Morgunblaðið - 17.02.1981, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1981
Páll V. Daníelsson:
Galeiðufjötrarnir
Grípið þjófinn! Og hæst hrópaði
strákurinn, sem hnuplað hafði. Er
það ekki eitthvað svipað með
verðbólguna? Stjórnvöld hrópa
þar hæst á öllum tímum. En á
nokkurt afl í þjóðfélaginu meiri
sök á verðbólgunni en einmitt
stjórnvöldin? Þau setja þjóðfé-
la>{ið meira og minna á skjön. Þau
eru að basla við að stjórna eftir
svo flóknum leiðum að fólk á þess
engan kost að fylgjast með. Og
járntjald myndast á milli gervi-
þjóðfélags stjórnvalda og þess
þjóðfélags, sem fólk almennt lifir
og hrærist í. Og að láta sér detta í
hug að segja fólki hvað sé sann-
leikur í efnahagsmálum, þegar
það getur hvorki þreifað á né að sá
sannleikur sé í samræmi við eigin
lífsafkomu þess er nánast út í
hött. Efnahagsráðstafanir, til þess
að ráða niðurlögum verðbólgu og
ekki leggja byrðar á fólk almennt
hafa ekki verið fundnar upp enn-
þá. Þær geta eigi að síður átt rétt
á sér, boði þær betri tíð. En til
þess að svo geti orðið þarf að nýta
orku, þekkingu og hugkvæmni
einstaklingsins, þess vegna þarf
að auka svigrúm hans með því að
hann geti haldið og ráðstafað
sjálfsaflafé sinu i auknum mæli.
Vantraust á fólkið
Hin sígildu efnahagsráð stjórn-
valda eru þau, að draga völdin æ
meira til sín og vantreysta hinum
almenna borgara að sama skapi.
Fé hans er tekið í sköttum í
vaxandi mæli svo að umráðafé
hans verður stöðugt minna. Og
ekki er nóg með það, heldur er
beitt öðrum aðferðum til þess að
hefta svigrúm einstaklingsins og
ein sú örlagaríkasta er nú í
undirbúningi en það er stað-
greiðsla skatta, sem virka mun
sem helfjötrar, einkum gagnvart
launafólki.
Bundið á klafa
Þegar stjórnvöldin hafa svo náð
bróðurpartinum af launatekjum
fólks með auknum sköttum og
tekist að binda það á klafa eftir
öðrum leiðum, þá byrjar skömmt-
unin. Og þannig er búið að fara
með efnahagslega möguleika fólks
að skömmtun félagsmálapakka er
að verða mörgum nauðsyn til þess
að geta lifað. En þá er fólk um leið
orðið háð valdhöfunum. Það verð-
ur að fara að lifa eftir þeim
reglugerðum, sem skammtað er
eftir.
Jafnvel er það beitt fjár-
hagslegum þvingunum til að
senda frá sér ómálga börn í
umónnun annarra. Frelsið hefur
verið skert og fólk getur ekki
lengur tekið virkan þátt í því að
byggja upp og treysta frjálst
þjóðfélag. Það er fjötrað við sitt
sæti 'með galeiðuhlekkjum félags-
málapakkanna.
Skrifstofa Norrænu
Ráðherranefndarinnar
Á skrifstofu Norrænu Ráöherranefndarinnar á aö ráöa í
eftirfarandi stööur:
1. Ráðunaut, sem hefji störf sem fyrst.
2. Deildarstjóra, sem tekur viö stöóunni 1. maí
næstkomandi.
3. Húsvörð, sem hefur störf þann 1. ágúst næstkom-
andi.
4. Framkvæmdastjóra, sem hefur störf þann 1.
ágúst næstkomandl.
5. Ráðunaut, sem hefur störf 1. ágúst næstkomandi.
Norræna Ráöherranefndin er samstarfsvettvangur
norrænu ríkisstjórnanna og var sett á stofn 1971.
Samstarfiö tekur til flestra sviöa þjóófélagsins, m.a.
lagasetninga, iónaóar- og orkumála, náttúruverndar,
vinnumarkaösmála og vinnuumhverfis, félagsmála-
stefnu, sveitarstjórnarmála, neytendamála, flutninga
og hjálparstarfs Noröurlanda vió Þróunarlöndin.
Skrifstofa Ráöherranefndarinnar, sem er í Osló, sér
um daglega framkvæmdastjórn samstarfs sem fellur
undir starfsvettvang Ráðherranefndarinnar og ann-
ast skýrslugeró, undirbúning og framkvæmd Ráö-
herranefndarinnar og stofnana þeirra sem undir hana
heyra.
Ráöið er í allar stööurnar meö samningi til 3—4 ára
meö hugsanlegum möguleika á framlengingu. Ríkis-
starfsmenn eiga rétt á allt aö 4 ára leyfi frá störfum.
