Morgunblaðið - 17.02.1981, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRIIAR 1981
19
verið auglýst eftir skólastjóra og er
umsóknarfrestur úti þessa dagana.
Ég bind miklar vonir við, að
kraftmiklum ágætismönnum, sem
marga er að finna í hópi búfræði-
kandidata, finnist það heillandi
viðfangsefni að taka þátt í og hafa
forystu fyrir endurreisn og upp-
byggingu þessa norðlenska höfuð-
bóls, þessa menntaseturs landbún-
aðarins. Ég hef ekki óttast að það
takist ekki að fá starfslið að
skólanum. Það mun hins vegar
koma í ljós allra næstu daga, hvaða
umsóknir um skólastjórastöðu ber-
ast. Telja má fullvist, að ærin þörf
sé fyrir tvo bændaskóla í landinu.
Hvanneyrarskóli getur ekki tekið
við öllum þeim umsóknum, sem
berast og breytingar á búfræðslu-
lögum gera það að verkum, að þörf
er fyrir aukið skólahúsnæði við
búnaðarfræðsluna.
Á síðasta ári hafa nokkrir ungir
menn fengið styrk til náms í
fiskirækt og loðdýrarækt erlendis.
Þegar eru sköpuð skilyrði til þess
að unnt sé að taka upp kennslu í
fiskirækt á Hólum og kennslu í
loðdýrarækt þarf einnig að færa
inn í landið. Hefðbundið búfræði-
nám verður auðvitað meginstofn
skólastarfsins á Hólum sem og í
öðrum bændaskólum, en kennsla í
öðrum búgreinum eða nýjum grein-
um getur einnig þar orðið til
verulegrar styrktar og átt þátt í því
að laða nemendur að skólanum.
Á siðasta ári urðu miklar umræð:
ur um skattamál meðal bænda. I
haust bárust undirskriftir á annað
þúsund bænda, þar sem mótmælt er
59. gr. skattalaga og öðrum þeim
ákvæðum laganna sem fjalla um
heimild skattstjóra til að áætla
mönnum í sjálfstæðum atvinnu-
rekstri tekjur. Fyrir dyrum stendur
að leggja fram á Alþingi frumvarp
til laga um breytingu á skattalög-
um, m.a. í framhaldi af efnahagsað-
gerðum ríkisstjórnarinnar frá síð-
ustu áramótum. Inn í það frumvarp
þarf að taka ákvæði um að fella
niður heimild til tekjuáætlunar,
sem fjallað er um í 59. grein. Ég hef
alla stund verið andvígur þessu
ákvæði og tel það ranglátt og fyrir
þessari breytingu er sterkur vilji
innan ríkisstjórnarinnar.
Rétt er að minna á, að nýbygg-
ingargjaldið, sem gerð var ályktun
um á síðasta Búnaðarþingi, var fellt
niður frá síðust áramótun.
Meðal mikilvægustu fram-
kvæmda, sem nú er unnið að fyrir
landbúnaðinn, er bygging saltpét-
urssýruverksmiðju við Áburðar-
verksmiðjuna í Gufunesi. Skrifað
var undir samninga um kaup á
vélum fyrir jól, og er reiknað með,
að vélarnar verði settar niður seint
á þessu ári. Jafnframt er búist við,
að verksmiðjan geti tekið til starfa
á árinu 1982. Til þessara fram-
kvæmda hefur verið tryggð láns-
heimild, sem nemur 3,5 milljörðum
gamalla króna. Þessi verksmiðja er
talin sérlega hagkvæm og á vænt-
anlega eftir að eiga þátt í því að
gera áburðarframleiðsluna til
muna ódýrari en ella á komandi
árum. Þess er full þörf, því búist er
við miklum hækkunum á áburði á
þessu ári, einkum þess hluta, sem
fluttur er inn.
Hér að framan hef ég lítt rætt
um löggjafarmálefni á sviði land-
búnaðarmála. Fyrir Alþingi liggur
nú frumvarp til laga um breytingu
á lögum um Framleiðsluráð land-
búnaðarins o.fl., sem er flutt til
staðfestingar bráðabirgðalögum frá
23. júní sl.
Á vegum ráðuneytisins eru í
undirbúningi nokkur þingmál. Má
þar nefna frumvarp til laga um
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
þar sem lögin verða tekin fyrir í
heild.
Þá er frumvarp til laga um
Tilraunastöð Búnaðarsambands
Suðurlands og Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins á Stóra-Ármóti,
sem fjallar um lögformlegt sam-
starf þessara aðila við að flytja
Tilraunastöð Búnaðarsambands
Suðurlands frá Laugardælum að
Stóra-Ármóti.
