Morgunblaðið - 17.02.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1981
29
Söguleg fískverðsákvörðun á laugardag:
Stjórnin fellst loks á
málamiðlun seljenda
SÖGULEGRI fiskverðsákvörðun
lauk á lauKardagskvöldið með
því að myndaður var meirihluti
oddamanns yfirnefndar Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins með
fulltrúum seljenda og var al-
mennt fiskverð hækkað frá og
með 1. janúar siðastliðinn um
18% og siðan hækkar verðið hinn
1. marz um 6%. Gildir verðið til 1.
júni næstkomandi. Áður en þessi
meirihluti var myndaður i yfir-
ncfndinni, hafði tekizt að fá
stuðning við þessa meirihluta-
myndun i þingflokkum Fram-
sóknarf lokksins og Alþýðu-
bandalagsins. Sjálfstæðismenn-
irnir, sem aðild eiga að ríkis-
stjórninni munu siðastir hafa
fallizt á þessa fiskverðshækkun.
Hagsmunaaðilar áttu fund með
Gunnari Thoroddsen forsætisráð-
herra og Steingrími Hermanns-
syni sjávarútvegssráðherra um
hádegisbil á laugardag. Þar ræddi
forsætisráðherra um það, hvort
unnt yrði að finna málamiðlun í
þessari erfiðu fiskverðsákvörðun
og nefndu þá seljendafulltrúar
18% og 6% 1. marz. Við það mun
brúnin hafa þyngzt allverulega á
ráðherranum og ræddi hann m.a.
um að möguleiki væri á að odda-
maður ákveddi einn fiskverðs-
hækkunina. Samkvæmd heimild-
um Morgunblaðsins lýsti Ólafur
Davíðsson, forstjóri Þjóðhags-
stæröarflokkum og veröhlutföllum milli einstakra
sem ákveÖnar voru
var vísaÖ til yfirnefndar.
yfirlýsing ríkisstjórnarinnar þess efnis aÖ hún muni beita
sér fyrir ráöstöfunum til þess aö frystideild Veröjöfnunarsjóös
staÖiÖ viÖ skuldbindingu um viömiöunarverö,
fiskiönaöarins
er sé 5 % yfir núverandi markaösverÖi.
VerÖiÖ var ákveÖiÖ af oddamanni nefndarinnar, ölafi
DavíÖssyni og fulltrúum fiskseljenda, þeim Ingólfi Ingélfssyni
og Kristjáni Ragnarssyni, gegn atkvæÖum fulltrúa fiskkaupenda,
Eyjólfs Isfelds Eyjólfssonar og FriÖriks Pálssonar.
Reykjavaýk, 14. febrúar 1981
Verölagsraösjávarútvegsins
Matthías Bjarnason:
Hækkunin síst of mikil fyrir
sjómenn og útgerðarmenn
- en stjórnvaldsákvarðanir verða að
koma í veg fyrir samdrátt í fískverkuninni
„Ég tel að óeðlilega lengi haíi
drcgist að ákveða fiskverð og þar
mcð verið tafið fyrir samningum,
en með því verði sem ákveðið
hefur verið er ekki gengið lengra
en óg tel sjómenn og útgerðar-
menn eiga kröfu til,“ sagði Matt-
hias Bjarnason alþingismaður og
fyrrverandi sjávarútvegsráð-
herra í samtali við Morgunblaðið
i gær er hann var spurður álits á
nýákveðnu fiskverði.
Matthías sagði, að fiskverðið
væri alls ekki óeðlilega hátt miðað
við launabreytingar í landinu, í
október hefðu flestir launþegar
fengið 10 til 11% kauphækkun, og
síðan hefði komið 9,4% verðbætur
á laun hinn 1. desember. Samtals
væri þar því um að ræða um 21%
launahækkun, og væru sjómenn
því nokkuð undir meðaltalshækk-
uninni, en þeir hækki síðan 1. mars
eins og aðrir launþegar.
„Staða útgerðar, bæði togara og
báta án loðnu er mjög slæm,“ sagði
Matthías ennfremur, „og raun-
verulega er þessi fiskverðshækkun
í það lægsta fyrir útgerðina. Allir
vita um afkomu loðnuflotans, en
þar er verðákvörðun ekki komin
ennþá. Hvað varðar olíugjaldið er
það hins vegar að segja, að stjórn-
völd hafa lofað að það verði hið
sama, en sjávarútvegsráðherra
hefur marglýst því yfir að hann
telji þetta fyrirkomulag á olíu-
gjaldinu ótækt og vitlaust og
veldur því vonbrigðum að ekki
skuli nein breyting vera fyrirhug-
uð þar á, en svo virðist ekki vera.
