Morgunblaðið - 17.02.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1981
15
Gálgahúmor handa skólafólki
Leiklistarfélag Menntaskólans
við Hamrahlið:
TIL HAMINGJU MEÐ AF-
MÆLIÐ WANDA JUNE
eftir Kurt Vonnegut.
Þýðandi: Ástráður Haraldsson.
Leikstjóri: Gunnar Gunnars-
son.
Leikhljóð: Kjartan Kjartans-
son.
Lýsing: Gunnar S. Gunnarsson
og
Einar ö. Gunnarsson.
Leikmynd: Myndlistarfélag
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Kurt Vonnegut er stjarna
meðal menntafólks í Bandaríkj-
unum og víðar, skáldsagnahöf-
undur sem skrifar á gáskafullan
hátt um alvörumál.
Ekki vissi ég að hann hefði
samið leikrit. En nú hafa nem-
endur Menntaskólans við
Hamrahlíð sannfært mig um
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
það með sýningu Til hamingju
með afmælið Wanda June.
Ef þetta leikrit væri ekki eftir
Kurt Vonnegut yrði það eflaust
talið marklítið. En sá dómur á
ekki rétt á sér vegna þess að
leikritið leynir á sér, er
skemmtilegt og fullt af notalegri
kímni, sumir vildu kannski kalla
hana óhugnanlega.
Það verður aftur á móti að
segja strax í upphafi að hinir
áhugasömu nemendur ráða ekki
fyllilega við túlkun verksins.
Samt áttu þeir góða spretti á
áhugavísu. Guðrún B. Erlings-
dóttir er glúrin leikkona sem
náði á köflum góðum tökum á
þeirri Penelópu sem í leikritinu
ber nafnið Penelope Ryan. Bene-
dikt Stefánsson passaði vel í
hlutverk sonarins Paul Ryan.
Hina sífullu Mildred lék Áslaug
Thorlacius og gerði það af skiln-
ingi á persónunni. Svanhildur
Óskarsdóttir var hin saklausa
Wanda June, nýlátin í bílslysi,
og stóð sig vel. Veigamikið hlut-
verk Harolds Ryan, fyrrverandi
atvinnuhermanns og hetju, var í
höndum Karls Axelssonar sem
skorti töluvert til að vera sann-
færandi fantur. Ingólfur Hjör-
leifsson var í nokkrum vandræð-
um með hlutverk sitt þótt gervi
hans væri gott. Jón Ólafsson,
einn af vonbiðlum Penelópu og
ir' PH JH I. 4 1
i£t rp •. ». '.1F" *
læknir, gerði margt vel í túlkun
sinni, en herslumun vantaði.
Ryksugusölumaðurinn og von-
biðillinn Herbert Shuttle var
yfirdrifinn hjá Jóni Rúnari
Arasyni. Haraldur Jónsson lék
hinn dæmigerða nasista Sieg-
fried von Köningswald og var
leikur hans þolanlegur, gervið
við hæfi.
í Til hamingju með afmælið
Wanda June hæðist Kurt Vonne-
gut að bandarísku samfélagi og
dregur inn í mynd sína af því
ýmsa þá hluti sem vofveiflegast-
ir hafa verið á öldinni, samanber
kjarnorkuárásir á Nagasakí.
Hann kemst frekar einfaldlega
frá efninu með hjálp Hómers.
Gálgahúmor er það sem eftir-
minnilegast verður. Draugar eru
leiddir til vitnis um ágæti
himnaríkis, áhorfandinn „sann-
færður" um ágæti þess að deyja
og komast í eilífa sælu fyrir
handan, huggun mörgum að þar
er hægt að drekka sig fullan. Það
er ekki um að ræða neitt Gullna
hlið hjá Vonnegut.
Ekki er fjarri sanni að verkið
eigi vel við skólafólk og því hefur
leikstjórinn, Gunnar Gunnars-
son, áttað sig á. Engu að síður
hefði margt mátt fara betur í
uppsetningunni, en hana verður
að dæma eftir leikurunum sem
eru byrjendur og fyrst og fremst
að skemmta sjálfum sér og
skólasystkinum sínum. Sem slíkt
nær leikritið takmarki sínu, en
út fyrir veggi skólans á það lítið
erindi.
Trúðar frá Garðabæ
Skralli, Malli og Traili leiknir af Aðalsteini Bergdal, Þóri
Steingrímssyni og Randver Þorlákssyni.
Garðaleikhúsið:
GALDRALAND
eftir Baldur Georgs.
Leikstjóri: Erlingur Gislason.
