Morgunblaðið - 17.02.1981, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1981
’i
GLÆSILEGUR SIGUR GEGN
Fyrsti sigur Islands
gegn A-Þjóóverjum í
handknattleikslandsleik
ÁFRAM ísland, áfram ísland, hljóm-
aði svo kröftuglega úr börkum hinna
fjöldamörgu áhorfenda sem fylltu
Laugardalshöllina á sunnudagskvöld
að með eindæmum var. Oft hafa
íslenskir áhorfendur staðið sig vel en
þeir fóru á kostum á sunnudags-
kvöldið og stuðningur þeirra við
íslensku landsliðsmennina í hand-
knattleik var mikill. Þeir brugðust
heldur ekki. Með gífurlega mikilli
baráttu og dugnaði tókst liðinu að
sigra Ol-meistara Austur-Þjóöverja
og eitt albesta handknattleikslands-
Ótrúlegar
hálfleikstölur
liö heims. Áhugamennirnir lögðu að
velli hina þrautþjálfuðu atvinnumenn
sem ekkert gera annað en að æfa og
keppa. Sigur íslenska liðsins var
engin tilviljun. Frá fyrstu mínútu til
þeirrar síðustu lék landslið íslands
betur og hafði lengst af þrjú til fjögur
mörk í forskot. Sigur gegn stórveld-
inu í handknattleik, A-Þjóðverjum, er
mikill sigur fyrir íslenskan hand-
knattleik og fyrir íslenskt íþróttalíf.
Sigurinn var vegna sterkrar liðs-
heildar sem lagði allt sitt í leikinn og
fóru sumir leikmenn á kostum.
Island —
Austur-Þýskaland
18—15
Leikur liðanna fór frekar rólega
af stað. Fyrstu tækifæri íslenska
liðsins fóru forgörðum. Þjóðverjar
skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins.
Stefán Halldórsson skoraði fyrsta
mark íslands. Þjóðverjar skora,
3—1. Þá var komið að þætti Páls
Björgvinssonar. Oft hefur Páll
leikið vel á fjölum Laugardalshall-
arinnar, en leikur hans gegn
Austur-Þjóðverjum á sunnudags-
kvöldið var stórkostlegur. Sann-
kölluð rós í hnappagatið hjá Páli.
Hann stjórnaði spili íslenska |iðs-
ins mjög vel og fann sjálfur hverja
smuguna af annarri í vörn Þjóð-
verja. Þær nýtti hann til fulinustu
og kom markverði liðsins alveg úr
jafnvægi með lúmskum skotum
sem hann réði ekkert við.
Næstu þrjú mörk íslenska liðs-
ins skoraði Páll. Staðan um miðj-
an hálfleik var jöfn, 5—5. Þá kom
stórkostlega góður leikkafli hjá
íslenska liðinu og það náði þriggja
marka forskoti, 8—5. Á þessum
tíma var vörn og markvarsla mjög
góð hjá íslenska liðinu. Hinir
sterku leikmenn A-Þjóðverja voru
stöðvaðir framarlega á veilinum
og teknir föstum tökum. Ef skot
; fóru í gegn varði Einar Þorvarðar-
|son þau meistaralega vel. Var
greinilegt að hin mikla og kröft-
uglega barátta íslensku leikmann-
'anna kom Þjóðverjum í opna
skjöldu.
Það var ekkert gefið eftir, stór-
leikur íslensku leikmannanna hélt
áfram og fimm mörk skildu liðin
að er flautað var til hálflejks.
Hreint ótrúlegar hálfleikstölur,
12—7. Alls átti íslenska liðið 24
sóknir í fyrri hálfleik, og skoraði
12 mörk, 50% sóknarnýting. Varn-
arleikurinn í fyrri hálfleik var
stórkostlega góður, svo og mark-
varsla Einars. í heilar 11 mínútur
síðari hluta hálfleiksins skoruðu
A-Þjóðverjar aðeins 1 mark.