En hvað varðar málið í heild er
mjög óeðlilegt að ekki skulu hafa
verið haft meira sarpráð við þá
aðila er málið snerti, en þótt málið
hafi tekið svo langan tíma, hefur
ríkisstjórnin frekar spillt fyrir en
hitt og tafið fyrir lausn. Það var
ekki fyrr en séð var að allur flotinn
myndi sigla til hafnar og langvinnt
og illvígt verkfall virtist í uppsigl-
ingu, að ríkisstjórnin lét undan, og
fiskverðshækkunin færi ekki fram
úr samtals 21,5%. Ætlunin var að
taka ákvörðun með fiskkaupend-
um, á móti atkvæðum fiskseljenda,
en slík ákvörðun hefði leitt til
ófriðar í þjóðfélaginu og stofnað til
stórfellds atvinnuleysis vegna taf-
arlausrar stöðvunar atvinnufyrir-
tækjanna.
Þegar á heildina er litið, tel ég
sjómenn og útgerðarmenn hafa
sýnt mjög mikla sanngirni í sínum
kröfum, og að þeir hafi gengið
óvenjulangt til að ná samkomu-
lagi.
Það hefur enn ekkert verið sagt
um þessi mál á Alþingi, annað en
það að frumvörp verða þar lögð
fram í kjölfar þessa samkomulags.
En eftir því sem ég hef heyrt á að
fara að hrófla við útflutnings-
gjaldinu. Vil ég fyrir mitt leyti
segja að ég er alfarið á móti því að
færa á milli greina. Ein fram-
leiðslugrein skarar nú fram úr,
skreiðarverkunin. Hver grein á
sína sérstöku deild innan verðjöfn-
unarsjóðs sjávarútvegsins og vit-
askuld á skreiðin að greiða þangað
meira, til að geta tekið við áföllum
er þau verða. En að færa þarna á
milli deilda er hreint og beint óráð
að gera og raskar algjörlega þeim
tilgangi er verðjöfnunarsjóðurinn
á að þjóna.
Að lokum um fiskvinnsluna. Því
er ekki að leyna, að fiskvinnslan,
og þá sérstaklega frystingin,
stendur einkar illa undir því að
taka þessa fiskverðshækkun á sig
nema með sérstökum stjórnvalds-
ákvörðunum og aðgerðum. Ég vil
ekki tala út í þeim efnum, fyrr en
séð verður hvað þar verður gert,
hvað stjórnvöld ætla að gera, til að
koma í veg fyrir vaxandi samdrátt
í fiskvinnslu," sagði Matthías
Bjarnason að lokum.
stofnunar, því þá yfir á fundinum,
að hann stæði ekki að slíkri
aðgerð. Er menn fóru af fundi
ráðherranna, var rætt um nýjan
fiskverðsfund á mánudag.
Skömmu síðar mun sjávarút-
vegsráðherra, Steingrímur Her-
mannsson hafa kallað saman
þingflokksfund í Framsóknar-
flokknum, þar sem hann fékk
samþykkt 18% + 6% 1. marz og
um svipað leyti hóf Ólafur Ragnar
Grímsson hringingar í þingmenn
Alþýðubandalagsins og um síma
tókst honum að fá þingflokkinn til
þess að samþykkja 18 + 6%. Voru
menn svo í símum fram eftir degi
og klukkan 17,30 var boðaður
fundur í yfirnefnd og var gengið
frá fiskverðsákvörðun á skömm-
um tíma.
Þegar hagsmunaaðilar ræddu
þessi mál, hafði alltaf verið rætt
um að viðmiðunarverð Verðjöfn-
unarsjóðs sjávarútvegsins yrðu
ákveðin 6% yfir markaðsverði, en
þegar þessi meirihluti hafði verið
myndaður, komu boð um að við-
miðunarverðin yrði aðeins 5% yfir
markaðsverði. Kom þetta mjög
flatt upp á alla, sem að málinu
höfðu staðið. Hins vegar hefur nú
hafizt mjög hratt gengissig, sem
hefur áhrif á þessi mál, þar sem
viðmiðunarverðin eru bundin í
dollurum. Hefur því staða íisk-
vinnslunnar styrkzt mjög við
þetta hraða gengisfall, sem hafið
er.
Eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu yrðu þeir Stein-
grímur Hermannsson og Svavar
Gestsson undir í ríkisstjórninni á
föstudagsmorgun, er þeir einir
vildu samþykkja 19% fiskverðs-
hækkun að viðbættri 5,5% hækk-
un 1. marz. Hinir átta ráðherrarn-
ir vildu mynda meirihluta með
kaupendum 16% + 5% 1. marz. Á
þeim ríkisstjórnarfundi lét
Steingrímur Hermannsson bóka
að eina raunhæfa lausnin á fisk-
verðsvandanum með tilliti til
samningamála sjómanna, væri
19% + 5,5% 1. marz. Fiskverð
hefur aldrei fyrr verið svo seint á
ferðinni.
Kristján Ragnarsson:
Þröng rekstrarskil-
yrði útgerðarinnar
ÚTGERÐINNI eru ætluð þröng
rekstrarskilyrði með þessu fisk-
verði, en miðað við aðstæður hef
ég sætt mig við þessa ákvörðun
fiskverðs, sagði Kristján Ragn-
arsson, formaður LÍÚ og annar
fulltrúi seljenda i yfirnefnd verð-
lagsráðsins i gær. — Forsenda
fyrir þessu fiskverði er að olíu-
gjaldið verði endurnýjað 7,5%
eins og það var i lok siðasta árs
og ég vænti þess að frumvarp
þess efnis komi fram á Alþingi á
næstunni.
