Morgunblaðið - 17.02.1981, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1981
45
í l h.|-l
f * • !! !
’dméxmimévá
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
i\íf \/jsurstKmUhJ'u ir
Það eru tak-
mörk fyrir öllu
standa undir hinum gífurlegu
ríkisútgjöldum virðist, þótt ótrú-
legt sé, af hinu illa. Enda er
stórvirkustu útflutningsfyrirtækj-
um okkar lokað með sýnilegri
ánægju.
Svo er nú komið að meir en
helmingur launatekna þjóðarinn-
ar hverfur með ýmsu móti í hina
botnlausu ríkishít, og þó vantar
mikið á að það dugi. Sífellt er
verið að finna upp nýja skatt-
stofna, sannkallað skattarán, en
þó vantar alltaf stórfé í hítina, og
því verður að knékrjúpa fyrir
erlendu bankavaldi biðjandi um
stöðugt vaxandi lánsfé. Af bens-
ínnotkun landsmanna eru teknir
40 milljarðar gkr. í ríkissjóð og
líklega annað eins af olíu.
Meðan þeir hafa öll
völd í sinni hendi
Núverandi ríkisstjórn hefir al-
gerlega svikist um að iðn- og
orkuvæða þjóðina, og þar með að
gera hana matvinnung, óháða
erlendu auðvaldi, en það er lág-
marksundirstaða þess að þjóðin
geti lifað við „mannsæmandi “
kjör, bæði efnalega og andlega.
Sextíu prósent þjóðartekna Pól-
verja fara nú til þess að standa
undir afborgunum erlendra
skulda. Hér er talan nú 20 prósent
og fer eflaust ört vaxandi, meðan
trúbræður austantjaldsvaldhafa
hafa hér öll völd í sinni hendi. Mín
einlæg ósk og von er sú að
helstefna skrifstofubáknsins megi
í báðum umgetnum löndum víkja
fyrir heilbrigðri atvinnuuppbygg-
ingu, sem ein getur leyst þjóðirnar
af núverandi skuldaklafa.
Að lokum tilfæri ég hér pólskt
ljóð, þýtt af Stgr. Th., sem getur !
vel átt við um bæði Pólland og
ísland:
Gu«. þú nem vorri ættjrtrú skýldir áður.
Alvaldur Ifuð. sem vilt að hún sig reisi,
Lít þú í náð til lýðsins sem er hrjáður.
Lagður I fjrttra. jaínt í borg sem hreysi.
Guð heyr vor úp er grættir þig vér biðjum.
Gef 088 vort land ovr frelsa það úr viðjum.“
Megum við fá
meira að heyra?
Lesandi hringdi og kvaðst
vilja færa Baldri Hermanns-
syni þakkir fyrir athyglis-
verða grein í Morgunblaðinu á
laugardag, Litli Kínverjinn og
bokkinn. Eg ætla ekki að fara
að rekja efni greinar hans,
menn verða að lesa hana
sjálfir, en mig langar hins
vegar að fara fram á það við
Morgunblaðið, að það geri
nánari grein fyrir bók, sem
Baldur nefnir í grein sinni,
„Kommunikationskritisk an-
alyse af 22-radioavisen“, eftir
Frands Mortensen, þar sem
hann kveður rakin og sund-
urgreind dæmi um hlutleysis-
brot í fréttum íslenska út-
varpsins. Megum við fá meira
að heyra?
María skrifar:
„Velvakandi!
„Með lögum skal land
byggja." Hljómar þetta ekki
fallega í eyrum? Það hefur
mér ætíð fundist. Og svo
þegar ný króna kom um
áramótin, ja, þá var nú
gaman að lifa. Ég tala nú
ekki um, þegar hæstvirt rík-
isstjórn okkar tilkynnti há-
tíðlega með pomp og prakt,
að nú yrði gott að búa á
íslandi, því að héðan í frá
væri bannað að hækka kaup
eða vöruverð, „nema með
sérstöku leyfi ríkisstjórnar-
innar".
Þá mundi ég hlæja
En viti menn. Hvað gerist
svo? Blekið er varla þornað á
stóru orðunum, þegar byrjað
er að brjúta þessi lög, og
allra fyrst í þágu hinna hæst
launuðu, ráðherra, þing-
manna, háskólamanna og
opinberra starfmanna ann-
arra. Ég spyr: Hvað er að
gerast í þessu dásamlega
landi? Er nokkur furða, þótt
„litli maðurinn", sá sem puð-
ar í sveita síns andlitis til
þess að hafa í sig og á, vilji
líka fá dálítið meira í um-
slagið sitt á föstudögum? Og
ekki stendur á því hjá háu
herrunum að nefna þessar
launahækkanir sínar alls
konar nöfnum. Ég segi alveg
eins og er: Ef þetta væri ekki
grátlegt, þá mundi ég hlæja,
hlæja hástöfum að aðförum
þeirra. Þeir ganga jafnvel
svo langt að þeir hækka
hálaunin sín marga mánuði
aftur í tímann. Eða hvað
segið þið um þetta, gott fólk?