Skrifstofan býöur góö laun og starfsskilyröi á
skrifstofum sem eru miösvæöis í Osló.
i stöóum 1, 2, 4 og 5 þurfa menn aö hafa góöa
hæfileika til aó tjá sig greinilega í ræöu og riti á einu
af starfsmálum skrifstofunnar, dönsku, norsku eöa
sænsku. Störfunum fylgja nokkur feröalög á Noröur-
löndum.
Starf 1 — ráðunautur
(samræmingarmél)
Hlutaóeigandi á í samvinnu við annan ráðunaut aó
fjalla um eftirfarandi:
Ritarastörf fyrir Norræna samstarfsráöherra og
embættismannanefndir þeirra, almenna meöferö
mála, samband viö stofnanir, deildir Noröurlanda-
ráös og aöilja vinnumarkaðarins, Norræna samvinnu
um aöstoð viö Þróunarlöndin og einnig heyra
lögfræöileg málefni undir þetta starfssvið.
Starfió hentar lögfræöingi meö víótæk áhugamál og
reynslu af opinberri stjórnsýslu. Lögó veröur áhersla
á aö hlutaóeigandi hafi góöa stjórnunarhæfileika og
geti unniö sjálfstætt.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefur avdelingssjef Sverre Frogn-
er, konsulent Jette Kiersgaard eöa administrasjons-
sjef Per M. Lien.
Starf 2 — deildarstjóri
Deildarstjóri á aö stjórna fagdeild 2 sem ber ábyrgö
á samhæfingu og skipulagi á norrænu samstarfi á
sviöi félagsmála, umhverfisverndar, vinnumarkaös-
mála, vinnuumhverfis, jafnréttis- og neytendamála.
Deildarstjórinn á aö hafa langa reynslu af stjórnsýslu-
störfum, þar af nokkur ár í stjórnunarstöóu. Reynsla
af meiriháttar opinberri stjórnsýslu er mikill kostur.
Góöir samstarfs- og sambandshæfileikar eru nauö-
synlegir. Reynsla af norrænu eöa ööru alþjóölegu
samstarfi er til bóta.
Ef jafnhæfir menn sækja um starfiö veröur Finni fyrir
valinu. Ástæöan er sú, aö óskaó er eftir því, aó
stjórnunarstööur skiptist milli Noröurlandanna.
Umsóknarfrestur er til 1. mars næstkomandi. Nánari
upplýsingar gefur avdelingssjef Osmo Kaipainen eöa
administrasjonssjef Per M. Lien.
Staða 3 — húsvörður
Störfin eru margvísleg, en aöalstarfiö er þó póstaf-
greiösla og dreifing (innanhúss og utan). Einnig aö
sjá um fjölritun og prentun (offset) og húsvaröarstörf.
Æskilegt er, aö umsækjandi hafi reynslu af einhverju
því sem hér hefur veriö nefnt. Hlutaóeigandi veröur
aö vera snar í snúningum, nákvæmur, starfsfús og
samvinnuþýður. Á vissum tímum getur þurft aö vinna
fram yfir venjulegan vinnutíma. Einnig er æskilegt, aó
hlutaóeigandi gæti haft bifreiö til umráöa. Akstur
veróur endurgreiddur í samræmi viö ríkistaxta.
Umsóknarfrestur er til 15. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefa sekretær Solveig Johansson
eða administrasjonssjef Per M. Lien.
Staða 4 — framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri ber ábyrgó á stjórnun skrifstof-
unnar. Undir starfiö fellur starfsmannastjórn, stjórn-
unarfjárhagsáætlun, launa- og skattamál og inn-
kaupaþjónusta. Auk þess er hlutaöeigandi ábyrgur
fyrir málsmeöferö launa- og starfsmannamálefna.
Framkvæmdastjórinn á aö hafa langa reynslu af
stjórnunarstörfum, þar af nokkra sem yfirboöari.
Reynsla af meiriháttar opinberri stjórnsýslu er mikill
kostur. Góöir samstarfs- og sambandshæfileikar eru
nauösynlegir.
Ef jafnhæfir menn sækja um, veröur Norömaöur
ráöinn til starfa. Ástæðan er sú, aó starfiö felur í sér
margháttuö sambönd viö norsk yfirvöld, þar sem
málefni er varöa starfsmannahald og stjórnun þess
fylgja aö miklu leyti norskum ákvæóum.
Umsóknarfrestur er til 15. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefur avdelingssjef Sverre Frogn-
er eöa administrasjonssjef Per M. Lien.
Staða5 — ráöunautur
(vinnuumhverfismál)
Ráöunauturinn mun aðallega starfa aö vinnuum-
hverfismálum, en hlutaóeigandi verður einnig aö geta
tekiö aö sér verkefni á öðrum fagsviðum.
Starf ráöunautarins er m.a. að annast ritarastörf fyrir
Ráöherranefndina og embættismannanefndir hennar
á þessu sviöi, fylgjast með ýmsum stofnunum,
áætlunum og starfshópum/nefndum innan síns
verkahrings og vera ábyrgur fyrir framkvæmd
áætlana og aö þeim sé fylgt eftir.