— Staðan er þannig, að meðal-
talið í rekstri útgerðarinnar er
nánast á núlli. Þá eru bátarnir
með 2—3% hagnað miðað við
tölur Þjóðhagsstofnunar, rekstur
minni togaranna í járnum, en
stóru togararnir með 7% halla.
Staða þeirra er sérstaklega erfið
og aukinn styrkur dollarans kann
að leiða til aukinnar olíuhækkun-
ar umfram það sem gert var ráð
fyrir við þessa ákvörðun fiskverðs.
Stóru togararnir eru með hærra
hlutfall af svartolíu en aðrir
togarar og nú hækkar svartolían
meira en annað, þannig að staða
þeirra versnar meira en annarra
vegna þessa, sagði Kristján Ragn-
arsson.
Kjartan Jóhannsson:
Ríkisstjórnin ótrúlega
ringluð og stefnulaus
„VIÐ þessa fiskverðsákvörðun
hefur átt sér stað misþyrming á
verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðar-
ins“ sagði Kjartan Jóhannsson
formaður Alþýðuflokksins og
fyrrum sjávarútvegsráðherra í
samtali við blaðamann Morgun-
hlaðsins i gær, er hann var
inntur eftir áliti hans á hinu
nýkomna fiskverði.
„Sjóðurinn á að vera til þess að
jafna sveiflur" sagi Kjartan
ennfremur, „en ekki skálkasjól til
að prenta peninga. Sú leið er í
rauninni farin, að gefa út inni-
stæðulausa ávísun á sjóðinn. Ein-
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson:
Staða frystingar gæti orðið viðun-
andi styrkist dollarinn enn meir
HALDI dollarinn áfram að
styrkjast, eins og sumir halda að
hann geri, gæti staða frystingar-
innar orðið viðunandi, sagði Eyj-
óifur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna og annar fuiltrúi kaupenda
i yfirnefnd verðlagsráðs sjávar-
útvegsins i samtali við Mbl. i
gær. — Eftir þetta fiskverð er
frystingin rekin með halla, en
mér sýnist að við gætum verið á
sléttu ef doliarinn kemst i 6,80,
sagði Eyjólfur.
Hann sagði, að vegna tilfærslna
í verði t.d. milli stærðarflokka,
gæðaflokka og kassafisks, kæmi
fiskverðshækkunin ekki jafnt
niður á vinnslugreinarnar. Hann
sagðist ætla að miðað við 1. marz
þýddi fiskverðshækkunin rösk-
lega 25% hækkun hráefnis fyrir
herzluna, rétt rúmlega 25% á
saltfisk, en á að gizka 23,5% fyrir
frystinguna. Áður hefði komið
fram, að samkvæmt áætlun
kostaði hvert stig til hækkunar
fiskverðs frystinguna 850 milljón-
ir gkróna, söltunina 380 milljónir
og herzluna 170 milljónir.
Fiskverðshækkunin þýðir því
samkvæmt þessu hráefnishækkun
sem nemur samtals 33,5 milljörð-
um gkróna miðað við 1. marz.
Fyrir frystinguna er þessi upp-
hæð tæplega 20 milljarðar, salt-
fiskverkunina 9,5 milljarðar og
4,2 fyrir skreiðarvinnsluna.
staklingar fá sekt fyrir að gefa út
innistæðulausar ávísanir, samt
gerir ríkisstjórnin það.
Mikið er talað um að greiðslu-
afgangur hjá ríkissjóði hamli
gegn verðbólgu. Slíkur hugsan-
legur afgangur hjá ríkissjóði verð-
ur lítils virði ef aðrir hlutir
kerfisins prenta peninga með
þssum hætti. Talsmenn ríkis-
stjórnarinnar hafa talað um að
þetta fé muni sjávarútrvegurinn
endurgreiða síðar. Það verður
auðvitað ekki skilið öðru vísi en
tilvísun á gengisfellingu seinna.
Þótt mönnum hafi nú létt við að fá
loksins fiskverðið, fylgja þessari
ákvörðun mjög dökkar hliðar.
Áhrifin á iðnaðinn í landinu
eiga einnig eftir að sýna sig, þegar
gengið er skráð ranglega of hátt,
líklega sem nemur 3 til 5%.
Kúvending ríkisstjórnarinnar í
þessum málum um helgina, úr
19% í 16% og í 18% segja
náttúrulega sína sögu um hvernig
á þessum málum hefur verið t
haldið. Fáum hefur líklega dottið í
hug að einum og hálfum mánuði
eftir að fiskverðið átti að liggja
fyrir væri ríkisstjórnin enn svo
ringluð og stefnulaus eins og þessi
uppákoma ber vitni um. Hvað þá
heldur að flokksformennirnir
Steingrímur Hermannsson og
Svavar Gestsson þyrftu að kalla
saman þingflokksfundi til að fá
meðráðherra sína úr eigin flokk-
um til að taka mark á sér í svona
máli“ sagði Kjartan að lokum.