Morgunblaðið - 17.02.1981, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1981
Seiðin velgdu þeim
stóru undir uggum
- 1. deildarliðin héldu þó flest velli
Liverpool enn við sama heygarðshornið
SMÆLINGJARNIR stóðu vel fyrir sínu, en 5. umferð ensku
bikarkeppninnar í knattspyrnu fór fram á Iaugardaginn. En þeir
urðu þó aliir að lúta í lægra haldi áður en yfir lauk í flestum
tilvikum, þó ekki fyrr en eftir frækilega baráttu. Aðeins Exeter úr
3. deild heldur velli. Hin 7 liðin sem eftir standa eru öll úr 1. deild.
En Exeter hefur enn ekki tryggt sér sæti sitt i 8-liða úrslitunum,
liðið vann orrustu gegn Newcastle, striðið sjálft er eftir. En Exeter
er erfitt lið heim að sækja og hefur svo verið lengi vel. í aðeins
tveimur viðureignum áttust 1. deildarlið við innbyrðis ok
aukaleikur þarf að fara fram i glfmu tveggja þeirra, Southampton
og Everton. Fari Everton með sigur af hólmi má segja að liðið eigi
velgengni í keppninni skilið, áður hefur liðið slegið Arsenal og
Liverpool úr keppninni. En úrslit leikja urðu sem hér segir:
Bikarkeppnin:
Ipswich — Charlton 2—0
Middlesbr. — Barnsley 2—1
Newcastle — Exeter 1—1
Nott. Forest — Bristol City 2—1
Peterbrough — Manch. City 0—1
Southampton — Everton 0—0
Tottenham — Coventry 3—1
Wolves — Wrexham 3—1
1. deild:
Leeds — Stoke 1—3
Liverpool — Birmingham 2—2
Norwich — WBA 0—2
Sunderland — Leicester 1—0
Iletjuleg barátta
Charlton
Charlton stóð lengi vel í efsta
lið 1. deildar, Ipswich, og munaði
þar mestu, að miðvörður liðsins,
Les Berry, lék frábærlega vel og
hélt saman sterkum varnarvegg.
En hann varð fyrir því óláni að
nefbrotna undir lok fyrri hálf-
leiks og fóru þá veilur að sýna
sig hjá Charlton. Ipswich skor-
aði ekki fyrr en á 57. mínútu,
Eric Gates átti þá hörkuskot að
marki, en Nicki Johns varði
glæsilega. Hann hélt þó ekki
knettinum sem hrökk til John
Wark og hann skoraði auðvitað.
Leikmenn Charlton lögðu allt í
sóknina þear hér var komið sögu
og freistaði liðið þess að jafna og
kría þannig út aukaleik. En
1. DEILD
28 16 10 2 54 24 42
I Aston Vllla 29 18 6 5 50 25 42
I Llverpool 30 12 13 5 50 35 37
1 WBA 29 14 9 6 39 26 37
I South.pton 29 14 7 8 58 41 35
1 Arsenal 29 11 12 6 42 34 34
I Tottenham 29 12 9 8 55 48 33
I N. Forest 28 12 8 8 42 30 32
1 Manch. UtdM 8 15 6 37 27 31
| StokcCity 29 8 13 8 34 41 29
| Middlcsbr. 28 12 4 12 40 39 28
I M.City 29 10 8 11 41 41 28
I Kvprton 28 10 7 11 40 37 27
| Hirmintíh. 30 9 9 12 36 46 27
| Lccds Utd 30 10 7 13 25 41 27
I Sunderland30 10 6 14 39 38 26
Coventry 29 9 8 12 35 44 26
Wolves 29 9 8 12 30 39 26
BrÍKhton 29 8 4 17 33 51 20
Norwich 30 7 6 17 32 56 20
LeíceKter 30 8 2 20 21 47 18
Cr. Palace 29 5 5 19 36 59 15
2. DEILD
I Wcst Hara 30 19 7 4 56 23 45
| Notts C. 29 12 13 4 34 28 37
| Chelsea 30 13 9 8 44 29 35
I Blackhurn 29 12 10 7 32 24 34
1 DerbyC. 30 12 10 8 45 40 34
I Grirasby 30 11 11 8 33 26 33
I Swannea 29 11 10 8 43 34 32
| Luton 29 12 8 9 44 36 32
1 Shell.Wed.28 13 6 9 38 30 32
| Cambridfte 29 14 4 11 33 36 32
QPR 30 11 9 10 40 28 31
Orlent 30 11 8 11 40 38 30
Neweastle 28 10 9 9 21 34 29
Watlord 30 9 9 12 32 34 27
Bolton 30 10 6 14 48 48 26
Oidhant 29 8 9 12 25 33 25
Wrexham 28 8 8 12 23 30 21
Preaton 29 6 12 11 27 45 24
Cardlll 28 8 7 13 32 44 23
Shrewnbr. 30 5 12 13 25 34 22
1 Brlstol City29 5 12 12 1» 34 22
1 Bristol 8. 30 2 11 17 24 50 15
vörnin gleymdist og Paul Marin-
er refsaði grimmilega fyrir
gleymskuna rétt fyrir leikslok.
