Morgunblaðið - 17.03.1981, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
63. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Yerkamenn aflýsa
verkfalli í Radom
Radom, 16. marz. AP.
VERKFALLI, sem hafði verið boðað á miðvikudaK i pólsku borjfinni
Radom, var aflýst í dag, þegar verklýðsleiðtoginn Lech Walesa hafði
sagt 15.000 manns, sem sofnuðust saman á iþróttaleikvangi, að leggja
ekki niður vinnu og viðræður við rikisstjórnina voru tilkynntar.
Jafnframt hófu um 50 bændur setuverkfaii i aðalstöðvum
sameinaða bvændaflokksins i Bydgoszcz til að leggja áherzlu á kröfur
um að völd nefnda. sem gegna því hlutverki að koma á samyrkjubú-
skap, verði skert og rikisstjórnin tilkynnti miklar hækkanir á verði á
áfengi í kjölfar landsherferðar gegn ofdrykkju. Verð á sterkum
drykkjum hækkar um 50%, á léttum vinum um 15% og á bjór um 10%.
Málgagn hersins segir jafnframt
að andófsmenn úr samtökunum Kor
standi í tengslum við vestur-þýzku
leyniþjónustuna. Tékkneskir verka-
lýðsleiðtogar hafa verið í heimsókn í
Póllandi og segjast vissir um að
Pólverjar geti leyst vandamál sín
sjálfir.
Walesa sagði á íþróttaleikvangin-
um, sem troðfylltist þrátt fyrir
nístandi kulda, að kvörtunum fólks-
ins í Radom hefði verið komið á
framfæri við forsætisráðherrann,
Wojciech Jaruzelski hershöfðingja,
og hann hefði samþykkt að reyna að
leysa vandamál þess. „Við höfum
forsætisráðherra, sem vill gera eitt-
hvað,“ sagði Walesa. „Við höfum
sanngjarna ríkisstjórn, en stjórnin
verður að fá næði til að leysa
vandamálin."
Radom-deild Samstöðu hafði boð-
að viðvörunarverkfall ef ríkisstjórn-
in samþykkti ekki að semja um 17
kröfur, m.a. um brottvikningu emb-
ættismanna, sem eru sakaðir um að
hafa bælt niður verkamannaóeirðir
fyrir fimm árum. Hreyfingin mun
nú bíða þess hvað fram kemur í
viðræðum við ríkisstjórnina í
Bylting í
Surinam
Paramaribo, Surinam, 16. marz. AP.
STJÓRNARHERINN í smáríkinu
Surinam i norðausturhluta Suður-
Ameriku kom i veg fyrir stjórnar-
byltingu i gærkvöldi. Einn maður
beið bana og annar særðist að þvi
er stjórn landsins tilkynnti I dag.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um var byltingartilraunin gerð í
héraðinu Saramacca, um 65 km
vestur af höfuðborginni. Mikil ólga
hefur ríkt í landinu síðan hópur
undirforingja og lágtsettra foringja
í hernum tók völdin í febrúar 1980 í
kjölfar deilu um tilraunir til að
stofna verkalýðsfélög í hernum.
Varsjá á morgun áður en verkfall-
inu verður endanlega aflýst.
Fyrr í dag skipaði flokksnefndin í
Radom Zdzislaw Kwiecinski eftir-
mann Janusz Prokopiak, sem áður
hafði boðizt til að segja af sér.
Verkamenn hafa krafizt brottvikn-
ingar Prokopiak, landstjórans Rom-
an Mackowski, sem einnig sagði af
sér og lögreglustjórans Stefan
Mozgawa. Fréttir starfsmanna
Samstöðu um að Mozgawa hafi
einnig sagt af sér hafa ekki fengizt
staðfestar.
Eftir fundinn ræddi Walesa við
verkalýðsleiðtoga í borginni og að
þeim viðræðum loknum tilkynnti
Samstöðu-foringinn Andrzej Sobi-
oeraj að verkfallinu hefði verið
Heræfingar
vekja ugg
WashinKton. lf>. marz. AP.
REAGAN-stjórnin skoraði í dag
á Sovétrikin að veita vestrænum
ríkjum upplýsingar fyrirfram
um fyrirhugaðar heræfingar 1
grennd við Pólland.
Rússum er skylt samkvæmt
samningum að tilkynna fyrir-
fram um æfingarnar ef 25.000
manna eða fjölmennara herlið
tekur þátt i þeim. Talsmaður
bandariska utanrikisráðuneyt-
isins sagði að ef minna herlið
tæki þátt i æfingunum mundu
upplýsingar um þær draga úr
spennu.