Þoldu álagiö vel
Það voru margir smeykir um að
síðari hálfleikurinn myndi verða
erfiður fyrir íslenska liðið. Og
hann varð það. En hetjur íslands
þoldu álagið vel. Þrátt fyrir að
hinir sterku leikmenn Þjóðverja
gerðu allt hvað þeir gátu tókst það
ekki. Á köflum léku Þjóðverjar
jafnvel ruddalega. Það fór mjög í
skapið á þeim hversu vel íslenska
liðið lék. Steindór skoraði fyrsta
mark síðari hálfleiks, 13—7, sex
marka munur. Þegar 10 mínútur
voru liðnar af síðari hálfleik var
staðan 14—10. Þrjú mörk frá
Þjóðverjum í röð og nú var farið
að fara um áhorfendur sem ekki
lágu á liði sínu og hvöttu landann
hvað mest þeir máttu. Einmitt á
þessu augnabliki i leikjum lands-
liða á undanförnum árum hafa
komið slæmirr kaflar. En það
gerðist ekki. Mikil yfirvegun var í
leik íslenska liðsins og boltanum
var haldið eins lengi og kostur var.
Mikil ögun í leiknum og þannig á
það að vera. Þegar 10 mínútur
voru eftir af leiknum var staðan
17—13. Og enn var álagið og
pressan á íslenska liðinu. Þjóð-
verjar lögðu sig alla fram. En allt
kom fyrir ekki. Islensku ieikmenn-
irnir börðust eins og ljón og komu
einhverjum eftirminnilegasta
sigri í íslenskri handknattleiks-
sögu í höfn.
Bjarni, Páll og Ein-
ar fóru á kostum
Fyrst og fremst var þetta sigur
sterkrar liðsheildar. Bjarni Guð-
mundsson lék sennilega sinn besta
landsleik fyrr og síðar. Hann var
inn á allan leikinn og fór á
kostum. Hann var sívakandi og
vinnandi í vörn og sókn. Og hvað
eftir annað komst hann inn í
sendingar Þjóðverjanna og náði
boltanum. Kraftur hans og hraði
er með ólíkindum. Þá hefur Bjarni
óvenju gott auga fyrir því sem er
að ske í leiknum hverju sinni.
Páll Björgvinsson hefur ekki
leikið jafn vel með landsliði hér
heima. Hann stjórnaði spili liðsins
eins og herforingi og mörk hans
voru stórglæsileg, sér í lagi síð-
asta mark hans í leiknum. Þá
tætti hann vörn Þjóðverja í sund-
ur með glæsilegu gegnumbroti. Þá
hafði það mikið að segja er líða
tók á leikinn hversu rólegur og
• Bjarni Guðmundsson, ein
af stjörnunum í íslenska
landsliðinu í handknattleik,
skorar úr hraðaupphlaupi.
Bjarni vippar boltanum yfir
markvörðinn sem hefur kom-
ið út á móti Bjarna ■ Ljó*m. Rax.
yfirvegaður Páll var. Ekkert óða-
got og vitleysa eins og svo oft vill
verða.
Einar Þorvarðarson, markvörð-
ur landsliðsins, sýndi og sannaði
hvers hann er megnugur. Mark-
varsla hans var stórkostleg. Hvað
eftir annað varði hann er Þjóð-
verjar voru í opnum marktæki-
færum. Staðsetningar Einars voru
góðar og hann var rólegur og
yfirvegaður allan leikinn út í
gegn. Þetta var aðeins annar
landsleikur Einars þar sem hann
stóð í markinu allan leikinn.
Sannarlega óvænt og glæsileg
frammistaða.
En það voru fleiri en þessir þrír
kappar sem stóðu sig vel. Fyrirliði
landsliðsins, Ólafur H. Jónsson,
lék inn á allan leikinn og var eins
og brimbrjótur í vörninni, batt
hana vel saman og stjórnaði
varnaraðgerðum mjög vel. Sam-
spil leikmanna í vörninni var
sérlega gott. Mun betra en í fyrri
leiknum. En þrátt fyrir góðan leik