Ekki bara sumir
En það virðist gilda einu,
hver hæst trónar, hvort hann
er til vinstri, hægri eða þar á
milli. Allir virðast hugsa um
það sama, budduna sína. Ég
er mest hissa á því, hvað
þessir karlar eru kjarkaðir
að koma fram fyrir almenn-
ing, sem þeir gera án þess
svo mikið sem roðna eða
sýna á annan hátt að þeir
skammist sín. Ég hef ekkert
á móti því að ráðherrarnir
okkar og þingmenn hafi við-
unanleg laun, en það eru
takmörk fyrir öllu, og því
verða allir að hlíta, ekki bara
sumir.
Vita við hvað er átt
Einu langar mig til að
varpa hér fram svona í
leiðinni: Getur það verið, að
það fólk finnist hér á meðal
okkar, og þá á ég við vel
menntað fólk, sem veit ekki
hvað það er og hvaða skyldur
fylgja því að vera útnefndur
varaformaður? Ég veit að ég
þarf ekki að nefna nein nöfn
í þessu sambandi, allir sem
fylgjast með því sem er að
gerast í kringum okkur vita
við hvað er átt.
Hvað mundi þetta
sama fólk segja?
Þá er það eitt sem mér
liggur þungt á hjarta. Ég er
bóndakona á „Stór-Reykja-
víkursvæðinu", eins og það er
kallað. Með sömu þróun og
nú á sér stað, veit ég ekki
hverslu lengi ég verð það
héðan í frá. Mig langar til að
biðja einhvern um að upp-
lýsa mig um það, hvers vegna
fólk kennir börnum sínum
ekki að virða eigur annarra,
t.d. lóðir og landsvæði. Það
hefur það jafnvel fyrir börn-
um sínum að arka beint af
augum yfir annarra manna
land, einungis til þess að
stytta sér ofurlítið leið, án
þess að fá til þess leyfi, ryðst
yfir girðingar og hvað sem
fyrir verður og treður niður
tún. Hvað mundi þetta sama
fólk segja, ef ég kæmi og
arkaði yfir blómabeðin í
garðinum heima hjá því?
í Guðs friði."
Eigum hauk í horni þar
sem Bæjarleiðir eru
E.K. skrifar:
„Þess skal getið sem vel er
gert. Því langar mig, Velvak-
andi góður, að koma því á
framfæri með þinni hjálp,
hvað Bæjarleiða-menn sýndu
okkur vaktavinnufólki hér
inni í Langholti mikla til-
litssemi, þegar samgöngu-
kerfi borgarinnar var meira
og minna lamað á mánu-
dagsmorguninn í síðastlið-
inni viku.
Aðeins fáum mín-
útum of seint
Það var auðvitað engan bíl
að hafa þegar ég hringdi
snemma um morguninn, en
stöðvarstjórinn kvaðst
mundu gera það sem í sínu
valdi stæði til þess að leysa
vandann. Svo sem 10—15
mín. síðar hringdi hann til
mín og bað mig um að
ferðbúast, það kæmi öflugur
ferðabíll að sækja mig innan
stundar, svo og fleira vakta-
vinnufólk. Það stóð líka
heima. Við vorum fjórar,
hver frá sínum vinnustaðn-
um, sem Bæjarleiða-menn
létu sækja og koma í áfanga-
stað og við munum hafa
mætt aðeins fáeinum mínút-
um of seint miðað við eðli-
legar aðstæður.
Svona þjónústu ber að
segja frá. Við teljum okkur
vissulega eiga hauk í horni,
þegar í harðbakkann slær,
þar sem Bæjarleiðir eru.“
Takið forskot
w
a
Sólariumlamparnir hjá okkur hjálpa ykkur að
fá fallegan hörundslit og slaka vel á fyrir
vorið — því þaö er á næsta leiti.
Hjá okkur kostar 10 tíma kúr aöeins kr.
250 og innfalið er: sápa, shampoo, body-
lotion og deodorant eftir Ijósaböðin.
Einnig bjóðum viö vaxmeöferð, hand-, fót-
og andlitsmeðferð hverskonar og úrval
snyrtivara.
Komið og reynið viðskiptin.
Helga Þóra Jónsdóttír,
fótaaógeróa- og
snyrtifrnóingur,
Dúfnahólum 4.
Sími 72226.
Frá
Portúgal
til Islands
MS. RISNES
lestar vörur til íslands frá Lissabon
16. MARS NK.
Allar vörusendingar
afgreiöir umboös-
maður okkar í
Lissabon:
Keller Maritima Lda.,
Praca D. Luis, 9-3°,
P.B. 2665 Lisbon 2,
PORTUGAL
Telex: 12817
Tel.: 669156-9
Hafóu samband
EIMSKIP
SÍMI 27100
*
Baldur Hermannsson