Til athugunar er frumvarp til
laga um breytingar á ábúðarlögum
og jarðalögum, og er þar m.a. um að
ræða hvort ekki sé rétt að slaka á
ákvæðum um byggingarskyldu. á
jörðum, sem teknar hafa verið
undir sumarbústaðahverfi eða
orlofsheimili launþegasamtaka.
Þá er í undirbúningi frumvarp til
laga um varnir gegn sjúkdómum og
meindýrum á plöntum.
Unnið að stefn-
umörkun
Verið er að vinna að tillögu til
þingsályktunar um stefnumörkun í
landbúnaði. Sú nefnd, sem að því
máli starfar, hefur tvívegis skilað
bráðabirgðaáliti en síðan drögum
að tillögu, sem nú er í athugun og
frekari vinnslu. Verður þessi tillaga
væntanlega lögð fyrir Alþingi
innan skamms. Nefndin gerði nokk-
urt hlé á starfi sínu, meðan hún
dokaði eftir því, hvort ekki fengist
niðurstaða úr starfi nefndar, sem
vinnur að úttekt á þjóðhagslegu
gildi landbúnaðarframleiðslunnar, •
en starf þeirrar nefndar hefur
gengið hægar heldur en skyldi og
erfitt að bíða eftir niðurstöðum öllu
lengur.
I nóvember sl. skilaði samstarfs-
nefnd um landgræðsluáætlun nýrri
tillögu um landgræðsluáætlun
1981—85. Ráðuneytið sendi þessa
tillögu þingflokkunum til athugun-
ar og þarf að taka ákvörðun um það
hið fyrsta, hvort mál þetta verði
lagt fyrir Alþingi af hálfu þing-
flokkanna eða á vegum ráðuneytis-
ins. Hér er um ákaflega þýðingar-
mikið mál að ræða og er væntan-
lega öllum landsmönnum ljóst, hver
nauðsyn er að halda áfram því
starfi, sem unnið var á grundvelli
ályktunar Alþingis frá hátíðafundi
þess á Þingvöllum 1974.
Herra forseti. Á þessu ári hefur
náðst jafnvægi á milli framleiðslu á
mjólk og mjólkurvörum og innan-
landsneyslu. Þetta hefur tekist
vegna skilnings bænda og fyrir
frumkvæði þeirra sjálfra, en einnig
vegna nauðsynlegra aðgerða stjórn-
valda. Bændur hafa leyst offram-
leiðsluvandann og tekið á sig þá
erfiðleika, sem slíkum samdrætti er
samfara. Fyrir þegnskap sinn og
samhug eiga þeir lof skilið.
Sú mikilsverða staðreynd blasir
við að nauðsynlegu samdráttar-
skeiði landbúnaðarframleiðslunnar
er lokið. Við megum ekki missa
mjólkurframleiðsluna niður.þannig
að skortur verði. Og það er þjóðfél-
agsleg nauðsyn að halda sauðfjár-
framleiðslunni í svipuðu horfi og
verið hefur.
Þrátt fyrir þetta er auðvitað
langt frá því, að öll vandamál séu
úr sögunni. Þau eru af margvís-
legum toga. Það er t.d. miklum
erfiðleikum bundið að halda fram-
leiðslumagni innan tiltekinna
marka því um sinn er ekki svigrúm
til framleiðsluauka í þessum tveim
megingreinum landbúnaðarins.
Breytilegt árferði og misjöfn gæði
uppskerunnar hafa þar ásamt
fleiru mikil áhrif á.
Bændastéttin þarf fyrst um sinn
að forðast stórar sveiflur í
búskaparháttum. Hún þarf að
halda í horfinu, ekki stefna að
aukinni framleiðslu heldur fram-
leiðni, aukinni hagkvæmni. Á þeim
vettvangi er mikið verk óunnið. Að
þvi verki þurfa bændur að beita
hugkvæmni sinni, þekkingu og
metnaði.
Þær stjórnunaraðgerðir, sem for-
ystumenn bændasamtakanna ann-
ast framkvæmd á lögum sam-
kvæmt, þurf að mínum dómi að
þjóna þeim sjónarmiðum, sem hér
hafa verið sett fram. Þau sjónarmið
rúma þróunarmöguleika fyrir land-
búnaðinn, sem honuin eru nauðsyn-
legir, því viljinn til framfara hefur
ævinlega verið sterkasta líftaugin í
starfi flestra bænda. Þorri lands-
manna gerir sér ábyggilega ljóst, að
á þá líftaug má aldrei skera.
Ég þakka forystumönnum
Búnaðarfélags íslands, Stéttarsam-
bands bænda og starfsfólki í stofn-
unum landbúnmaðarins gbtt og
ánægjulegt samstarf á liðu ári. Um
leið flyt ég búnaðarþingi óskir um
heilladrjúg störf, til farsældar fyrir
land og þjóð.