Markvörðurinn
bjargaði Boro
Middlesbrough hóf þegar stór-
sókn gegn Barnsley og Mark
Proctor skoraði fyrsta mark
leiksins áður en leikurinn gat
talist gamall. Nánar tiltekið
skoraði hann á 10. mínútu.
Júgóslavinn Bosco Jankowic
bætti öðru marki við á 24.
mínútu. Þegar hér var komið
• Alan Shoulder ... mark hans
nægði Newcastle ekki.
sögu, höfðu bæði Bill Ashcroft
og Craig Johnstone átt stang-
arskot og í stuttu máli hafði
verið um algera einsfefnu og
yfirburði að ræða. En aðeins
fjórum mínútum eftir síðara
mark Boro, minnkaði Mike Lest-
er muninn með stórkostlegu
marki, þrumuskot af 25 metra
færi. Eftir það átti Boro í vök að
verjast, sérstaklega í síðari hálf-
leik, er Jim Platt í markinu fékk
nóg að gera.
Fellur Newcastle út?
Það gekk hvorki né rak hjá
leikmönnum Newcastle gegn 3.
deildar liði Exeter fyrr en að
Alan Shoulder kom inn á sem
varamaður í síðari hálfleik.
Hann skoraði fljótlega fyrir
Newcastle en Lee Roberts jafn-
aði fyrir Exeter á 84. fnínútu.
Voru úrslitin mjög sanngjörn og
fær Newcastle nú það erfiða
hlutverk að sækja Exeter heim,
en í síðustu umferð kom Leicest-
er, sá og tapaði!
Sigur Forest
á elleftu stundu
Forest sótti meira gegn Brist-
ol City, en 2. deildar liðið varðist
með kjafti og klóm. Gekk hvorki
né rak hjá framherjum Forest
og á 43. mínútu fengu
áhangendur liðsins síðan blaut-
an hanska í andlitið, er Kevin
Mabbutt skoraði fallegt mark
fyrir BC eftir snjallan undirbún-
ing Clive Whitehead. Leikmenn
Forest sóttu með vaxandi ör-
væntingu í síðari hálfleik og
sannarlega leit út fyir tap For-
est, er staðan var óbreytt á 83.
mínútu. En þá var Colin Walsh
felldur inn í vítateig Bristol og
John Robertson jafnaði úr vít-
inu. Og tveimur mínútum fyrir
leikslok skoraði Walsh síðan
sigurmarkið. Naumara gat það
varla verið.
Gátu sjálfum
sér um kennt
Leikmenn Peterbrough geta
sjálfum sér um kennt, er lið
þeirra var slegið út úr bikar-
keppninni af Manchester City. 4.
deildarliðið sótti látlaust framan
af leiknum og Robbie Cooke
klúðraði tvívegis gullnum
marktækifærum. Leikmenn City
áttu eftir að refsa fyrir það, er
iiðið færðist smám saman í
aukana. A 45. mínútu fékk lið
Peterbrough reiðarslagið, Paul
Power átti hörkuskot að marki
liðsins, knötturinn hrökk af
varnarmanni fyrir lappirnar á
Tommy Booth og hann afgreiddi
knöttinn í netið. Þetta reyndist
vera sigurmarkið, því City
heppnaðist að halda hreinu gegn
ákafri sókn Peterbrough í síðari
hálfleik.
• Tony Evans (í miðjunni) skoraði bæði mörk Birmingham gegn
Liverpool.
• David Cross, miðherji West Ham, fagnar einu af mörgum
mörkum sínum á þessu keppnistímabili.