Bani Sadr transforseti leitar skjóls i skurði þegar frakar gera loftárás
á vigvöll sunnan við fylkishöfuðborgina Ahvaz nýlega. f gær flaug
ofursti úr iranska flughernum i flutningaflugvél til borgarinnar Van i
Austur-Tyrklandi og bað um hæli sem pólitiskur flóttamaður.
Ástandið I tran: sjá trétt á bls. 46.
aflýst, en þó ekki að fullu fyrr en í
Ijós kæmi hvað ríkisstjórnin hefði
fram að færa. Fimm manna nefnd
fer frá Radom til viðræðna við
Mieczyslaw Rakowski varaforsætis-
ráðherra, Stanislaw Ciosek verka-
lýðsráðherra og fleiri ráðamenn.
Walesa var fagnað gífurlega þeg-
ar hann kom til útifundarins og
einnig þegar hann hét því að
flokksritarinn, landstjórinn og lög-
reglustjórinn yrðu settir af. Hann
hvatti síðan til rósemi og stillingar
og sagði að koma yrði í veg fyrir
verkföll kolanámumanna. „Við er-
um illa á vegi staddir og megum
ekki láta verkföll útrýma okkur,“
sagði hann. Hann sagði að tilraunir
til að leysa deilur á ýmsum stöðum
hefðu kostað Samstöðu stórfé.
„Án Radom ... 1976 hefðu atburð-
irnir 1980 ekki gerzt. Án fórna
ykkar, án baráttu ykkar væri
ástandið öðru vísi ... “ sagði
Walesa. Mannfjöldinn greip fram í
fyrir honum hvað eftir annað með
fagnaðarhrópum.
Bylting f ór út um
þúf ur í Máritaníu
Dakar. Senegai, 16. marz. AP.
KYRRÐ er komin á i höfuðborg
eyðimerkurrikisins Máritaniu i
Vestur-Afriku, Nouakchott, þar
sem tveir útlægir ofurstar gerðu
blóðuga en árangurslausa bylt-
ingartilraun i dag samkvæmt út-
varpsfréttum frá landinu.
Máritanía sakaði Marokkó um að
standa að byltingartilrauninni í
hefndarskyni við þá ákvörðun Márit-
aníustjórnar að hætta þátttöku í
stríðinu í Vestur-Sahara.
Annar útlægi ofurstinn féll í árás
á forsetahöllina í Nouakchott, en
18% Vestur-Þjóðverja
sakna Hitlers-tímans
Bonn. 16. marz. AP.
ÁTJÁN af hundraði vestur-
þýzkra kjósenda telja Hitlers-
timann „gömlu. góðu dagana"
samkvæmt skoðanakönnun Sin-
us-stofnunarinnar i MUnchen,
sem timaritið Der Spiegel segir
frá i dag. beir telja að bjóðverj-
ar hafi „haft það miklu betra" á
Ilitlers-timanum.
Skoðanakönnunin vakti • svo
mikinn ugg í skrifstofu Helmut
Schmidts kanzlara, að henni hef-
ur verið haldið leyndri síðan hún
var gerð í fyrra. Talsmaður
ríkisstjórnarinnar staðfesti, að
skrifstofa kanzlarans hefði farið
þess á leit að könnunin yrði gerð
til að kanna útbreiðslu hægri-
skoðana í Vestur-býzkalandi.
Hann sagði, að Spiegel segði rétt
frá könnuninni.
Verulegur hluti Vestur-Þjóð-
verja styður margar grundvallar-
kenningar nazista samkvæmt
könnuninni, en þeir eru flestir
yfir fimmtugt. Alls aðhyllast
13% kjósenda hægriöfgaskoðan-
ir, eru sammála söguskoðun naz-
ista, hata útlendinga og lýðræði
og vilja standa vörð um þjóðina,
föðurlandið og fjölskylduna, segir
í frétt Spiegels. Næstum því
helmingur þessara hægriöfga-
manna, um sex af hundraði, er
hlynntur pólitískri valdbeitingu,
meðal annars gegn fólki.
Margir róttækir hægrimenn
eru frá þorpum með 2.000 til 5.000
íbúum, smábæjum og sveitahér-
uðum umhverfis stórborgir.
Flestir þeirra eru frá Bæjara-
landi og Hessen.
Þrjátíu og sjö af hundraði
hafna nazisma, hernaðarstefnu
og „foringjadýrkun", en eru
hlynntir aga og sterkri stjórn.