(Millifyrirsagnir eru blaðsins).
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
Hér á eftir fara spurninjíar og svörin við þeim, sem lesendur
Morgunblaðsins hafa beint til þáttarins Spurt og svarað um skattamál.
Lesendaþjónusta þessi er fólgin í því að lesendur hringja spurningar
inn í síma 10100 kl. 14 — 16 frá mánudegi til föstudags, síðan leitar blaðið
svara hjá skattyfirvöldum og birtir spurningarnar og svörin í blaðinu.
Framtalsfrestur rennur út á miðnætti annað kvöld. 18. febrúar.
Tekið verður á móti síðustu spurningunum að þessu sinni í Lesendaþjón-
ustu Morgunblaðsins „Spurt og svarað um skattamál“ í símatímanum í dag og í
blaðinu á morgun birtist síðasti þátturinn.
Framtalsskylda rík-
iskuldabréfa o.fl.
Sigurður H. Magnússon. Hörða-
landi 22. Reykjavík: Ef nám er
stundað í 9 mánuði á árinu, fæst
þá meiri afsláttur en getið er um
vegna 6 mánaða náms?
2. Eru ríkisskuldabréf, sem
keypt eru á þeim tíma, þegar slík
bréf voru ekki framtalsskyld,
framtalsskyld nú?
3. Ég starfaði úti á landi yfir
sumartíma. Er ferða- og fæðis-
kostnaður vegna slíkrar vinnu
frádráttarbær?
Svör: 1. Nei, sex mánaða nám
veitir rétt til hámarksfrádrátt-
ar, þ. e. 725.000 kr., sé nám
stundað hérlendis.
2. Flest ríkisskuldabréf eru
framtalsskyld á sama hátt og
sparifé, og eru því framtalsskyld
skv. núgildandi lögum. Sé það
hins vegar tekið fram á bréfinu
að það sé undanþegið fram-
talsskyldu þá gildir það, þar má
t. d. nefna Hringvegshappdrætti
ríkissjóðs.
3. Hluta fæðiskostnaðar má
einungis færa til frádráttar að
fæðispeningar eða fæðishlunn-
indi séu talin til tekna. Sama
gildir að mestu um fargjöld, en
fyrirspyrjanda er bent á að
kynna sér reglur þar að lútandi í
Leiðbeiningum Ríkisskattstjóra,
sem fást hjá skattstjórum.
Skattstiginn .
Jón Björnsson. Stigahlíð 18.
Reykjavík: Tölurnar sem komið
hafa fram í þættinum og gilda
um skattstigann, miðast þær við
sameiginlegan tekjustofn hjóna
eða hvorn einstakling? Má nýta
10%-frádráttinn hjá eigin-
manni, ef eiginkonan vinnur
ekki fyrir launum?
Svar: Tölurnar sem birtar
voru hér í Spurt og svarað
miðast við einstakling, en nú er
lagður skattur á hvort hjóna
fyrir sig, en ekki sameiginlega
eins og áður var. Það má nota
hvora frádráttarregluna sem
maður kýs.
Frádráttur
vegna stofnunar
heimilis o.fl.
Ó.G. spyr: 1. Geta karl og kona,
sem búa saman í óvígðri sambúðí
og uppfylla kröfur um að gefa
upp saman, nýtt sér frádrátt
vegna stofnunar heimilis?
2. Karl og kona, sem ekki eru í
vígðri sambúð stofna til íbúðar-
kaupa saman, en gera skatt-
framtal sem einhleypingar.
Skiptast þá skuldir og fasteigna-
mat íbúðarinnar til helminga?
Báðir aðilar eru skráðir eigend-
ur.
3. Ef skuldir, sem íbúðarkaupi
tekur við á íbúð sem hann kaupir
1980 eru ekki yfirfærðar fyrir
árslojí, telur hann þær þá fram á
skattframtali sínu? Tekið skal
fram að afsal hefur ekki farið
fram.
Svör: 1. Nei, skilyrði til frá-
dráttar vegna stofnunar heimilis
er að gengið hafi verið í hjúskap.
. 2. Hvort um sig telur fram
sinn hluta í eignum og skuldum,
þ. e. helming, ef eignaraðild er
jöfn.
3. Hafi yfirtaka skuldanna
ekki farið fram fyrir áramót ber
kaupanda ekki að telja þær
skuldir, sem hann kann að taka
að sér síðar.
Launatekjur
ellistyrksþega
B.E. spyr: Er eitthvert hámark á
þeim launatekjum sem elli-
styrksþegi má vinna sér inn til
að hann verði skattlagður?