„Bjallan44 bjargaði
Norman Bell bjargaði andliti
Wolverhamptonliðsins, er það
fékk Wrexham úr 2. deild í
heimsókn. Steve Fox skoraði
snemma leiks fyrir Wrexham og
það var ekki fyrr en seint í
leiknum, að Úlfarnir létu heyra í
sér gól. Norman Bell kom þá inn
á sem varamaður og skoraði
umsvifalaust tvívegis á fjórum
mínútum, nánar tiltekið á 69. og
73. mínútunni. Var mótstaða
Wrexham þar með brotin á bak
aftur og John Richards bætti
þriðja markinu við undir lokin.
Ekkert skorað í
Southampton
Flestir reiknuðu með að leikur
Southampton og Everton myndi
vera stórskemmtileg knatt-
spyrnusýning. Því fór víðs fjarri.
Þess í stað var þetta hörkuleik-
ur, þar sem menn máttu hafa sig
alla við að verja, fæturnar.
Spenna var mikil og þegar á
leikinn lið færðist sókn heima-
liðsins mjög í aukana. Kom þá til
kasta Jim McDonagh markvarð-
ar Everton, sem varði tvivegis
snilldarlega, í annað skiptið skot
Charlie George og hitt skiptið
hörkuskalla frá Dave Watson.
Þá varði pilturinn einnig meist-
aralega aukaspyrnu frá Malcolm
Waldron.
Létt hjá Tottenham
Tottenham lék mjög vel gegn
unglingaliðinu frá Coventry og
náði liðið tveggja marka forystu
áður en að gestirnir rumskuðu
og fóru að svara fyrir sig.
Osvaldo Ardiles skoraði fyrsta
markið á 16. mínútu og náði þá
lélegri sendingu aftur til mark-
varðar og skoraði auðveldlega.
Steve Archibald bætti öðru
marki við á 33. mínútu. 23. mark
hans á þessu keppnistímabili.
Rétt fyrir leikhlé tókst Tom
English að minnka muninn, en
lokaorðið átti bakvörðurinn
Chris Houghton, er hann skoraði
þriðja mark Tottenham eftir
góðan undirbúning Glenn Hod-
dle.
Fallnir meistarar
Það er ekki heil brú í leik
Liverpool þessar vikurnar og á
laugardaginn lék liðið enn einn
leikinn á plani meðalmennsk-
unnar. Reyndar lék Liverpool
ágætlega fyrsta hálftímann og
náði þá tveggja marka forystu.
Dave Johnson skoraði fyrst á 25.
mínútu og Phil Neal bætti öðru
marki við átta mínútum síðar.
En nokkru síðar varð Terry
McDermott að hverfa af leikvelli
vegna meiðsla og hvarf þá allur
glansinn af Liverpool með kapp-
anum. Tony Evans skaliaði í net
Liverpool á 45. mínútu og undir
lok leiksins bætti hann um betur
og jafnaði leikinn með öðru
skallamarki.
Víðar í 1. deild
Norwich sá af dýrmætum stig-
um á laugardaginn, er WBA kom
í heimsókn. Norwich, sem lék án
Justin Fashanu og Phil Hoadley,
átti aldrei möguleika, en mörk
WBA skoruðu Cirel Regis og
Garry Owen.
Sunderland vann dýrmætan
sigur gegn Leicester og lyfti liðið
sér þar með af mesta hættu-
svæðinu í deildinni. Stan Cumm-
ins skoraði sigurmark Sunder-
land snemma í leiknum.
Lee Chapman, miðherji Stoke,
var heldur betur í sviðsljósinu
um helgina, en hann skoraði öll
mörk Stoke í 3—1 sigri liðsins
gegn Leeds. Leeds nægði ekki að
ná forystunni í leiknum, en
Brian Flynn skoraði fyrsta mark
leiksins á 14. mínútu.
2. deild:
Blackburn 1 (Brotherstone)
— Derby 0
Bristol Rov. 2 (Randall 2)
— Bolton 1 (Gowling)
Cambridge 1 (Reilly) — Preston
0
Grimsby 2 (Waters 2 víti)
— Orient 0
QPR 1 (Howe) — Notts County
1 (McCulloch)
Sheffield Wed. 3 (Curran 2,
McCulloch) — Oldham 0
Watford 1 (Bolton) — Shrews-
bury 0
West Ham 4 (Brooking 2, Cross,
Devonshire) — Chelsea 0