Umsækjendur eiga aö hafa hæfilega menntun fyrir
starfið og reynslu af opinberri stjórnsýslu. Hlutaöeig-
andi á aö hafa góöa stjórnunarhæfileika, samstarfs-
hæfni og verður að geta unnið sjálfstætt.
Umsóknarfrestur er til 15. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefur avdelingssjef Osmo Kaipa-
inen, konsulent Terje Syndby eöa administrasjons-
sjef Per M. Lien.
Upplýsingar um allar stööurnar eru veittar í síma
(02) 11 10 52
Skriflegar umsóknir sendist:
Nordisk Ministerráds generalsekretær
Postboks 6753, St. Olavs Plass
OSLO 1.
Páll V. Danielsson
Þurfum við að
búa við fátækt?
Við tölum oft um að við höfum
það gott. En hvers vegna þá allt
það fólk, sem býr við lök kjör og
litla möguleika til úrbóta? Að vísu
eigum við við böl að búa vegna
margs konar ógæfu eins og áfeng-
isneyslu og sjúkdóma. En fleira
kemur til. Stjórnvöld eru búin að
missa trúna á það, að fólk geti
lifað hér á landi mannsæmandi
lífi þótt fullvinnandi sé. Ofur-
kappið, sem lagt er á svokallaðan
félagslegan grundvöll mála sýnir
það vel. T.d. er ekki ætlast til þess
að fólk hafi þau laun eða það
umráðafé, að það geti eignast þak
yfir höfuðið öðruvísi en að opinber
aðstoð komi til. Og þessi opinbera
aðstoð kostar það að réttindalega
verður fólk að búa við önnur kjör,
hvað snertir umráð og ráðstöfun á
íbúð sinni. Stjórnvöldin valda
þannig lakari lífskjörum og hafa
svo ekki önnur ráð til að reyna að
bæta úr en nýja skattheimtu, nýja
félagsmálapakka og aukið ófrelsi
þar til að málum er svo komið að
fáir, nema spillt yfirstétt valdhafa
geta séð fótum sínum forráð.
Fólkið ráði
fjármagni sínu
Ég hefi ótakmarkaða trú á
fólkinu sjálfu. Og það á 'sinn
lýðræðislega rétt til ráða sér og
málum í umhverfi sínu innan
þeirra marka, sem almenn löggjöf
setur. Mér finnst að það hljóti að
sjá betur, hvernig það getur leyst
viðfangsefni sín, heldur en opin-
bert skrifstofubákn. Þess vegna
hefi ég lagt til að fólk fengi að
halda sjálfsaflafé sínu. Það getur
tryggt samhjálp sína með eigin
gegnumstreymislifeyrissjóði. Og
þá getur fólkið orðið virkt og
frjálst í þjóðfélaginu. Verðbólgan
kemur til með að hjaðna, þegar
mesti vindurinn fer úr opinbera
bákninu. Þá gæti fallið niður svo
og svo mikið af rangri verðskrán-
ingu í landinu. Og þegar fólkið
þekkir kostnaðinn aðlagar það sig
þeim hlutum og vinnur sjálft gegn
verðbólgunni. Fólkið sjálft er
þannig eina aflið, sem varanlega
getur haft hemil á verðbólgunni.
Litlir hlutir, sem auðleystir eru á
staðnum geta valdið stórum og
dýrum mistökum, þegar búið er að
safna þeim á einn stað til ákvörð-
unar miðstýringarvalds.
MORGUNBLAÐIÐMORGI
MORGUNBLAÐIÐMOR
MORGUf^LAÐIÐMQS5:
MORGU
morg/-^
MORC/
Blað-
burðar-
fólk
óskast
Austurbær
Samtún
Miðtún
Leifsgata
Ármúli
Síöumúli
Vesturbær
Vesturgata,
Tjarnargata,
Suöurgata
MO/^
MC/ %n
MORGUh
MORGUNBlk—
MORGUNBLAbtv'^//5^^Br
MORGUNBLAÐIÐbfcv^/NBLAÐIÐMt
MORGUNBLAÐIÐMORGUNBLAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ
Hringiö í síma
35408
LAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ
^MORGUNBLAÐIÐ
y/- —^&RGUNBLAÐIÐ
INBLAÐIÐ
IBLAÐIÐ
JBLAÐIÐ
LISLAÐIÐ
-\.AÐIÐ
IAÐIO
\\ÐIÐ
\ÐIÐ
ÍÖLAÐIÐ
yLAÐIÐ
AÐIÐ
)IÐ
/AÐIÐ
)IÐ
/ÐIÐ
ÍÐIÐ
Lðið
Lðið
-AÐIÐ
\D\D
\AÐIÐ
VÐIÐ
\Ð|D
^TumOIÐ
f-BLADIO
^LAÐIÐ
ftBLAÐIÐ
/ONBLAÐIÐ
/iUNBLAÐIÐ
/ÍGUNBLAÐIÐ
IGUNBLAÐIÐ
Nýlendugata,
Breytt
símanúmer
á afgreiöslu
Morgunblaðsins