Svar: Enginn tekjuskattur
greiðist af fyrstu 3.254.444 kr., ef
miðað er við að 10% frádráttar-
reglan sé notuð, og skiptir ekki
máli hvort þessu tekjumarki er
náð með launatekjum eða ellilíf-
eyri, tekjutryggingu e. þ. h.
Bílgeymslur og
vísindastyrkir
Bryndís Jóhannsdóttir. Alf-
hólsvegi 20. Kópavogi: 1. Eru
vextir af vaxtaaukalánum vegna
byggingar bílgeymslu frádrátt-
arbærir á sama hátt og vegna
íbúðarhúsnæðis?
2. Eru erlendir vísindastyrkir,
s.s. NATO Science fellowship,
frádráttarbærir? Hvernig er það
þá meðhöndlað?
Svör: 1. Já. 2. Styrkir teljast
til tekna í lið T6, en hugsanlega
getur framteljandi átt rétt á
frádrætti, hafi hann haft beinan
kostnað við öflun teknanna, sbr.
3. mgr. 30. gr. skattalaganna.
Líffeyristrygg-
ingagjald
S.J. spyr: Er lííeyristrygg-
ingagjaldið frádráttarbært og
hvernig á að færa það á framtal-
ið?
Svar: Ef ekki er notaður
10%-frádráttur heldur frádrátt-
ur D og E má draga lífeyris-
tryggingargjald frá tekjum. Er
það fært í reit 55 í lið T8.
Enn um
10%-regluna
Magnús Þorsteinsson. Brim-
hólabraut 33. Vestmannaeyjum:
Ef framteljandi velur 10%-regl-
una, þarf hann þá að fylla út
báða dálkana á neðri hluta
annarrar síðu framtalseyðublað-
sins?
Svar: Ef hann vill nota 10%
frádráttinn þarf har.n ekki að
fylla út dálkinn vinstra meginn,
en rétt er að hafa í huga, að
skattstjóri velur þá frádráttar-
reglu sem framteljanda er hag-
stæðari, ef.allar upplýsingar eru
fyrir hendi.
Menntunarkostn-
aður barna eldri
en 16 ára
J.K. spyr: Á blaðsíðu 7 í leið-
beiningunum er minnst á
menntunarkostnað, ef framtelj-
andi hefur veruleg útgjöld vegna
menntunar ^arna sinna, 16 ára
og eldri. Hv ;rnig á að telja
kostnaðinn fram og hvar?
Svar: Hjá skattstjórum fæst
eyðublað sem nefnist „Umsókn
B, skv. 66. gr.“ og ber að fylla það
út og senda með framtali for-
eldris. Skattstjóri veitir síðan
frádrátt skv. umsókninni, eftir
því sem við á.
Ráðstöfunarfé
skólabarna
eldri en 16 ára
Ó.J. spyr: Hvað er talið nægilegt
ráðstöfunarfé fyrir barn eldra
en 16 ára til að mæta beinum
kostnaði við skólanám? Hvernig
á að koma á framfæri ósk um
frádrátt vegna skólanáms barns
eldra en 16 ára og hvaða upplýs-
ingar þurfa að koma fram?
Svör: Það er ómögulegt að
nefna ákveðna upphæð því fjár-
þörfin er svo misjöfn, bóka- og
tækjakostnaður ólíkur, dvalar-
kostnaður mishár, sumir nem-
endur dvelja í foreldrahúsum
o.s.frv. Sjá nánar svar hér næst
að ofan.
Dráttarvextir af
opinberum gjöldum
S.B. spyr: Eru dráttarvextir
vegna opinberra gjalda frádrátt-
arbærir?
Svar: Nei, einungis vextir sem
stafa frá lánum, teknum til
öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin
nota, skv. nánari skilyrðum ný-
settra laga frá Alþingi.
Launaseðlar frá
atvinnurekendum
H.I. spyr: Ég vann í 2 mánuði í
Reykjavlik á s. 1. ári. Má atvinn
urekandi stíla launaseðil á dval-
arstað minn í Reykjavík þá, þar
sem ég á og átti á sama tíma
lögheimili úti á landi?
Svar: Engin ákvæði eru í
lögum um að launagreiðanda sé
skylt að senda launþega samrit
af launaseðli, þótt það sé viðtek-
in venja.
Verðbótaþáttur
vaxtaaukalána
Magnús Ríkharðsson. (íldugötu
8. Hafnarfirði: Má reikna verð-
bótaþátt vaxtaaukalána á sama
hátt og vexti, þ. e. til frádráttar?
Svar: Með vaxtagjöldum telj
ast gjaldfallnar verðbætur •.
afborganir.