Morgunblaðið - 17.02.1981, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1981 2 1
• íslensku landsliðsmennirnir í handknattleik ásamt eiginkonum sínum. Myndin var tekin í gærkvöldi heima hjá formanni HSÍ
Júlíusi Hafstein og konu hans Ernu Hauksdóttur. Þar var hópurinn við spilamennsku og naut veitinga. Landsliðsmennirnir unnu
það frækilega afrek um helgina að sigra Austur-Þjóðverja 18—15 (Sjá bls. 24—25). Næstkomandi fimmtudag heldur svo
landsliðshópurinn til Frakklands þar sem liðið tekur þátt í B-heimsmeistarakeppninni í handknattleik. u<»m.Kristján e.
Glæsilegur
árangur
„ÍSLENSKA landsliðið lék mjög
vel. Þeir unnu sanngjarnan sigur
i þessum leik. Það gekk allt upp
hjá þeim bæði í vörn og sókn. Við
vorum hinsvegar mjög óheppnir.
Sérstaklega i siðari hálfleikn-
um “ Svo mælti þjálfari Austur-
Þjóðverja eftir sigurleik íslands
gegn liði hans á sunnudagskvöld-
ið.
Hann bætti svo við. Ef liðið
leikur jafnvel og það gerði hér í
kvöld í B-keppninni, þá á það eftir
að ná langt. Það undirstrikar
hversu glæsilegur sigur íslenska
liðsins er að landslið Austur-
Þjóðverja hefur ekki tapað síðani
HILMAR Björnsson hefur náð
góðum árangri með landsliðið að
undanförnu, sigur og jafntefli
gegn heimsmeisturum Vestur-
Þjóðverja, sigrar gegn Frökkum
og Belgum, og nú síðast en ekki
síst, gegn ólympiumeisturum
Austur-Þjóðverja.
maí mánuði árið 1980. En þá
tapaði liðiö gegn Rúmenum. Síðan
hefur ávallt sigur unnist þrátt
fyrir að leikið hafi verið gegn
sterkustu þjóðum heims. Hér á
eftir fer nýting einstakra leik-
manna í leiknum. Fyrst skot þá
mörk og bolta glatað.
PállBj. 9 6 3
Bjarni 6 4 0
Sigurður 7 2 1
Pállól. 6 2 1
Axel 2 1 0
ÓlafurH. 3 1 1
Steindór 111
Þorbergur 101
Stefán H. 112
Standard tapaði heima
STANDARD Licge tapaði mjög
óvænt á heimavelli sinum i belg-
isku deildarkeppninni i knatt-
spyrnu um helgina. Asgcir og
Meistararnir
mætast í kvöld
EINN leikur fer fram í úrvals-
deildarkeppninni i körfuknatt-
leik í kvöld. Þó að Njarðvík hafi
þegar tryggt sér sigur á mótinu,
er ekki hægt að segja annað en að
hér sé um stórleik að ræða. Það
eru Valur og Njarðvík sem mæt-
ast i Laugardalshöllinni og hefst
leikurinn klukkan 20.00. Það eru
þvi hinir nýbökuðu íslandsmeist-
arar sem mæta meisturum sið-
asta árs, tvö bestu liðin nú, og því
góður möguleiki á hörkuleik.
félagar fengu þá Ghent í heim-
sókn og sigraði Ghent með eina
marki leiksins. Standard lafir þó
enn i þriðja sæti. en Lokeren.
Arnór Guðjohnsen og félagar,
drógu á Standard með góðum
útisigri gegn Lierse. Úrslit leikja
urðu sem hér segir:
Molenbeek — Beringen 0—1
Kortryk — FC Liege 0—1
Standard — Ghent 0—1
Beveren — Waregem 3—1
Berchem — Anderlecht 0—2
C. Brugge — Waterschei 2—3
Winterslag — FC Brugge 2—0
Lierse — Lokeren 1—2
Beerschot — Antwerp 0—1
Anderlecht hefur nú 6 stiga
forystu, 38 stig, en Beveren er
sem fyrr i öðru sæti með 32 stig.
Standard hefur 29 stig, en Loker-
en 28 stig.
Enn siqrar AZ
AZ '67 Alkmaar hélt áfram sigur-
göngu sinni í hoilensku deildar-
keppninni í knattspyrnu með
3—1 sigri gegn Excelsior. En ef
litið er á úrslit leikja hér að
neðan, kemur glöggt í ljós, að
ekki gekk öllum toppliðunum
jafn vel.
Sparta — Willem 2. 3—1
FC Utrecht — Feyenoord 2—0
GAE Deventer — FC Tvente 3—0
Roda JC — Maastricht 2—5
Wageningen — Ajax 0—2
Nac Breda — Nec Nijmegen 4—0
PSV Eindh. — Pec Zwolle 0—1
Excelsior — Alkmaar 1—3
FC Groningen — Den Haag 0—1
Óvæntustu úrslitin eru án efa
sigur Go Ahead Eagles gegn FC
Tvente, en Deventer-liðið er meðal
neðstu liða deildarinnar. En GAE
náði sér vel á strik og við því áttu
leikmenn Tvente ekkert svar. Jean
De Graaf skoraði tvívegis og Kees
Van Kooten þriðja markið.
Þá verður ekki annað sagt, en að
sigur Pec Zwolle á útivelli gegn
Phillips Sportverein Einhoven
hafi komið eins og skrattinn úr
sauðaleggnum. Ron Jans skoraði
sigurmark Pec.
Feyenoord beið sinn þriðja ósig-
ur á þessu keppnistímabili, er liðið
sótti Utrecht heim. Feyenoord
sótti meira, en Utrecht sá hins
vegar um að skora mörkin. Það
fyrra skoraði maður sem heitir því
óviðkunnalega nafni Jan Monster.
Síðara markið skoraði Leo Van
Veen, en um hálfgert sjálfsmark
Rene Notten var þó að ræða.
Alkmaar var aldrei í vandræð-
um með Excelsior og þeir Pier Tol,
Jos Jonker og Kurt Welzl skoruðu
mörk liðsins. Ajax vann einnig
góðan útisigur, Tcheu La Ling og
Frank Arnesen skoruðu mörk liðs-
ins.
Hagur Alkmaar vænkaðist enn
við tap Feyenoord, því Rotter-
dam-liðið var langt fyrir ofan
Utrecht, sem er í þriðja sæti.
Alkmaar hefur nú 9 stiga forystu,
39 stig að 20 leikjum loknum.
Feyenoord hefur 30 stig og Ut-
recht 26 stig. Þrjú félög hafa 23
stig hvert, Ajax, Tvente og PSV
Eindhoven.
Ipswich mætir Forest
STÓRVELDIN tvö, Ipswich og
Nottingham Forest. drógust
saman i 8-liða úrslitum ensku
bikarkeppninar i knattspyrnu.
Fer leikurinn fram i Notting-
ham 7. mars næstkomandi.
Margir hefðu fremur kosið að
sjá lið þessi mætast í úrslita-
leiknum sjálfum. en veðmang-
arar á Bretlandseyjum höfðu
flestir tippað á lið þessi, auk
Tottenham, sem sigurstrang-
legustu liðin i keppninni.
Tottenham mætir annað hvort
Newcastle eða Wrexham á
heimavelli sínum, mætir sem
sagt eina liðinu sem eftir er í
keppninni og tilheyrir ekki 1.
deild. Everton og Southampton
eiga eftir að gera upp sín á milli,
en sigurvegarinn í viðureigninni
fær það hlutverk að taka á móti
Manchester City. Loks drógust
saman Middlesbrough og Wolves
og verður leikið í Middlesbrough.