Leikfélögum og leikhópum
fjölgar sífellt, nær 'daglega ber-
ast fréttir af leikstarfsemi
áhugaleikfélaga sem fáir vissu
að væru til. Nú hafa áhugamenn
um leiklist í Garðabæ bæst í hóp
þeirra sem telja að enginn geti
verið án leiklistar. Nýstofnað
Garðaleikhús efnir til fjöl-
skylduskemmtunar með Galdra-
landi eftir Baldur Georgs sem
glatt hefur marga með Konna
sínum.
Galdraland er varla leiksýning
í venjulegri merkingu. Hér er
um að ræða trúðleik eins og við
kynnumst í sirkus. Trúðarnir
eru vinsælir meðal sirkusgesta,
ekki sist barnanna. Eins og
leikstjórinn, Erlingur Gíslason,
bendir á er ádeila þeirra og skop
ekki í anda dægurmála. Þeir
fjalla um „megineðlisþætti
mannsins sjálfs".
Baldur Georgs verður varla
talinn eftirminnilegur leikrita-
höfundur sé mið tekið af Galdra-
landi. Eiginlega er hann að sýna
galdra og brögð með verkinu,
leyfa áhorfendum að skyggnast
inn í þann heim sem hann hefur
tileinkað sér og lengi verið trúr.
í Galdralandi erum við stödd í
sirkus, getum við hugsað okkur.
Stjórnandi er Malli, leikinn af
Þóri Steingrímssyni, og trúðarn-
ir Skralli, leikinn af Aðalsteini
Bergdal, og Tralli, leikinn af
Randver Þorlákssyni. Ekki er
beinlínis hægt að segja að boðið
sé upp á nýstárleg atriði, en
gamalkunn brögð eru sýnd með
góðum árangri. Einkum er það
yngsta kynslóðin sem verkið
höfðar til. Meðal annars er
spennandi atriði með draugi sem
hrellir þá félaga, Malla og
Skralla.
Trúðarnir eru eins og á upp-
talningu má sjá í höndum
kunnra leikara. Aðalsteinn
Bergdal, Skralli, er vegna þeirr-
ar einfeldni sem hann túlkar og
hve vel hann gerir það, eftirlæti
ungra áhorfenda. Gaman var
einnig að sjá Randver Þorláks-
son í hlutverki Tralla, en hann
hefur áður skemmt börnum svo
að margir muna. Þórir Stein-
grímsson er kunnari fyrir leik-
stjórn en leik, en hann var hinn
röggsamasti stjórnandi.
Galdraland er þokkaleg fjöl-
skylduskemmtun, einkum við
hæfi hinna ungu. Maður veit
aftur á móti ekki hvað hún boðar
um fíamtíð Garðaleikhússins.
Garðbæingar í leikarastétt
þurfa að láta meira að sér kveða
í eigin leikhúsi til þess að eftir
verði tekið og raunverulegar
kröfur gerðar til þeirra.
En hér er á ferð byrjun sem
kannski getur orðið meira með
tímanum.
Æfingar
í Oman
FALLEGT OG STERKT
Washiniílon. 12. febrúar. AP.
BANDARÍSKA landvarna-
ráðuneytið staðfesti í«rm-
lega í dag fréttir um að
Bandarikjamenn muni halda
æfingar i fjarskiptum „í
smáum stíl“ í Oman ásamt
herafla iandsins síðar i þess-
um mánuði.
Þetta eru fyrstu æfingar af
þessu tagi í Oman og Rússar
og marxistastjórnin í Suður-
Jemen hafa harðlega gagn-
rýnt fréttirnar um þær. Rúss-
ar fordæmdu æfingarnar á
þeirri forsendu, að þær væru
liður í hernaðarráðstöfunum
Bandaríkjamanna gegn þjóð-
um heimshlutans.
Talsmaður Pentagon sagði
hins vegar, að bardagasveitir
yrðu ekki sendar til Oman,
aðeins menn, sem mundu
starfa með herafla Oman, en
ekki sem ráðunautar.
At'ía.YSIV.ASIMINN F.R:
.....
JRorounblfibib
Þú getur valið um 11 gerðir eldhúsa frá NOREMA í mismunandi
verðflokkum. Allar eiga þær það sameiginlegt, að vera fallegar og
sterkar. Við gerð þessara innréttinga hefur verið lögð sérstök áhersla á
að þær þyldu mikla notkun. Við veitum þér allar ráðleggingar og gerum
þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga.
Hringdu eða komdu, og fádu iitprentaðan bækling frá Norema
innréttingahúsió
BIIMOREMA
Háteigsvegi 3
Verslun sími 27344