lendinga og nágranna þeirra
sem æ meir hefur borið á
síðastliðin misseri.
Samningurinn írá '39
Áhyggjur Sovétstjórnarinnar
mögnuðust 23. ágúst 1979 þegar
Niklus og 45 Eistlendingar,
Lettlendingar og Litháar skrif-
uðu undir gætilega orðaða kröfu
sem fjallaði um sjálfstæði til
handa hinum þremur baltnesku
lýðveldum. Á 40 ára afmæli
Stalín-Hitler-samningsins
(1939) sendu þeir ákall til vest-
rænna stjórnvalda og Samein-
uðu þjóðanna þar sem minnt var
á samning þann sem Sovétmenn
gerðu við Eystrasaltsríkin 1920,
þar sem Böltum var hátíðlega
lofað friði og ríki þeirra viður-
kennd sem sjálfstæð lýðveldi
sem Sovétríkin myndu „aldrei"
reyna að ná völdum í.
En hið leynilega uppkast að
Stalin-Hitler-samkomulaginu
1939 splundraði friðarsamning-
unum og lýðveldin voru hernum-
in af sovéskum her. í bænaskjali
frá 1949 var bent á, að þó að
Munchen-sáttmálinn frá 1938
hefði verið ógildur, hefði ekki
verið hróflað við samkomulagi
Stalíns og Hitlers um framtíð
Eystrasaltsríkjanna.
í bænaskjalinu þar sem þögn
heimsins um þessi mál var
hörmuð, voru erlendar ríkis-
stjórnir hvattar til að beita sér
fyrir ógildingu samningsins og
að erlendir herir yrðu kallaðir
heim frá baltnesku ríkjunum.
Að lokum voru Sameinuðu þjóð-
irnar beðnar um hjálp þar sem
þær höfðu tekið við af Þjóða-
bandalaginu sem fyrrnefnd þrjú
ríki höfðu verið meðlimir í.
I kjölfar þessarar sameigin-
legu bænaskrár fylgdu önnur
mótmæli, þar á meðal fordæm-
ing á innrásinni í Afganistan og
sviðsetningu Ólympíuleikanna í
Moskvu.
í janúar 1980 voru tvö siðustu
mótmælaskjölin send til Moskvu
og opinberlega sýnd vestrænum
blaðamönnum af Juri Kukk, en
Niklus hafði skrifað undir bæði
plöggin.
Kukk og Niklus voru hand-
teknir, ásamt fimm öðrum sem
einnig höfðu ritað undir bæna-
skrárnar, í marsmánuði í hreins-
ununum sem fram fóru fyrir
Ólympíuleikana í Moskvu. í bréfi
sem laumað var út úr fangelsinu
segir Niklus frá því hvernig
hann hafi vísvitandi verið settur
í klefa með þjófum, flökkurum,
sadistum og öðru mannlegu úr-
hraki sem eins og hann segir
sjálfur frá „reyndi strax að ræna
mig öllu því sem ég hafði á mér“.