Könnunin sýndi að vaxandi
ofbeldishneigðar gætti hjá rót-
tækum hægrimönnum, sem
margir standa í tengslum við
hópa nýnazista í Bandaríkjunum
að sögn Spiegel. Nafnlausir hópar
auglýsa eftir framlögum til
glæpsamlegra aðgerða, m.a. und-
ir vígorðunum „Frelsi — burt
með hernámsliðið", „Burt með
stjórnmálaflokkana — dauði yfir
landráðamönnum“, þ.e. stjórn-
málamönnum, segir Spiegel.
Blaðið segir, að hjá mörgum
hægrimönnum gæti gremju í
garð Bandaríkjanna, sem eru
talin hafáneytt Vestur-Þjóðverja
til að segja skilið við hefðbundn-
ar dyggðir og snúa sér að menn-
ingu „kóka-kóla, heimsvalda-
stefnu, popptónlistar og eitur-
lyfjadýrkunar, diskó, Hollywood
og gallabuxna“.
hinn var handtekinn. Fleiri féllu, en
ekki er vitað hve margir.
Bardagar geisuðu við forsetahöll-
ina, umhverfis útvarpsstöðina og
víðar á götunum áður en byltingar-
tilraunin var bæld niður innan
tveggja klukkustunda. „Herlið okkar
ræður algerlega við ástandið,„ sagði
í stjórnartilkynningu, sem var út-
varpað.
Utgöngubann hefur verið fyrir-
skipað í höfuðborginni, flugvellinum
hefur verið lokað og öll umferð hefur
stöðvazt.
Diplómatar segja byltingartil-
raunina sýna, að ólga hafi aukizt í
Máritaníu síðan 18 ára stjórn Mokt-
ar Ould Daddah forseta var steypt
1978. Núverandi forseti er Mo-
hammed Khouna Ould Haidalla, sem
stjórnar landinu með aðstoð þjóðar-
bjargræðisnefndar herforingja.
Utlægu ofurstarnir, sem stóðu
fyrir byltingunni, voru báðir búsett-
ir í Marokkó og áttu áður sæti í
þj óðarbj argræðisnef ndi n n i.
Mohamed Ould Ba Abdel Kader
undirofursti, sá sem féll í árásinni,
var fyrrverandi yfirmaður flugheés-
ins og hafði harðlega gagnrýnt
friðarsamninginn við skæruliða
Polisario í Vestur-Sahara 1979.
Hann var dæmdur til dauða að
honum fjarstöddum í nóvember sl.
Ahmed Salem Ould Sidi undirof-
ursti, sem var handtekinn, var einn
þeirra sem undirrituðu samninginn
við Polisario, sem varð til þess að
Máritanía afsalaði sér tilkalli til
Vestur-Sahara. Hann sneri baki við
rikisstjórninni nokkrum mánuðum
síðar.
Kosið um EBE-
aðild á Grænlandi
Nuuk. Grænlandi. 16. marz. AP.
GRÆNLENZKA þingið samþykkti í
dag stjórnarfrumvarp um að þjóð-
aratkvæðagreiðsla skuli fara fram i
febrúar á næsta ári um áframhald-
andi aðild Grænlands að Efnahags-
bandalaginu. án þess að nokkrum
mótbárum væri hreyft.
Þó má búast við harðri kosninga-
baráttu um aðildina, sem er umdeild
vegna vaxandi óánægju með fiski-
málastefnu EBE, ep einnig vegna
efasemda um hvort nokkur annar
valkostur komi til greina.
Stjórnarflokkurinn Siumut, sem er
sósíalistaflokkur og vill bandalag
með Færeyjum, Alaska og Kanada,
er algerlega mótfallinn aðild. Flokk-
urinn segir að þótt Grænland hafi
fengið 41 milljón dollara frá EBE
undanfarin sjö ár hafi fiskimenn
bandalagsins veitt tíu sinnum verð-
mætari afla við Grænland á þessum
tíma.
Stjórnarandstöðuflokkurinn Att-
asut, sem er hófsamur jafnaðar-
mannaflokkur, er ekki tilbúinn að
samþykkja að sambandinu við EBE
verði slitið og óttazt að staða Græn-
lands veikist í viðskiptum við Evrópu
í framtíðinni.
Landsstjórnin hefur heitið Græn-
lendingum þjóðaratkvæðagreiðslu
um EBE síðan Grænland fékk
heimastjórn fyrir þremur árum.
Grænland varð að ganga í EBE um
leið og Danir, þótt þeir felldu aðild-
ina í þjóðaratkvæði 1972. Forsætis-
ráðherra Danmerkur, Anker Jörg-
ensen, hefur oft sagt að Danir muni
virða óskir Grænlendinga og ekkert
bendir til þess að danska þjóðþingið
muni koma í veg fyrir hugsanlega
úrsögn Grænlands úr EBE.